Vikan


Vikan - 08.10.1964, Blaðsíða 12

Vikan - 08.10.1964, Blaðsíða 12
Þeir, sem kvaddir höfðu verið til að bera ábyrgð á öryggi Ernest Hem- ingway, voru f vanda staddir þegar innrásin í Normandy hófst. Allt til árs- ins 1944 hafði sá aldni stríðsgarpur ekki virzt hafa sérlega mikinn áhuga á að notfæra sér réttindi sín sem stríðs- fréttaritari. En nú, þegar Bandamenn höfðu loks tekið rögg á sig og ákveð- ið að halda yfir sundið og gefa Hitler á hann svo um munaði, lét gamli mað- urinn fyllilega á sér skilja, að nú væri hann þess albúinn að halda út í stríð. Eins og gefur að skilja, kærðu hvorki blaðaútgefendur né hernaðaryfirvöld sig um það, að eiga það á hættu, að verða krafðir ábyrgðar fyrir það, að hafa teflt jafn ómetanlegum bók- menntadýrgrip í tvísýnu, með því að setja hann þar, sem bardaginn var harðastur. Annað mál var svo það, að þeim var ógerlegt að meina gamla manninum algerlega að koma nálægt vígvöllunum, þar sem hann var nú einu sinni ókrýndur konungur allra stríðsfréttaritara. Það voru því saman- tekin ráð þeirra, að lofa karli að róa — en ekki lengra undan landi en það, að honum væri óhætt. Gamli maðurinn hafði ekki minnstu hugmynd um allt þetta ráðabrugg, þegar hann æddi af stað frá New York árla maímorguns; hafði ekki hug- mynd um það, frekar en mér gat komið það til hugar, þegar ég slóst í för- ina með honum í kránni í Bottwood á Nýfundnalandi, að ég ætti þar með fyrir höndum að verða vitni að því hvernig ein af þessum furðusögum af Hemingway varð til. A meðan við Hemingway og flug- báturinn okkar tókum þarna eldsneyti til langflugsins frá Nýfundnalandi til frlands, endurnýjuðum við gamlan kunningskap og bárum saman bækur okkar. Eg hafði ekki frá svo ýkja- mörgu að segja sjálfur; ég hafði sam- ið um það við lækninn minn að hann frestaði því um nokkurn tíma að gera á mér kviðristu við magasári, svo að ég gæti farið heldur ómerkilegra er- inda á vegum flotans t sambandi við fyrirhugaða innrás. Hemingway fór að sjálfsögðu í mikilvægum og strang- leynilegum erindagerðum, eins og hans var von og vísa. Hann trúði mér þó ÆMINGUm STRÍÐIÐ Hann var gamalreyndur stríðsmaður og fannst hann hafa komizt í feitt að taka þátt í innrás- inni í Normandy. Þar gerðist hann fyrirferðarmikill, kom sér upp „einkaher" og tók að sér stjórnina. VINN6L 12 VIKAN 41. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.