Vikan


Vikan - 08.10.1964, Blaðsíða 4

Vikan - 08.10.1964, Blaðsíða 4
Að þessu sinni birtum við nokkrar myndir af fornum bifreiðum Reykja- víkur úr safni Sveinbjörns Egilssonar fulltrúa hjá Sjóvá, en myndirnar voru á sínum tíma teknar af Ólafi Magnús- syni ljsómyndara. Þær eru allar frá bernsku bifreið- anna hér á landi, teknar flestar á tímabilinu 1913—15, nema myndin af BSR-bílunum, sem mun vera tekin í kringum 1927. í dag finnst okkur þetta furðuleg farartæki og næsta hjá- kátleg í útliti, en þá var þetta það nýjasta á sviði tækninnar, stórglæsi- legir farkostir, ógnvekjandi og fagr- ir í senn. Til þess að setja þá í gang, þurfti að snúa sveifinni, sem lafir framan úr þeim öllum. Þá varð ökumaður- inn fyrst að stilla alla takka rétt í mælaborðinu — hæfilegt bensín, fullt innsog fyrstu þrjá snúningana, svo var aftur farið inn og bensínið minnk- að aðeins og innsogið sett inn til hálfs, þá átti hann að hrökkva í gang við fyrsta kvartara. GGGGrrrrrrrrr, sögðu þá sumir eða tktktktktktktktktktk, eftir því hvaða tegund það var, aðrir sögðu brrrrrrrr svo undir tók í næstu húsum. Og ekki tók betra við þegar flautan var notuð, því hún gat vakið dauða af svefni þegar hún öskraði AAððuga — aðuða. Eftir því sem tímar liðu, breyttist útlitið, bílarnir urðu lægri, lengri, rennilegri og þægilegri bæði fyrir bíl- stjórann og farþegana. Þá voru gang- setningarsveifarnar ekki fastar fram- an á vélinni, heldur lágu þær undir framsætinu og var stungið inn í þar til gert gat framan á bílnum. Vélin í þessum bílum sagði: ffffffffff eða ssssssssss — eftir því hver teg- Þessi virðulegi ungi maður er enginn annar en Egill Vilhjálmsson, sem nú er einn með stærri bílainnflytj- endum hér á landi. Okkur er tjáð að þetta hafi verið hans fyrsti bíll — auðvitað Ford — en fleiri komu á eftir. Bifreiðafélag Reykjavíkur hét þessi félagsskapur, og þeir höfðu sína bílskúra þar sem nú stendur Odd- fellowhöllin við Vonarstræti. Höfð- inglegust er drossían í miðj- unni! O mm ,,////////////,■/,,///////////////,■ S ' .-x-ö 1 j p-r ■ Y/' "ÍsÉI: ■/.;/ ; undin var, og flautan: blaa-blaa eða blöö-blöö. Sá sem ætti aðeins einn slíkan bíl hér á landi í dag, mundi ekki vera í neinum vandræðum með að koma honum í peninga, því hann hefði vafa- laust hækkað töluvert í verði síðan hann var fluttur inn. Þá kostuðu bíl- ar eitthvað í kringum 2 þúsund krón- ur. Vafalaust hefði verðið hundrað- faldazt —- eða meira. Þessir 17 BSR- drossíur á myndinni væru dálagleg eign í dag, ef þær væru í góðu ásig- komulagi, og margir fáanlegir til að spranga í þeim um götur bæjarins. Um þennan bíl vitum við eiginlega ekkert. . . ! Hann lítur varla út fyrir að vera farþegadrossía, heldur einhverskonar flutningavagn, senni- lega opinn að aftan. Kannske hefur hann verið notaður til að flytja út kökur og brauð. .. kannske til að flytja fulla karla í steininn. Það er ekki la.ust við að maður gæti hald- ið að maðurinn með yfirvara- skeggið sé með einkennishúfu á höfð- inu. Allavega er hann með þykka prjónavettlinga á höndum — og hinn er með kragann brettan upp fyr- ir eyru í kuldanum. Takið eftir keðjunum á afturhjólunum. £> Og hér sjáum við bílakost B.S.R. í kringum 1927, þar sem þeim er raðað upp í Austurstræti fyrir fram- an afgreiðsluna, sem þar var. Litlar breytingar hafa orðið á húsun- um síðan þá. Þau eru ennþá sama módel... en þessir klassísku bílar eru nú löngu horfnir af sjónar- sviðinu. 4 VIKAN 41. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.