Vikan


Vikan - 08.10.1964, Blaðsíða 31

Vikan - 08.10.1964, Blaðsíða 31
Óviðjafnanlegur rakstur með rakblaði, sem endist og endist SILVER GILLETTE: hin ótrúlega beitta og mjúka Gillette egg é rakblaði úr ryðfríu stáli, sem engin rakstursaðferð jafnast á við. • mýksti. bezti og þægilegasti rakstur. sem völ er á ® rySfritt stái, scm gefur yður flesta rckstra á biað o gæðin aíiiaf söm við sig—öll . * r\ rv blöðin jafnast á við það siðasta RYÐFRIA STALBLAÐIÐ SILVER GILLETTE - ÞRIGGJA BLAÐA PAKKI - ENDIST VIKUM SAMAN - AÐEINS KR. 25,00 MJÓLKURVERÐ 0G MARGT FLEIRA Framhald af bls. 9. þótt blessuð stúlkan hefði eitt- hvað misreiknað sig, og ef sá grunur minn er á rökum reistur, skal hótelinu bent á að senda mér viðbótarreikning — ég skal með glöðu geði borga það sem á vantar og það strax og ég get klipið eitthvað undan gjaldheimt- unni til þess. í þessari sömu ferð komum við í Valhöll og fengum okkur há- degismat. Ristaðan silung, súpu og mjólk. Þetta var ljómandi matur, og ekki yfirgengilega dýr, — nema mjólkin. Ég veit ekki um nokkurn mann, sem fær eins gott verð fyrir mjólkina sína og Markús í Svartagili, því eitt- hvað hlýtur hann að fá, úr því Hótel Valhöll stendur sig ekki við að selja mjólkurpottinn á minna en 60 krónur. Já, það er hætt við, að hann faðir minn ætti eitthvað í hand- raðanum, hefði hann fengið svoddan prísa fyrir mjólkina sína. En bíðum nú við. Reikningur- inn var fróðlegur fyrir fleira en það, að á honum stóð að mjólk- urglasið — sem tekur tæpan pela — kostaði 15 krónur. Þar stóð nefnilega: 2 lunch kr. 196,00 2 mjólk 30 kr. Við vorum bæði hneyksluð. Hvernig í ósköpunum stendur á því, að það var ekki hægt að skrifa 2 milk, til að vera nú í samræmi við 2 lunch! Og hver veit, nema manni hefði þótt skárra að borga 60 krónur fyrir mjólkurpottinn, ef reikn- ingurinn væri skrifaður á ensku að öllu leyti. En þessi ósköp ... Það var eins og að hafa ekki nema hálft sjón- varp.... ★ BUXURNAR RAÐA f PARfS Framhald af bls. 11. þessari buxnatízku, er glötun- inni ofurseld á þessum tíma. Bux- ur eru nú notaðar við öll mögu- leg og se fleiri tækifæri. Sumum sést ósköp lítið af, kannski eru það aðeins hnémúffur, sem gægj- ast undan dýrum loðf eldum. Aðr- ar þykja hæfa vel miðdegisverði og framkalla djúpa hneigingu hvers góðs dyravarðar. Nú þegar þú ert að ákveða með sjálfri þér að klæðast þess- um mjög svo ókarlmannlegu bux- um við öll hugsanleg tækifæri. Og þá er spurningin: Við hvað á að klæðast þeim? Föt og jakkar bjóða upp á möguleika af slíkri fjölbreytni, að mann sundlar við tilhugsun- ina. Það er um að ræða jakka, sem eru nokkurn veginn ávalir í lögun, og aðra sem eru þröngir og beinir í sniði sem örvar. Marg- ir eru vel rúmir um herðarnar og með víðum ermum. Svo eru enn aðrir, sem minna helzt á flautu. Túnikur mega sín og mikils í París. Eða loðskinnin! Stríðhærð skinn, mjúkhærð skinn, svo unaðsleg skinn er nú um að ræða, að maður nær varla andanum af aðdáun. Loðskinn um hálsinn þinn, í loðskinnsermar, loðskinns- faldar ... Það er um svo margs- konar dragsíðar skikkjur (stólur) og slifsi að velja, að það er jafn flókið nám að læra að bera sig til í því öllu og japönskum blæ- vængjadansi. Næst loðskinnun- um að mikilvægi koma fjaðrirn- ar, fjaðrir af öllum fuglum, frá hænum og upp í strúta. Jersey er allsstaðar viðeig- andi, jafnvel fyrir altarinu. Stökkt gaberdín er mjög í móð, og af öðrum efnum, hörðum við- komu, má nefna skáofin efni (twill) o.fl. Blússurnar eru eins áberandi og hvað annað, og V- hálslínan berst um völdin við aðrar, sem nálgast að vera fer- kantaðar. ATHUGIÐ: GÆTIÐ ÞESS AÐ FYLGJAST VEL MEÐ SÍDD- INNI. Hún er breytileg, stund- um minni en nokkru sinni fyrr, eigi að vera í flíkinni ásamt hné- síðum buxum, en stundum líka niður á miðja kálfa eða alla leið niður í gólf. Mittislínan er á álíka miklu reiki. Stundum er hún uppi und- ir geirvörtum, aðrar þeim mun lægri. Litskrúðið er í ósköp litlu uppáhaldi — nú þykir fínt að klæðast hvítu og svörtu, líkja eft- ir litum kameldýrs og grjóts, brúnkola og blautmoldar, haust- laufa og annarra náttúrulegra fyrirbrigða. Enn aðrar eru græn- klæddar eins og veiðimenn. Þó má einnig sjá fagurrauða liti í stíl við klæði konunga, madonnu- blátt og fleira og fleira. Ef hann skyldi rigna, er önd- vegi að eiga jakka skreyttan safalaskinnum, eða þá mink. Slík skinn safna í sig regndrop- um, sem mynda ódýrustu og hvað mest töfrandi perlur, sem hægt er að hugsa sér. Þetta er í stuttu máli sagt, það, sem Parísartízkan hefur nú að bjóða þér. Veldu þér eitthvað af öllu, eða sumu, og njóttu sem bezt einnar dásamlegustu tízku- árstíðar, sem okkur hefur verið boðið upp á í mörg ár. ★ VIKAN 41. tbl. 31

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.