Vikan


Vikan - 08.10.1964, Blaðsíða 5

Vikan - 08.10.1964, Blaðsíða 5
GAMLAR MYNDIR 0 Jón Sigmundsson mun þessi bílsljóri heita, og bíllinn er greinilega Ford. Meira vitum við eigin- lega ekki um myndina — það geta allir séð, hvar hún er tckin. Liklega hefur þetta verið al-glæsilegasta leigudrossían hér á landi í þá tíð, með gleri á milli farþegarýmis og bílstjóra, svo mcnn gætu verið alveg „prívat" aftur í. í góðu veðri var svo hægt að opna að aftan, til að hleypa góða veðrinu þar inn. Myndin er tekin fyrir utan bifreiðastöð Páls Stefáns- sonar, sem sjálfur mun sitja í yfirbyggðu drossí- unni. Næstur honum er sennilega Magnús Bjarnason bílstjóri, en lengst til vinstri Magnús Ólafsson, sem ennþá ekur sinni bifreið á BSK. Það er þó ekki sama bifrciðin, því miður — hann hefur ávallt fylgzt með tímanum og ekur aðcins því bezta og nýjasta hverju sinni. I'að var siður í Reykjavik í gamla daga, að gefa mönnum ýmis aukanöfn til styttingar, og margir kölluðu Magnús þá Snæra-Manga, sem var til komið vegna þess hve Iaginn hann þótti að gera við bílana sína með því að binda þá sam- an með snæri. Hann er löngu hættur því... O

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.