Vikan

Eksemplar

Vikan - 25.02.1965, Side 26

Vikan - 25.02.1965, Side 26
-O- „Maður sem spilar frá hjartanu — með sveiflu". Hann beið í þrjátíu ár. ó FRfl HJflRTflNU ■ MEÐ SVEIFLU — „Fallegustu stúlkur í heimi“. frá Chicago, og spurði hvort ég vildi ekki spila með Armstrong. Ég sagði auðvitað já, og hef verið með hljómsveitinni síðan. Þetta er stór- kostleg vinna. Ég kann vel við ferðalögin. Mað- ur er alltaf að sjá eitthvað nýtt.“ Ég spurði Danny hvar honum hefði litizt bezt á sig í heiminum. „Það er ekki gott að segja,“ sagði hann. „Það var gaman að koma til Italíu, gott veður, fallegur gróður, eldfjöll, hraun, sjórinn Hann talaði um eldfjöllin og hraunið á Italíu og líkti þeim við Hawaii um leið og hann horfði á Keflavíkurhraunið út um bíl- gluggann. Ég þorði ekki að spyrja hann um hvernig honum litist á hraunið okkar hér á Islandi. BEÐIÐ EFTIR LOUIS Þegar komið var til Reykjavíkur fóru Arm- strong og félagar hans beint í háttinn. Mér var gefin von um viðtal við meistarann, þegar hann vaknaði aftur. Ef til vill væri hægt að hafa tal af honum eftir klukkan fimm. Ég beið. Klukkan var langt gengin í sex, þegar að fyrsti meðlimur hljómsveitarinnar birtist í fordyri Hótel Sögu. Það var Russell Moore, oftast nær kallaður „Big Chief“. Ég spurði um Louis. Moore taldi liklegt að hann svæfi ennþá. „Big Chief“ hlammaði sér niður á stól og dæsti af vellíðan. Hann leit út fyrir að vera að minn- sta kosti 200 kg að þyngd, og eftir því fyrir- ferðarmikill. „Þú mátt eiga við mig viðtal á meðan þú bíður ef þú endilega villt,“ sagði Moore. „Hvað á ég að spyrja um?“ „Ja, þú getur reynt að spyrja mig hvort ég sé kallaður „Big Chief“ af því að ég er svona vel skapað- ur.“ Ertu kallaður „Big Chief“ af því að þú ert svona feitur?" spurði ég, og féll í gildruna. „Feitur," át „Big Chief upp eftir mér með uppgerðar vandlætingarsvip. „Nei, góði minn, ég er sko ekki feitur. Ég samsvara mér ákaf- lega vel. Að minnsta kosti segir konan min að ég megi ekki grennri vera. Ég er kallaður „Big Chief" af þeirri einföldu ástæðu, að ég er indíáni, — hreinræktaður Amerikani. Þú hlýtur að hafa heyrt um Pima indíánanna, sem búa í Arizona". Ég varð að játa að ég hefði aldrei heyrt um Pima Þjóðflokkinn. „Pima indíánar eru frægustu indíánar Bandaríkjanna, skal ég segja þér. Þeir eru nú aðeins 5000 sem eftir lifa í dag, en þetta eru sannir indíánar, og góðir og gildir borgarar. Þú hlýtur þó að hafa heyrt um Ira Hays? Tony Curtis lék í æfisögu hans í kvikmyndinni „The Outsider". „Já, alveg rétt, ég man eftir því,“ skrökaði ég í hvelli. „Jæja, Ira Hays er systursonur minn,“ sagði Chief. „Ég er einasti hreinræktaði indíáninn sem hefur hazlað sér völl í jazz- heiminum. Þú mátt prenta Það með feitu letri.“ Ég lofaði að gera það. „Big Chief“ er langt frá því að vera óþekktur i heimi jazzins. Hann lék í stórri hljómsveit undir stjórn Armstrongs frá 1943 til 1954, og svo með hinum fræga sópransaxofónleikara Sidney Bechet frá 1946—48. Árið 1949 vakti hann mikla athygli á Parísar jazzhátíðinni og settist að á meginlandinu upp frá því. Hann flutti þó aftur til Bandaríkjanna árið 1954. „Big Chief“ Moore er einn af jazzleikurunum sem lék í hinni frægu kvikmynd „New Orle- ans“ með Louis Armstrong, Billie Hollyday og fleirum. „Þú mátt líka prenta það, að Sidney Bechet hafi verið lærifaðir minn. 1 raun og veru á ég honum allt að þakka. Aftur á móti er Armstrong fyrirmynd mín í öllu sem við kemur jazzleik." Ég lofaði að láta prenta Þetta allt. Klukkan var nú langt gengin í sjö, en ekki bólaði á Louis Armstrong. Þá ákvað ég að láta til skarar skríða og hringja í meistarann. Símaviðtal væri þó betra en ekki neitt. Doc Pieu, einkaritari Armstrongs, svaraði í simann og tjáði mér að Louis væri því miður upptek- inn eins og væri. Hann væri að raka sig fyrir Matthías á Mogganum. Aftur á móti væru góðar líkur fyrir viðtali við Armstrong, þe.gar hann kæmi út í Háskólabió, rétt fyrir hljóm- leikana. Og enn settist ég niður og beið. Oti í Háskólabíói voru einir fimm eða sex trésmiðir við vinnu. Þeir voru augsýnilega ekki mikið að flýta sér. Ef til vill voru þeir að bíða eftir Louis eins og ég. Það er ekki á hverjum degi sem menn fá Louis Armstrong til að leika fyrir sig á vinnustað. öðru hverju var barið á bakdyrnar. Þar voru vinir og kunningjar tré- smiðanna, sem þurftu nauðsynlega að fá að segja nokkur orð við þá. E'kki veit ég hvað fram fór þeirra á milli, utandyra, en trésmiðir virð-

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.