Vikan - 20.05.1965, Side 6
ULTRfltLflSH Mascara
TIL AÐ LENGJA OG LENGJA ENNÞÁ
JVIEIR SILKIMJÚK AUGNAHÁR.
ULTRA*LASH er fyrstí augnháraliturinn sem
Jenglr og þéttir augnahárin án þess að gera
þau stff. I>essi einstaka efnablanda lengir án
gerviþráða. Allt sem þér þurfið að gera er að
bera ULTRA*LASH á með hinum hentuga
TAPER-BRUSH sem byggir upp um leið og
hann litar hvert augnhár. Ekkert auka erfiði
og ekkert ergelsi út af gljáalausum og klístr-
uðum augnhárum. ULTRA'LASH hleypur ekki
í kekkl, né skilur eftir klessur eða bletti. Þetta
er fyrsta skaðlausa efnið sem lengir og þéttir
augnhárin, þolir vatn og er lyktarlaust. Sér-
staklega auðvelt að hreinsa á nokkrum sekúnd-
um með Maybelllne Mascara Remover. Kemur
i þrem góðum litum: VELVET BLACK, SABLE
BROWN Og MIDNIGHT BLUE.
alltaf þaí hreinasta og bezta fyrir fegurð augnanna:
Lett rennur
ÓFÆR LÖG í UPPSIGLINGU.
Póstur!
Þar sem ég efast ekki um að
þú ert mikið lesinn, vil ég freista
þess að fá þetta bréf mitt birt.
Orsök þess, að ég tek mér
penna í hönd, er frumvarp það,
sem nú liggur fyrir Alþingi og
fjallar um verndun barna og ung-
menna. Ekki efast ég um, að í
þessu frumvarpi er fjöldi á-
kvæða, sem þörf eru. En sum
ákvæði þess eru þó fjarstæðu-
kennd og algerlega óframkvæm-
anleg. Á ég þar aðailega við 47.
gr., þar sem segir, að framvegis
skuli það varða varðhaldi eða
fangelsi, að slefa EKKI í lögregl-
una, þegar í stað allri vitneskju
um „siðferðisleg afglöp“ barna
og unglinga, á aldrinum 14—18
ára. Til þessara siðferðisafglapa
hljóta þá að teijast drykkjuskap-
ur og samlíf unglinga. Á sama
tíma eru öll vínveitingahús höf-
uðstaðarins troðfyllt á hverju
kvöldi unglingum á aldrinum 15
—20 ára. Má teljast viðburður,
ef að maður sem kominn er yfir
21. aldursár lætur sjá sig á laug-
ardagskvöldum á hinum þremur
vínveitingastöðum miðbæjarins.
Alls ekkert eftirlit er haft með
aldri þeirra, sem inn á þessa staði
fara. Sannast að segja, er grátlegt
að sjá raðir ungra manna og
kvenna, allra undir lögaldri, hall-
ast fram vfir barborð fyrrnefndra
veitingahúsa, eða slaga um ganga
þeirra. Engum er forboðinn að-
gangur að þessari Paradís veit-
ingamannanna Flestir þessara
unglinga eru nemendur í ein-
hverjum hinna þriggja fram-
haldsskóla borgarinnar. Þeir sem
erfa skulu landið.
Drykkjuskapur er að verða
fastur siður ungmenna Reykja-
víkur. Ekkert hamlar áfengisöfl-
un þeirra, og nota þeir sér það
óspart. Og hvað gera stjórnmála-
mennirnir okkar til að bæta úr
þessu vandræðaástandi? Jú, al-
þingi hamast við að semja lög,
sem óhjókvæmilegt er að brjóta,
en enginn reynir að framfylgja.
Með þessu eru þingmenn okkar
að gera sig að fíflum frammi fyr-
ir alþjóð í stað þess, að stuðla
að því að áfengislöggjöfinni sé
framfylgt. Er nú kominn tími til
að yfirvaldið fari að láta til skar-
ar skríða gegn drykkjuskapnum.
Oft var þörf, en nú er nauðsyn.
Reiður, ungur maður.
Hér er bréf frá „Reiðum, ung-
um manni“ um drykkjuskap
unglinga, afglöp Alþingis o.fl.
Við birtum það alþingismönnum
til aðvörunar, en forðumst að
láta okkar álit í ljós að svo
stöddu.
SKINNSLÍPUN.
Kæri Póstur!
Mig langar að biðja þig að gefa
mér upp nafn húðslípunarsér-
fræðingsins sem viðtal var við í
3. tbl. ‘65. Þakka kærlega fyrir
allt gamalt og gott, með fyrir-
fram þakklæti.
Anna.
Ef þú ert að hugsa um að Ieita
til sérfræðings — hvort sem er í
húðsjúkdómum eða einhverju
öðru — þá er reglan sú að maður
talar fyrst við sinn heimilislækni,
sem vísar svo á viðkomandi sér-
fræðing. Verið getur að heimilis-
læknirinn geti hjálpað þér allt
eins vel og sérfræðingurinn, með
einföldum ráðleggingum eða ó-
dýrum lyfjum.
Annars — svona til þess að þú
haldir ekki að við séum að snúa
út úr fyrir þér, þá vitum við að
einn þekktasti „plastic-skurð-
læknir“ landsins, og vafalaust
um leið sérfræðingur í húðsjúk-
dómum, er Árni Björnsson lækn-
ir og það er hann, sem viðtalið
átti við Vikuna.
EKKI HÆTTA, HÖSKULDUR.
Kæri Póstur!
Það var verið að vekja athygli
mína á því að „Vikan“ hefði gert
mér þann heiður að birta bréf-
korn sem ég sendi sem athuga-
semd við skilgreiningu „Pósts-
ins“ í göngum og fjuilaferðum.
Ég vil þakka birtinguna en get
ekki stillt mig um að senda til
baka nokkrar línur í tilefni af
eftirmála sem , Pósturinn' (svara-
maður Vikunnar (sic)) bætir við
bréf mitt. Þessi eftirmáli sannar
að vísu aðeins það sem ég hefi
höggvið eftir við lestur „Pósts-
ins“ í þeim blöðun. sem mér hafa
borizt í hendur. Það er sem
sagt reynt að gera bréfritara
hlægilega, sennilega til þess að
auka vinsældir og útbreiðslu
blaðsins með hnittnum svörum,
það er ekki við þig að sakast
Póstur minn þótt ekki hafi tek-
g VIKAN 20. tbl.