Vikan - 20.05.1965, Síða 24
r
G09ILU KVIKIYM
OG DJETU,
Allt frá því að kvikmynda-
stjörnurnar komu fyrst fram
í Hollywood, hafa þær verið
fyrirmynd annarra um fegr-
un og snyrtingu, hvernig hún
er og á að vera. Þessar tíu
stjörnur, sem myndirnar eru
af hér á síðunni voru „top“-
stjörnur á árunum 1930—40.
Það er því ekki lengra síðan
að konur áttu að líta þannig
lit. Munið þið eftir þessari
andlits-„málningu“? Mjóu
plokkuðu augnabrúnunum ?
Dökkrauða varalitnum, sem
var makað á varirnar, langt
út fyrir eðlilegar línur munns-
ins? Axlarsítt hárið var krull-
að og litað platínu ljóst, rautt
eða svart, engir millilitir voru
hugsanlegir. Þetta var allt
gervifegurð. . . .
En dætur stjarnanna eru
fulltrúar ungu kynslóðarinn-
ar. Þær eru nýjar týpur og
ákaflega eðlilegar. Ekki eru
þær þrælar tízkunnar, hvorki
hvað andlitssnyrtingu eða
hárgreiðslu snertir. Þær eru
ákaflega ólíkar og hárgreiðsl-
an sitt með hverju móti, snið-
in eftir andlitsfalli hverrar
og einnar. Andlitssnyrtingu
fara þær varlega í, hún á að
vera sem eðlilegust, rétt til
að undirstrika andlitsdrætt-
ina.
Lítið þér í spegilinn og
sjáið hvorum hópnum þér
líkist meir, mæðrunum eða
dætrunum? Þér lítið vonandi
ekki út eins og gömul ljós-
mynd? Ef til vill væri gott
að læra svolítið af yngri kyn-
slóðinni. Notið eðlilega litt
„make-up“ sem undirlag.
Veljið varalit í pastellitum og
plokkið aðeins hárin kring-
um augnabrúnirnar en látið
þær halda eðlilegri lögun.
Augun verða fallegri ef þér
notið „eyeliner“ og augn-
skugga.
Skoðið vel myndirnar og
sjáið hvaða týpu þér líkizt.
Reynið svo að finna út
hver er móðir hverrar.
Ann Sothern (1) lélc Maisie
í kvikmynd löngu áður en
hún varð ritari við sjónvarp-
ið. Dóttirin, Tisha Sterling,
í©
24 VIKAN 20, tbl.