Vikan

Issue

Vikan - 02.09.1965, Page 7

Vikan - 02.09.1965, Page 7
mér. Ég er ein af þeim ólánssömu konum, sem eru hjólbeinóttar. Nú langar mig að láta brjóta upp á mér fæturna, en veit ekki hvort það muni vera mjög dýrt. Getur þú ekki, Póstur góður, sagt mér hvort það er mjög dýrt og taki langan tíma og svoleiðis. P.S. Vonast eftir svari fljótt. X. Við hringdum i Benedikt Jak- obsson, íþróttakennara, og spurð- umst fyrir um æfingar, sem gætu rétt bogna leggi. Hann kvað mögulegt að rétta eða að minnsta kosti laga eitthvað leggi á börn- um, sem ekki væru orðin full- vaxin. — Hins vegar, sagði Bene- dikt, — er ómögulegt að rétta leggina eftir að lengdarvöxtur er hættur. Aftur á móti ber minna á þessum ágalla ef vöðvar eru ekki mjög rýrir og ef fólk er ekki of horað, og því hægt að bæta dálítið úr skák með því að hreyfa sig mikið og halda vöðvum í þjálfun. Svo höfum við líka heyrt að með læknisaðgerðum megi bæði rétta bogna leggi og eins stytta þá ef fólk kærir sig um. Ekki vitum við hvort slíkar aðgerðir hafa farið fram hér á landi eða hvað þær muni kosta. En til þess að fá allar upplýsingar um þessi mál, skalt þú snúa þér beint til læknis, og þá gjarnan skurðlækn- is. JÓN SIGURÐSSON, GÍTARLEIKARI. Kæri Póstur! Það lá við, að við fengjum slag, þegar við lásum Vikuna, sem kom út 12. ágúst. Því að í grein- inni, sem fjallaði um útlendinga á Austurvelli, var mynd af ung- um manni, sem var að spekúlera í, hver Jón Sigurðsson væri. Við erum alveg viss um, að sá maður sé sólógítaristi í The Shadows, Hank Brian Marvin. Vitið þið nokkuð nánar um þetta? Hvað segja annars aðrir Shadowsaðdá- endur? Kær kveðja, Glassóklíkan. Ég hef aldrei heyrt þess get- ið, að Jón Sigurðsson hafi Iagt stund á gítarleik hjá Shadows, hvað þá að hann hafi nokkurn tímann heitið Hank Brian Mar- win. Það hlýtur að vera eitthvert misminni hjá ykkur. En að öllu gamni slepptu, þá er náunginn (útlendingurinn að segja) alveg furðulega líkur þessum fræga gít- arleikara. Hvort þetta er hann, vitum við ekki með visssu, en heldur þykir okkur það þó ótrú- legt, að hann hafi komið hér til fslands og enginn skuli hafa veitt honum eftirtekt, ja nema þá ljós- myndarinn á Vikunni, en v|ið reynum alltaf eins og þið vitið að fylgjast með öllu markverðu, sem er að gerast í heiminum, hvort sem er utanlands eða inn- an. SVAR TIL UPPGEFINNAR. Það var verst, að þú skyldir ekki láta okkur vita, hvað það væri sem amaði að hjá þér. Þá hefði heldur verið von til að við gætum hjálpað. Það er nefnilega ekki sama, hver er og hvaða mál það er, sem fólk þarf við. Sá, sem getur verið góður við þetta, þarf ekki endilega að vera góður við hitt. En væri ekki reynandi hjá þér að ræða þessi mál við prestinn þinn? ... í yndis- legum ilmkremum I1IN SÉRSTÖKU ILMKREM FRÁ AVON. Sex ilmtegundir — indælar, mildar og lokkandi, við hæfi hverrar konu. Svalandi, heit og rómantisk áhrif. Við öll tækifæri er ILMKREM ávallt það bezta. Aðeins ögn á hndleggi háls og herðar — kremið hverfur, en ilmurinn verður eftir lengi — lengi. VIKAN 35. tbl. rj

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.