Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 02.09.1965, Qupperneq 17

Vikan - 02.09.1965, Qupperneq 17
 Það þarf ekki að leggja hart að sér við undirbúninginn. Og nokkrar bolbeygjur með bein hné. Skyldu þeir leika þetta eftir marg- ir knattspyrnumennirnir? En Jón æfir fleiri greinar en hástökk. Hér kastar hann kringlunni. Þegar keppninni var lokið, áttum við Jón stutt rabb saman, þar sem hann sagði mér frá liinu helzta, sem á daga hans hefur drifiS i íþrótta- málunum. Jón er fœddur 21. júní, 1941 i Reykjavik og hefur hann alltaf átt þar heima. Hann byrjaSi aS æfa iþróttir 10 ára gamall meS Vikingi, en þó ekki frjálsar iþróttir, heldur knattspyrnu. Hann keppti Framhald ó bls. 20. VIKAN 35. tbl. -yj lagSi af staS upp i loftiS. Til óallrar hamingju varS ráin fyrir mér á ieiSinni upp og ég tók liana meS mér í leiSinni. í næsta stökki fannst mér vissara aS fara úr frakkanum. En enn fór á sömu leiS, ég felldi aftur. Og nú átti ég aSeins eina tilraun eftir. Einhverjar illmálgar raddir voru uppi um þaS, hvort ekki væri rétt aS lækka. Ég lét sem ég heyrSi þær ekki, snaraði mér úr jakkanum og bjó mig undir aS stökkva. Og þar kom aS þvi. Ég komst yfir. Áhorfendur voru orSnir nokkuS inargir og fögnuSu þeir þessu afreki mínu með lófaklappi. IleiSri mínum og Vikunnar var borgið i bili. Nú þótti mönnum ekki hæfa, aS ég væri aS reyna við einhverja barnaskólahæS, og hækk- uSu upp í 1,82. Ég var orðinn vígreifur af síðasta stökki og lagði þvi ótrauður í þetta. En því miður, ég felldi nokkuð gróflega, og enn heyrð- ust raddir, sein sögðu, að ég hefði lieldur átt aS reyna aS fara undir rána en yfir. ASrir voru ákaflega lijálpfúsir viS að leiðbeina mér, sumir sögðu, að ég ætti að halda hærra um stöngina og aðrir sögðu mér að halda lægra. Ég þakkaði þessar ágætu leiðbeiningar og lagði af stað í annað sinn. Ég tók lengra tilhlaup en nokkru sinni áður, svo langt að það lá við að ég væri uppgefinn af hlaupunum, þegar ég kom að holunni. En upp fór ég og komst upp. Upp, sagði ég, vissu- lega komst ég það, en heldur ekki meira. Þegar ég var beint yfir ránni, var krafturinn búinn og ég hlunkaðist klofvega niður á liana og braut hana í fallinu. Og þar meS var keppninni lokið af skiljanlegum ástæS um með sigri Jóns, scm var vel að lionum kominn. En ég lenti í öðru sæti næst á eftir honum. Jón kom til min eftir að ég var risinn á fætur og þakkaði mér fyrir harða og drengilega keppni. Ég þakkaði fyrir á móti og sagðist vona, að við ættum einhvern tima eftir að etja saman hestum okkar á nýjan leik. Sem sagt keppninni var lokið með glæsÞ legum sigri Jóns, sem hafði stokkið 2,07 metra, 55 cm. hærra en næsti maSur komst á stöng. Ég var að vonum dálítið vosvikinn yfir ósigr- inum, ég var nefnilega búinn að hugsa mér, fyrir keppnina, að þessi grein bæri nafnið „Þegar ég sigraði Jón Þ. Ólafsson", eða þá i versta tilfelli: „Yfir tvo metrana með Jóni.“ En sú grein verður vist að biða enn um sinn. Og svo er nú engin skömm að þvi að vera i öðru sæti á eftir fslandsmeistaranum. Jafnvel þó maður noti stöng. Það þarf að vinda líkamann til að liðka hann upp. Leikfimiæfingarnar eru veigamikill þáttur í þjálfuninni.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.