Vikan - 21.10.1965, Qupperneq 2
.
R-
: :
; : • . . ........ ■
' ■ ■ ' ■ ■ :
. :
KING
IGA^ETTES
HAB5E IN U.S.A.
K'Ss'á'4 *
;
• ;. ;
■; • Í
■
Bezta tóbakið veitir mesta
ánægju.
REYKIÐ CHESTERFIELD!
í FIILLRI ALVÖRU
Bítilæði
Hingað til lands berast iðu-
lega fréttir frá öðrum löndum,
um svo og svo mikil skrílslæti
unglinga í sambandi við skemmt-
anir táningahálfguða, svo sem
ýmiskonar bítlategunda. Við og
við hafa svona hálfguðategundir
slæðzt hingað, rétt eins og sjald-
gæf fiðrildi á sumrin, og eftir-
myndir íslenzkar hafa efnt til
samkoma í höfuðborginni, og
jafnan hafa því fylgt skrílslæti
nokkur. Nýlega bárust hingað
fjórir bítlar af tegundinni
KINKS, og héldu skemmtanir í
Austurbæjarbíói. Fyrsta sam-
koman var haldin heldur snemma
kvölds, og þá komu svona venju-
legir unglingar. Sú gerðin, sem
kemur hálfslompuð og sötrar sitt
brennivín meðan á skemmtun
stendur, mætir yfirleitt ekki fyrr
en á síðustu sýningum. En á
þessari fyrstu sýningu voru
sænskir myndatökumenn frá því
þarlenda sjónvarpi, gengu um
salinn og beindu ljósum sínum
og vélum að hóp og hóp í einu.
Þeir voru hér að taka heimildar-
kvikmynd um það, hvernig ís-
lendingar skemmtu sér. Þá bar
svo við, að hóparnir fengu bítil-
æði einn og einn í einu, meðan
Ijósin léku um þá. Svo datt allt
í dúnalogn, og allar síðari sýn-
ingar, hvort sem setnar voru af
flöskugestum eða ekki, fóru frið-
samlega fram.
Þýðir þetta ekki, að ungling-
arnir okkar séu í eðli sínu frið-
samlegir og eðlilegir, þótt hins
vegar megi óneitanlega múgsefja
fólk á öllum aldri, og unglingar
séu óneitanlega móttækilegri
fyrir sefjun en fullorðið fólk? Er
ekki kominn tími til að hætta
að bölsótast yfir æskunni, en
beina þess í stað athyglinni að
þeim æsingamönnum, sem skella
kastljósum sínum, eiginlegum og
óeiginlegum, beint íandlitþeirra,
sem fremur þarf að leiða en
blinda?
S.H.
2 VIKAN 42. tbl.