Vikan - 21.10.1965, Qupperneq 4
SANAMAT
nuddtækin frá Sanamat-verksm.
Frankfurt/Main sameina alla
beztu kosti slíkra tækja í sam-
ræmi við nýjustu tækni. Stillan-
legur vibrationsstyrkleiki og 7
fylgihlutir auðvelda margskon-
ar notkun — auka vellíðan, eyða
þreytu, mýkja og styrkja.
Örugg gæði. — Mjög hagstætt
verð. — Ábyrgð á hverju tæki.
3 gerðir fyrirliggjandi.
EINKAUMBOÐ:
Verzlinin LAMPINl Laugavegi 68
Sími 18066.
ÖR TORffhHÍK
Nu er það komið, VO-5 vinsælasta shampoo
Bandaríkjanna, sem gerir hárið nákvæmlega
ems o : þér viljið hafa það. Stendur hárið
venjulega út í loftið eftir þvottinn? Ekki
lcngur. Ekki með VO-5. Gerið VO-5 að yðar
shampoo —• og það verður barnaleikur að
leggja hárið.
VO-5 með 5 starfrænum efnum: 3, sem
gera bárið hrcint, glansandi og vellykt-
andi. 2, sem gera hárið mjúkt og viðráð-
anlegt — eins og þér viljið hafa það.
EIN KAUMBOÐ:
<J. P. GUÐJÓNSSON H.F.
Skúlagötu 26. — Sími 11740.
* ~
FARÐU VARLEGA!
Kæri ráðgóSi Póstur!
Ég skrifa í mjög mikilli von
um að fá svör við þeim spurn-
ingum sem ég ætla að biðja þig
að svara og Please! svaraðu án
útúrsnúninga.
í sambandi við böll og herra.
Finnst þér ekki svolítið dónalegt
af dömu að afþakka dans, jú það
er enginn efi — en ef strákur
borgar miðann á ballið og situr
við sama borð og svo framv.
En síðan kemur venjulegur
strákur og bíður upp í dans en
áhugann vantar hjá dömunni til
að dansa við hann, því hugurinn
snýst um þann sem bauð inn,
getur daman verið þekkt fyrir að
segja nei takk? eða hvaða skýr-
ingu getum við gefið?
í sambandi við gullhamra og
hrós. Sumir strákar eru gæddir
þeim eiginleikum eða óeiginleik-
um að slá „gullhamra" og þá
erum við oft með orðin á vörun-
um: Þú ert draumur! eða eitt-
hvað líkt því en alla vega finnst
mér aðrar stelpur muni aldrei
segja slíkt, svo ég sleppi öllu
þannig en oft hef ég áhuga á að
segja: Mér þykir óskaplega vænt
um þig, ef þú segðir mér upp
færi ég alveg í drasl! éða eitt-
hvað, sem kallast hrós og er
meining.
Hvers vegna er yfirleitt sagt:
í guðanna bænum láttu hann
(kærastann) ekki vita að þú vilj-
ir ekki missa hann?
Þetta eru sjálfsagt kjánalegar
spurningar en spurt í fullri al-
vöru og fáfræði.
Geturðu frætt mig á því hvern-
ig ég get gleymt að vera þvinguð
á böllum en ég veit að ég dansa
ekki vel og finnst mjög leiðin-
legt.
Nú er ég víst heldur frek á
plássið í Póstinum en elsku Póst-
ur, hjálpaðu mér og svaraðu
þessu fyrir mig og það fljót-
lega.
Með fyrirfram þökk.
Ein af þeim fáfróðu.
P.S. Hvernig er skriftin?
Mér mundi aldrei koma til hug-
ar að snúa út úr svona skemmti-
legu bréfi, Fáfróð mín, og alveg
sérstaklega vegna þess að þín
vandamál snerta fjölmargar aðr-
ar ungar stúllcur.
Við skulum þá fyrst afgreiða
spurninguna um hvort rétt sé að
afþakka dans í ýmsum tilíellum.
Auðvitað hafa allar stúlkur full-
an rétt á því, en það er hreint
ekki sama hvernig það er gert.
Athugaöu það, að þegar strákur
gengur til stelpu og býður henni
upp, er hann í flestum tilfellum
dauðfeiminn og hræddur við •
móttökurnar, þótt hann reyni að
manna sig upp og láta ekki á
því bera. Þaö eru gömul sann-
indi að margur fer að drekka
vín bara í þeim eina tilgangi
að afla sér kjarks til að bjóða
upp stúlkum á böllum. Það er
þessvegna mikið sálarlegt áfall
fyrir karlmenn, þegar þeim er
neitað um dans. Þeir halda að
allir viðstaddir horfi á sig undr-
unaraugum og geri grín að sér
þegar þeim er neitað. Þetta
brýzt stundum út í reiði, eða
dónaskap, þegar þeir eru að
reyna að halda virðingunni gagn-
vart sjálfum sér og öðrum. Það
þarf mikla nærgætni og innsýn
til að aíþakka dans ef vel á að
fara. Oftast er þó hægt að gera
það þannig að herrann taki það
ekki illa upp ef vilji er fyrir
hendi. Stúlkan brosir þá til herr-
ans, kemur með einhverja afsök-
un, sem hljómar sennilega, segir
við hann nokkur orð, bendir hon-
um e.t.v. á að koma seinna _____
sem hann þorir þó varla — og ef
þannig stendur á má gjarnan
bjóða honum að setjast augna-
blik við borðið og rabba við hann
smástund. Það þarf þunnan
herra til að skilja ekki slíka
neitun, ef vel er á haldið.
Ef þú ert á dansleik með pilti,
sem hefur boðið þér, þá er það
algjört skilyrði fyrir því að þú
getir með góðu móti dansað við
annan, að hann spyrji fyrst herr-
ann þinn svo þú heyrir til, hvort
hann megi dansa við þig. Ef hann
er ekki nægilega kurteis til þess,
þá átt þú sjálf að spyrja þinn
herra hvort þú megir dansa við
náungann.
Ef boröherrann þinn þekkir
þig vel, þá veit hann oftast sjálf-
ur hvort þú vilt dansa við aðra
eða ekki, og tekur þá af skarið
fyrir þig. Þetta getur þú hæg-
lega notað þér og sagt við hann
þegar þú sérð einhvern koma til
þín, að þennan viljir þú elrH
dansa við.
Allavega þá skaltu aldrei segja
„Nei, takk“, eða annað álíka
þurrt og stuttaralegt. Það veldur
þér óvinsælda, ekki aðeins hjá
4 VIKAN 42. tbl.