Vikan - 21.10.1965, Qupperneq 18
Kringluleita stúlkan,
sem var að dansa
„Bug“ leit út eins og
hún hefði misst ísmola
niSur í hálsmálið á
blússunni sinni, og
krafsaði ofsalega til að
ná í hann.
Diskotek
um (Disc-Jockey eða Disqu-
arie), sem venjulega eru í af-
síðis klefum. Þeir reyna að
stjórna hávaðanum eftir geðs-
lagi gestanna og framkomu.
Slim Hyatt, sem stjórnar
Shepheards klúbbnum segir:
—Eg þoli ekki að sjá fólk sitja
og stara út í loftið, ég vil hafa
það á stöðugri hreyfingu.
Go-Go klúbbarnir sem fara
frekar eftir venjum frá Holly-
wood en Paris hafa oftast
þann háttinn á að nota jöfn-
um höndum hljómsveitir og
hljómplötur. Þeir láta líka
vellimaðar stúlkur í stuttum
pilsum sýna danssporin á upp-
hækkuðum pöllum.
En þeir sem haldnir eru
diskótek-æði, þurfa yfirleitt
ekki á leiðbeiningum eða hjálp
að halda, þetta kemur ósjálf-
rátt.
— Það er ekki hægt að
komast hjá því að dansa hér,
segir Killer Joe og pantar
sér nýjan drykk. — I fyrsta
lagi er dansinn of auðveldur
til að sitja hjá, í öðru lagi
er hann of æsandi til að dansa
ekki og í þriðja lagi skemmt-
ir pakkið þarna á gólfinu sér
svo stórkostlega, að það er
útilokað annað en að æsast
með því....
Piro bendir á ösina á gólf-
inu og segir: — Það sem þetta
fólk er að dansa eru ósköp
einföld tilbrigði af „Twist“.
Allir diskótek dansar eru
ættaðir frá Twist, og allir
geta dansað Twist. Tíu ára
börn geta lært það af sjón-
varpinu. Sjáið þið þessi tvö
þarna, þau eru að dansa Frug,
hann bendir á par á gólfinu.
— Þau rokka ekki, eins og í
Twist, en sjáið þið hvernig
þau hreyfa sig í mjöðmunum?
Standa fast í fæturna, öll
hreyfingin er í mjöðmum og
fótleggjum. Og svo þessi tvö,
þarna, þau hreyfa handleggina
eins og þau séu á hestbaki.
Það heitir Hitch-Hiker. Sko,
þau dansa „Frug“ og benda
með höndunum, eins og þau
séu á hestbaki. — Einfalt?
Þarna er „Surf“. Sjáið það.
Þau dansa „Frug“ og láta eins
og þau séu á sjóskíðum, fjöðr-
uð í hnjánum, til að standa
ölduna, vagga sér til hliðanna
til að halda jafnvæginu. Nú
skipta þau yfir í „Swim“,
sko þau „crawla“ með hand-
leggjunum. Þarna yfirfrá er
»Eug“.
Kringluleita stúlkan, sem
var að dansa „Bug“ leit út
eins og hún hefði misst ísmola
niður í hálsmálið á blússunni
sinni, og krafsaði ofsalega til
að ná í hann.
— Ja-á, sagði Piro og hall-
aði sér aftur á bak í stólnum,
— nú geta stúlkurnar dansað
og hreyft sig eins og þær vilja.
Þær hljóta að elska þessa
dansa. Þær gátu ekki verið
svona óháttbundnar áður en
„Twist“ kom til sögunnar.
Þær hljóta að hafa bölvað í
hljóði í mörg ár, þegar þær
voru dregnar fram og aftur af
karlmönnum, sem kannske
lítið sem ekkert kunnu að
dansa og tröðkuðu á tánum
á þeim heilu kvöldin. Nú
mega þær tjá sig eftir vild,
alveg óhindraðar!
Kjánaleg stífni karlmanna
fer í taugarnar á KiIIer Joe.
— Jafnvel þótt þeir séu í
einkatímum hjá mér eru þeir
feimnir og hræddir um virð-
ingu sína. Þeir vilja ekki
slappa af, þeir eru miklu
hræddari en konur um að
verða sér til skammar.
Hertoginn af Windsor var
einn af nemendum hans: —
Bezti náungi, hertoginn. Ég
varð að kenna hértogahjón-
unum í anddyrinu á íbúð
þeirra á Waldorf Astoria, það
var eini staðurinn sem ekki
var teppalagður. Hann var
dálítið stirður í fyrstu, eins
og hann væri hræddur um að
hann gæti ekki beygt sig. En
þegar ég var búinn að koma
honum í gang, var allt í lagi.
Ein af nemendum hans var
hin fræga enska dansmær
Dame Margit Fonteyn: —
Sybil Burton kom með hana,
sagði Joe. — Alicia Markova
var líka hjá mér. .. . Ray
Bolger bað hann einu sinni
um leiðbeiningu. — Ég var
búinn að þekkja hann í mörg
ár. Ég sagði: „Hvern fjandann
ertu að gera hér, Ray!“ Hann
sagðist vera að fara í bless-
party og var svo hræddur um
að einhver bæði hann um að
dansa Twist. Hugsið þið ykk-
ur, hann kunni ekki að twista!
Hann kom auga á slöngu-
lega, dökkhærða stúlku, sem
hreyfði sig með krampakennd-
um hnykkjum. — Sko þessa,
sagði hann. —- Hún er að
dansa „Asna“. Er hún ekki
stórkostleg? Efri búkur hans
hreyfði sig í stíl við hennar
hreyfingar. — Haltu áfram,
elskan, sagði hann. — Ó, drott-
inn minn, sjáið þið hvernig
hún klifrar upp í bananatré
.... Að lokum sýndi Killer
Joe að hann gat ekki annað
en dansað á svona diskótek-
kvöldi.
— Ég verð að ná mér í
mótdansara, sagi hann og var
þotinn....
Á dansgólfinu er Killer Joe
10 feta hár og almennings-
eign, annars er hann fimm
fet og sex þumlungar, vegur
130 pund og er sjálfs síns
herra. Hann vill hafa hárið
slétt svo hann klístrar það
niður með feiti, þótt það sé
hálfgerð dauðasvnd. Þung
austurlandalykt ósar frá hon-
um og hann er hlaðinn gulli,
stórir gullermahnappar, stórt
gullarmbandsúr, stór gull-
hringur (með upphleyptum
Framhald á bls. 30.