Vikan - 21.10.1965, Page 20
¥¥¥¥¥¥**¥¥¥¥¥¥¥*¥¥¥¥¥¥**¥¥¥¥¥¥¥*¥¥¥***¥¥¥¥¥¥¥¥¥¥¥¥***¥¥¥*¥*¥**¥¥¥¥¥¥¥¥¥¥¥*¥**¥¥¥*¥*¥¥¥•¥■¥¥¥**¥*¥¥¥¥¥¥*¥***¥¥*¥*¥¥¥***
Unglingahljómsveitin Tempó. Ungir piltar, efnilegir — og vinsælir. Frá vinstri:
Halldór Kristinsson, Guðni Jónsson, Páll Valgeirsson, Þorgeir Ástvaldsson og
Davíð Jóhannesson. (Mynd Sigurgeir).
Ungir, efnilegir og ¥i
Við kynnum nú hljómsveit-
ina Tempó. Ef til vill verða
slíkar kynningar öðru hverju.
Við vildum gjarnan fá ábend-
ingar frá ykkur, ungu lesend-
ur, um hvaða hljómsveitir
þið viljið fræðast. Auðvitað
á þetta ekki síður við um
hljómsveitir úti á landsbyggð-
inni. Myndir mættu gjarnan
fylgja með. En nú snúum
við okkur að piltunum í
Tempó:
Davíð
Davíð Jóhannesson er 14 ára gamall. Hann
leikur á sólógítar með Tempó og byrjaði
að æfa sig á hljóðfærið fyrir tveimur
árum. Gítarinn hans er Fender Stratoc-
aster. Magnari: Selmer, 30 w.
Þorgeir
Þorgeir Ástvaldsson er 15 ára. Hann
byrjaði að leika á pianó, þegar hann
var 11 ára og lék framan af á það hljóð-
færi með hljómsveitinni. Nú leikur hann
á rafmagnsorgel. Orgelið lians er ítalskt,
Farfisa. Magnari: Vox, 20 w.
Guðni
Guðni Jónsson er 15 ára. Hann leik-
Ringo Starr og frú.
Hvað segja
stjörnumar
um
stjömurnar
★ Þegar þeir, sem eru í sviðs-
Ijósinu, verða stjörnur og þekktir
um heim allan, vill heimurinn
gjarna vita, hvað stjörnurnar segja
um stjörnurnar.
★ Þegar Bítlarnir höfðu herjað ó
Bandaríkin og í mun ríkara mæli
lagt undir sig þetta risavaxna land
og íbúa þess en nokkur hinna
skeinuhörðu herja fyrr ó öldum
hafði megnað, hófu ötulir auglýs-
ingamenn að rýna í fortíð þeirra.
Til þess að fullnægja nær óseðjan-
legri þörf almennings fyrir Bítla
fréttir var barnæska þeirra rakin
út í hörgul og getum leitt að fram-
tíðinni. En getsakir eru aðeins hólf-
ur sannleikur. Ef við viljum vita eitt-
hvað með vissu, verðum við að leita
til stjörnuspómanna — til þeirra,
sem haida því fram, að í stjörnun-
um séu skróð örlög mannanna.
'^r. Hinn nafntogaði bandaríski
stjörnuspómaður Caroll Richter hef-
ur gert eftirfarandi stjörnuspódóm
um fyrirbrigðið „The Beatles". Hið
eftirtektarverðasta við hylli og vin-
Paul McCartney.
John Lennon.
George Harrison.
Jane og
Bifila Páll
Þessi unga og fallega stúlka heitir
Jane Asher. Faðir hennar er nafn-
togaður læknir, dr. Richard Asher.
Bróðir hennar heitir Peter Asher og
er raunar betur þekktur, þegar
vinur hans Gordon er nefndur í
sömu andrá. Jane Asher er leik-
kona og fyrir einu ári lýsti hún því
yfir, að það sem hún þráði mest
væri að leika Júlíu í „Romeo og
Júlía" á leiksviðinu, að giftast og
ala börn. „En ég vil giftast ein-
hverjum, sem er ekki viðriðinn
skemmtanalífið", bætti hún við.
„Eg held það sé betra fyrir hjón,
að störf þeirra fari ekki saman.
Og mér geðjast vel að bændum".
Eftir öllum sólarmerkjum að
dæma virðist sem Jane muni ekki
geta staðið við þessi orð sín. í
langan tima hefur verið kærleikur
milli hennar og Paul McCartney,
og fyrir skömmu var því einhvers
staðar lýst yfir á opinberum vett-
vangi, að þau hygðust láta pússa
sig saman, áður en langt um liði.
Ungu dömurnar í Englandi og
raunar víðar hafa fylgzt mjög
rækilega með sambandi þeirra
Jane og Bítlapáls, einkum eftir að
Framhald á bls. 48.
sældir Bítlanna, að þegar þeir glötuSu
persónueinkennum sinum og leituðust
við að líkjast hver öðrum í einu og öllu,
öðluðust þeir vinsældir, sem þeir hefðu
aldrei öðlazt sem einstaklingar.
JOHN
John Lennon fæddist 9. október 1940
og heyrir því til Vogarmerkinu. Fiann
er kvæntur og er það eðlilegt, þar sem
fólk, sem fætt er undir þessu merki er
mjög félagslynt og þolir illa einveru.
Þess vegna vill John alltaf hafa konu
sína með sér, þótt hún verði óhjá-
kvæmilega að halda sig t hæfilegri
fjarlægð til þess að varpa ekki skugga
á vinsældir Bítlanna. John er glúrn-
astur Bítlanna, hann er hagsýnn og
umgengst peninga með mikilli var-
færni. Hann hefur alltaf unnið hörðum
höndum og stefnt að því að koma ár
sinni vel fyrir borð, og meðan hann
var óþekktur var hann óútreiknanleg-
ur. Hann var mjög íhugull og gat oft
verið bitur og hæðinn. Nú hefur eðli
hans breytzt, — hann er orðinn vin-
gjarnlegri og skilningsríkari í afstöðu
sinni til umheimsins. Það er auðveld-
ara að umgangast hann. Aður fyrr
átti hann það til að vera annað veifið
blíður sem lamb en hitt bitur sem
rándýr. Frægðin og vinsældirnar eru
honum þýðingarmeiri en nokkrum
hinna. Velgengni Bítlanna er mest að
þakka viljastyrk hans og góðri yfir-
sýn. John kemst aldrei á vonarvöl og
Framhald á bls. 49.
20 VIKAN 42. tbl.