Vikan

Tölublað

Vikan - 21.10.1965, Blaðsíða 20

Vikan - 21.10.1965, Blaðsíða 20
¥¥¥¥¥¥**¥¥¥¥¥¥¥*¥¥¥¥¥¥**¥¥¥¥¥¥¥*¥¥¥***¥¥¥¥¥¥¥¥¥¥¥¥***¥¥¥*¥*¥**¥¥¥¥¥¥¥¥¥¥¥*¥**¥¥¥*¥*¥¥¥•¥■¥¥¥**¥*¥¥¥¥¥¥*¥***¥¥*¥*¥¥¥*** Unglingahljómsveitin Tempó. Ungir piltar, efnilegir — og vinsælir. Frá vinstri: Halldór Kristinsson, Guðni Jónsson, Páll Valgeirsson, Þorgeir Ástvaldsson og Davíð Jóhannesson. (Mynd Sigurgeir). Ungir, efnilegir og ¥i Við kynnum nú hljómsveit- ina Tempó. Ef til vill verða slíkar kynningar öðru hverju. Við vildum gjarnan fá ábend- ingar frá ykkur, ungu lesend- ur, um hvaða hljómsveitir þið viljið fræðast. Auðvitað á þetta ekki síður við um hljómsveitir úti á landsbyggð- inni. Myndir mættu gjarnan fylgja með. En nú snúum við okkur að piltunum í Tempó: Davíð Davíð Jóhannesson er 14 ára gamall. Hann leikur á sólógítar með Tempó og byrjaði að æfa sig á hljóðfærið fyrir tveimur árum. Gítarinn hans er Fender Stratoc- aster. Magnari: Selmer, 30 w. Þorgeir Þorgeir Ástvaldsson er 15 ára. Hann byrjaði að leika á pianó, þegar hann var 11 ára og lék framan af á það hljóð- færi með hljómsveitinni. Nú leikur hann á rafmagnsorgel. Orgelið lians er ítalskt, Farfisa. Magnari: Vox, 20 w. Guðni Guðni Jónsson er 15 ára. Hann leik- Ringo Starr og frú. Hvað segja stjörnumar um stjömurnar ★ Þegar þeir, sem eru í sviðs- Ijósinu, verða stjörnur og þekktir um heim allan, vill heimurinn gjarna vita, hvað stjörnurnar segja um stjörnurnar. ★ Þegar Bítlarnir höfðu herjað ó Bandaríkin og í mun ríkara mæli lagt undir sig þetta risavaxna land og íbúa þess en nokkur hinna skeinuhörðu herja fyrr ó öldum hafði megnað, hófu ötulir auglýs- ingamenn að rýna í fortíð þeirra. Til þess að fullnægja nær óseðjan- legri þörf almennings fyrir Bítla fréttir var barnæska þeirra rakin út í hörgul og getum leitt að fram- tíðinni. En getsakir eru aðeins hólf- ur sannleikur. Ef við viljum vita eitt- hvað með vissu, verðum við að leita til stjörnuspómanna — til þeirra, sem haida því fram, að í stjörnun- um séu skróð örlög mannanna. '^r. Hinn nafntogaði bandaríski stjörnuspómaður Caroll Richter hef- ur gert eftirfarandi stjörnuspódóm um fyrirbrigðið „The Beatles". Hið eftirtektarverðasta við hylli og vin- Paul McCartney. John Lennon. George Harrison. Jane og Bifila Páll Þessi unga og fallega stúlka heitir Jane Asher. Faðir hennar er nafn- togaður læknir, dr. Richard Asher. Bróðir hennar heitir Peter Asher og er raunar betur þekktur, þegar vinur hans Gordon er nefndur í sömu andrá. Jane Asher er leik- kona og fyrir einu ári lýsti hún því yfir, að það sem hún þráði mest væri að leika Júlíu í „Romeo og Júlía" á leiksviðinu, að giftast og ala börn. „En ég vil giftast ein- hverjum, sem er ekki viðriðinn skemmtanalífið", bætti hún við. „Eg held það sé betra fyrir hjón, að störf þeirra fari ekki saman. Og mér geðjast vel að bændum". Eftir öllum sólarmerkjum að dæma virðist sem Jane muni ekki geta staðið við þessi orð sín. í langan tima hefur verið kærleikur milli hennar og Paul McCartney, og fyrir skömmu var því einhvers staðar lýst yfir á opinberum vett- vangi, að þau hygðust láta pússa sig saman, áður en langt um liði. Ungu dömurnar í Englandi og raunar víðar hafa fylgzt mjög rækilega með sambandi þeirra Jane og Bítlapáls, einkum eftir að Framhald á bls. 48. sældir Bítlanna, að þegar þeir glötuSu persónueinkennum sinum og leituðust við að líkjast hver öðrum í einu og öllu, öðluðust þeir vinsældir, sem þeir hefðu aldrei öðlazt sem einstaklingar. JOHN John Lennon fæddist 9. október 1940 og heyrir því til Vogarmerkinu. Fiann er kvæntur og er það eðlilegt, þar sem fólk, sem fætt er undir þessu merki er mjög félagslynt og þolir illa einveru. Þess vegna vill John alltaf hafa konu sína með sér, þótt hún verði óhjá- kvæmilega að halda sig t hæfilegri fjarlægð til þess að varpa ekki skugga á vinsældir Bítlanna. John er glúrn- astur Bítlanna, hann er hagsýnn og umgengst peninga með mikilli var- færni. Hann hefur alltaf unnið hörðum höndum og stefnt að því að koma ár sinni vel fyrir borð, og meðan hann var óþekktur var hann óútreiknanleg- ur. Hann var mjög íhugull og gat oft verið bitur og hæðinn. Nú hefur eðli hans breytzt, — hann er orðinn vin- gjarnlegri og skilningsríkari í afstöðu sinni til umheimsins. Það er auðveld- ara að umgangast hann. Aður fyrr átti hann það til að vera annað veifið blíður sem lamb en hitt bitur sem rándýr. Frægðin og vinsældirnar eru honum þýðingarmeiri en nokkrum hinna. Velgengni Bítlanna er mest að þakka viljastyrk hans og góðri yfir- sýn. John kemst aldrei á vonarvöl og Framhald á bls. 49. 20 VIKAN 42. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.