Vikan - 16.12.1965, Síða 28
anna, sem sumir hverjir neituðu þeim um
að flytja mál fyrir réttinum með slíka „höf-
uðprýði". Þó sýna opinber ensk skjöl, að í
desember 1529 greiddi leyndarráð Hinriks 8.
hvorki meira né minna en 20 shillinga fyrir
hárkollu handa hirðfífli konungs.
Á ríkisárum Elísabetar miklu voru hár-
kollur almennt komnar í notkun meðal
kvenna. Og drottningin sjálf, ásamt stöllu
sinni, Maríu Skotadrottningu, bar hárkollu
við ýmis tækifæri. Og á dögum Karls I var
svo komið, að konum var talið lítt sæmandi
að notast við sitt eigið hár, það skyldu þær
hylja undir ábúðarmikilli hárkollu. Gerðu
konur þess tíma sitt bezta til að verða ekki
eftirbátar karlmannanna á því sviði.
Mjög fór að draga úr glæsileik hárkoll-
anna á valdatímum Loðvíks 15. Þær voru
nú minni og til muna gisnari. Má segja, að
þær hafi þannig fylgt konungsveldinu, sem
hrakaði mjög um þetta leyti. Þrátt fyrir það
voru um þessar mundir ekki færri en 45
gerðir af hárkollum í daglegri notkun. En
hver gerð hafði sitt heiti og stíl.
Þegar Loðvík 16. kom til valda, var hár-
kollufaraldurinn enn svo mikill, að hver at-
vinnustétt og aldursskeið bar hárkollu af
sinni sérstöku gerð og útliti. Var sagt, að
jafnvel hinir aumustu þjónustumenn vog-
uðu sér ekki út fyrir dyr án hárkollu.
Ekki er vitað með vissu, hvenær hárkoll-
ur voru fyrst teknar til notkunar í leikhús-
um, en líklegt er talið, að það hafi gerzt um
svipað leyti og þær héldu innreið sína í sam-
kvæmislífið. í dag eru þær taldar ómissandi
á sviði, í kvikmyndum og í sjónvarpi, og
iVleö Biátríð grestt -
inni I skáp
Og ekki má gleyma karlmönnunum. Hér er Margrét að búa
Val Gíslason inn á leiksviðið. Hann hefur fengið frampart úr
kollu, sem grcidd er saman við hans eigið hár, og það er einmitt
þetta, sem sumir karlmenn fá sér til afnota í einkalífinu, þegar
hárið er farið að þynnast að framan.
Það má gera ýmsa galdra með einni fléttu, og hamingjan má vita,
hvað varð íir henni þessari á höfði Brynju Benediktsdóttur, leik-
O konu, þegar Margrét hafði farið æfðum höndum um verkið.
.... lw"»~ i
O Á þessari mynd er tekið að setja topp á höfuð Brynju .. .
O' • • • og hér er verkið fullkomnað.