Vikan - 05.05.1966, Qupperneq 2
í FULLRI HLVÖRU
BROHCO
LANDBÚNAÐARBIFREIÐIN
MEÐ DRIFI Á ÖLLUM HJÓLUM
BÍLLINN SEM BYGGÐUR ER FYRIR ÍSLAND.
Hann sameinar sfyrkleika, mýkt og aksturshæfni
betur en nokkurt annað farartæki sem flutzt hefur
til landsins. Lótið reynzlu annarra verða yðar
reynzlu.
SVEINN EGILSSON H.F.
UMBOÐIÐ LAUGAVEG 105 SlMI 22466
I
VERSTU SAMGÖNGUR
Á ÍSLANDI
í fyrrasumar kom ég í eina
afskekktustu byggð á íslandi
öllu, það var vestur á Vestfjörð-
um. Þar hafði með ærinni fyrir-
höfn og talsverðum tilkostnaði
verið lagður vegur um grýttar
slóðir yfir hátt fjall til þess að
fólkið á bæjunum þarna, samtals
tíu manns, gæti komizt leið-
ar sinnar ef með þyrfti. Þessi
vegur er um það bil tuttugu
kílómetra langur og einn bónd-
inn þarna í byggðinni tjáði mér,
að þegar núlifandi kynslóð félli
frá, mundi enginn búa þar meir.
Enda hvorki ræktunarskilyrði
þar né hlunnindi. Samt var sj álf-
sagt að leggja veg þangað, bjarga
atkvæðunum og sjá fyrir sam-
göngum fyrst fólkið vildi vera
þarna. Það er yfirleytt sjálfsagð-
ur hlutur að koma upp ein-
hverjum vegarnefnum, nema
þá ef það væri þar sem þörfin
er mest.
Því er hægt að slá föstu að
verstu samgöngur á íslandi séu
milli Kópavogs og Reykjavikur.
Þar fara samtals 17—18 þúsund
bifreiðar á milli á hverjum sólar-
hring og þessa fjölförnustu leið
landsins er aðeins um einn veg
að ræða. Sá vegur er lítið breið-
ari og ótrúlega lítið skárri en
vegurinn yfir fjallið í byggðina
afskekktu sem ég gat um fyrr.
Stundum mun vera hægt að kom-
ast á jeppum einhverja aðra leið
upp úr Blesugróf og þaðan í
Kópavog, en sú leið hefur verið
langtímum saman grafin í sund-
ur. Á Kópavogsleiðinni hefur
hver sínar eigin reglur; fjós-
haugsvagnar og þungavinnuvél-
ar aka þar með 19—25 krn. hraða-
Þesskonar umferð mundi í ölluna
menningarlöndum látin fara frarn
að næturlagi. Ég veit um fólk,
sem hefur hreinlega gefizt upp á
að búa í Kópavogi eða Garða-
hreppi einungis vegna þess að
það taldi það óviðunandi að aka
þennan veg daglega.
Nú er nýlega út komin glæsileg
bók um skipulag Reykjavíkur
langt fram í tímann. í þessari
bók má sjá uppdrætti af fram-
tíðar-gatnakerfi borgarinnar;
hraðbrautum, tengibrautum og
safnbrautum. Kannski er það
einhver huggun að sjá, að þetta
eigi einhverntíma að lagast oi
að lausnin skuli þó vera til á
pappírnum. Sú huggun er þó
aðallega fyrir stjórnmálamenn.
Sá fjöldi vegfarenda sem fet
þarna á degi hverjum í I7_i8
þúsund bílum, krefst þess, að
bundinn verði endir á ofremdar-
ástandið þegar í ár. Gg.
2 VIKAN 18. tbl.