Vikan - 05.05.1966, Blaðsíða 5
Um langa hríð gengur dansinn í öldum um allar götur . . .
ungir og gamlir, karlar og kon-
ur dansa eftir ástríðuþrunginni
músíkinni og hreyfa sig tryllings-
lega eftir ofsafengnum rytman-
um. Langar keðjur eru myndað-
ar, og karlar og konur dansa —
hvort kynið út af fyrir sig — í
keðjum, sem tengjast saman, og
er dansstjóri fyrir hverri keðju.
Flestar konurnar, sem þátt taka
í dansinum, eru mjög fallegar og
klæddar skrautlegum buxnakjól-
um með tyrknesku sniði, hengd-
ar utan skartgripum og allar
„húðflúraðar". Svörtu augun
tindra af lífsgleði. Neðan við
buxnakjólana sjást litlir, smekk-
lega gerðir skór. Klæðnaður
karlmannanna er hinsvegar dá-
lítið handahófskenndur. Sumir
eru í jakkafötum, en flestir á
skyrtunni og dansa berfættir.
Hljóðfæraslátturinn lokkar jafn-
vel fram hóp eldri manna. Þeir
dansa í keðju sér eftir eigin
hljómsveit, sem trumbuslagari
stjórnar, og hann herðir á hljóð-
fallinu unz fætur karlanna hreyf-
ast eins hratt og trommupinnar.
Um langa hríð gengur dansinn
í öldum um allar götur. Brúð-
guminn er einn sá fjörugasti.
Hann hefur líka ástæðu til þess.
Brúður hans er fögur eins og
gyðja, og góðir vinir safna pen-
ingum fyrir sameiginlegri brúð-
kaupsgjöf, meðan dansinn er
stiginn. Börnin hlaupa fram og
aftur milli fóta hinna fullorðnu.
Einnig þau hreyfa sig eftir hljóð-
fallinu, altekin af tónlistinni.
Myrkrið hnígur yfir sígauna-
hverfið, en hlj óðfæraleikararnir
linna ekki látum og það er dansað
langt fram yfir miðnætti. Þetta er
hátíðleg veizlunótt, sem við
gleymum seint — nótt ósvikins
sígaunabrúðkaups.
Trumbiislagari
stjórnar hljómsveit-
inni, sem leikur íyr-
ir dansi eldri mann-
anna.
Hljóðfæraleikararn-
ir linna ekki látum ..
Karlar og konur
dansa í keðjum,
hvort kynið út af
fyrir sig.