Vikan - 05.05.1966, Page 6
HVAÐ ER BRONX?
Eins manns
svefnsófi
Stærð: 145x75 cm.
Lengist með bakpúðunum í 185 cm.
Sængurfatageymsla undir dýnunni.
Stólar fást í stíl.
wywummau*
SHAVE LOT
Old Spice Lotion er frlskleg og
hressandi. Berið þa3 ó andlit
yðar eftir rakstur ó hverjum
morgni. — Þannig er bezt a8
byrja daginn.
Kæra Vika!
Viltu gjöra svo vel að segja
mér hvernig hverfi Bronx 63 í
New York er, er það fátækra-
hverfi?
Með fyrirfram þökk
Gunna.
Bronx er ein af þeim fjórum
borgum, sem byggja upp New
Yorkborg. Milli Bronx og Man-
hattan liggur áin Harlem, og
Bronx var hluti af Westchester-
sýslu þar til hún var innlimuð
í New York árið 1898. Þetta er
einkum íbúðahverfi, heldur
þokkalegt að því undanskildu, að
hluti af árbakkanum er notaður
undir bryggjur, vöruhús og iðn-
aðarfyrirtæki. fbúatalan er um
ein og hálf milljón. Borgarhlut-
inn er heitinn eftir fyrsta land-
námsmanninum þar, Jónasi
Bronx, en hann keypti skikann
af Indíánum 163.9. Síðan settust
að hjá Jónasi fjölmargir íbúar
Nýja-Englands, og síðan hefur
allt verið meo kyrrum og nota-
legum kjörurn þar; f jölgunin, iðn-
aðurinn og verzlunin þróazt jöfn-
um og markvissum skrefum fram
til þess, að Bronx innlimaðist í
New York. Sérkenni á Bronx eru
hinir fjöltr.örgu garðar borgar-
innar, þeirra á meðal Bronx-
garður — Bronx-Park — sem er
frægur dýra- og grasgarður. t
Bronx er einnig hið fræga Yan-
kee Sta.dium og margar mennta-
stof.narúr þekktar, svo sem Ford-
ham University, Hunter College,
Univcrsity Heights Centre of
N«w York University og Man-
hattan College — þótt Manhattan
sé handan við 'ána. Einna þekk-
astur íbúi Bronx myndi vera Ed-
gar Allan Poe, sem bjó þar ásamt
hinni barnunjju konu sinni, Virg-
iniu Clemm. —■ Við gerum ráð
fyrir, að talan 63, sem þú nefn-
ir í tengsluni við Bronx, sé póst-
númer einhvers ákveðins hverf-
is þar í borginni.
FATAKAUP HÉR OG ERLENDIS..
Hr. ritstjóri!
Tilefni þess að ég hripa þssar
línur eru greinar í 8. og 12. tbl.
Vikunnar, þar sem rætt er um
verðmun á fatnaði hér og erlend-
is og búðarráp íslendinga í er-
lendum liorgum.
Ég hef töluverða reynslu í þess-
um efnu'm. Ég á 5 börn, sem öll
eru í skólum, ýmist í gagnfræða-,
barna- eða framhaldsskólum.
Við höfum það sem kallað er
góðar miðlungstekjur, en samt
ná endarnir ekki saman hjá okk-
ur, að fæða og klæða þessi böm
sómasamlega, þó vinna krakkarn-
ir á sumrin strax og þau hafa
aldur til, dýrasta liðinn tel ég
vera fatnaðinn.
Ég vinn utan heimilis á kvöld-
in til þess að drýgja tekjurnar.
Þegar ég fór með aurana mína
í búðir hér í Reykjavík, ef stelp-
urnar mínar vantaði kjól fyrir
árshátíð eða þ.u.l., þá hurfu þeir
eins og dögg fyrir sólu, og mér
fannst sárgrætilegt að hugsa um
hvað fólk hér verður að vinna
margar stundir eða vikur til þess
að eignast sæmilegan kjól eða
kápu og fór að reyna önnur ráð.
Vegna þess að ég var svo hepp-
in í æsku að fá að ganga í skóla
(sem kallað var) get ég bjargað
mér í ensku og norðurlandamál-
um.
Nú held ég saman aurunum
mínum. eins og skollinn sálunum,
og fer til Skotlands annað hvert
ár og verzla þar með þessi 100 £
sem ferðafólk fær. Ég er búin að
fara þrjár ferðir, en núna síðast-
liðið haust fórum við hjónin í
vetrarferð með Gullfossi, svo þá
kynntist ég verðlagi víðar en í
Skotlandi. Ég var undrandi þeg-
ar ég las í fyrrnefndri Vikugrein
að tollur af fatnaði væri ekki
meiri en 90%. Ég hélt, eftir verð-
lægi hér að dæma, að hann væri
mikið hærri, og ef þetta er rétt
þá freistast ég til þess að álíta
að hér sé um meiri háttar okur að
ræða.
Ef það kemur fyrir að innt sé
eftir því við afgreiðslufólk; hér,
að þessi eða hin varan sé nókkuð
dýr samanborið við það sem hún
kosti úti, eru svörin venjulega
þau, að það sé hægt að kaupa
nóg rusl fyrir lítinn pening í
stóru magasínunum úti þar sé
fjöldaframleiðsla og lélegar vör-
ur.
Ég hef töluvert kynnt mér
vöruverð í sérverzlunum úti og
þó vörur í sumum þeirra séu lít-
ið eitt dýrari en í umræddum
magasínum þá eru þær með
gjafverði móts við verðlag hér
heima.
Ég keypti 3 kjóla í sérverzlun
í Hamborg í haust, ég á nótumar
og get sýnt kjólana, þeir kostuðu
g VIKAN 18. tbl.