Vikan - 05.05.1966, Blaðsíða 7
87/—, 139/75 og 124/— mörk.
Ég fullyrði að sambærilegir
kjóiar væru í það minnsta þrisvar
sinnum dýrari hér heima, jafn-
vel þótt keypt væri efni og lát-
ið sauma þá hjá saumakonu, en
það er stundum heldur ódýrara,
og þar sem ég gaf samtals um
4 þúsund krónur fyrir þessa kjóla
tel ég mig hafa hagnazt um 8
þúsund krónur á kaupunum, ég
eyði aðeins % af mínum gjald-
eyri í þessi kjólakaup en hagn-
aðurinn gerir meira en að borga
16 daga ferðalag með Gullfossi
til þriggja landa. Ég vil einnig
taka það fram að fatnaður er
dýrari í Þýzkalandi en í Skot-
landi. Ég hef farið með Gull-
fossi til Skotlands á þriðja far-
rými og dvalið í Edinborg á með-
an Gullfoss fer til Danmerkur,
það er ótrúlega mikið sem hægt
er að fá fyrir 100 £. Ég hef
ferðazt um hálendi Skotlands í
heilan dag og ferðin kostaði að-
eins 1 £ og tvær góðar máltíðir
sem við keyptum á hótelum þar
sem bílarnir stönzuðu kostuðu
báðar annað £ til.
Ég er ekki í vafa um að ég hef
haft mjög góðan hagnað af þess-
um ferðum mínum, einnig hvíld-
ina og skemmtunina við að ferð-
ast, fyrir utan þá notakennd sem
því fylgir að þurfa ekki að láta
féfletta sig.
Eftirleiðis býst ég við að þurfa
að borga 90% toll af tæpum
helming af þeim vörum, sem ég
fæ fyrir minn gjaldeyri, en samt
held ég því fram að það borgi sig
að fara út til þess að kaupa fatn-
að, ef maður notar ódýrari ferð-
ir og sneiðir hjá dýrum hótelum.
Ég hef borgað 21 shilling fyr-
ir rúm og morgunmat, aðrar mál-
tíðir hef ég keypt á matstofum
stóru magasínanna, t.d. Wool-
worth í Edinborg og Karstadt i
Hamborg.
Ef til vill getur það orðið til
þess að innflytjendur athugi bet-
ur innkaup og álagningu ef fólk
heldur áfram að skreppa yfir
pollinn og kaupa sína vöru þar,
sem hagkvæmast er.
Húsmóðir í Hafnarfirði.
VILL EKKI GRÆNLAND.
Háttvirti Póstur!
Ég sá bréf í síðasta pósti frá
manni sem vill að við reynum að
fá yfirráð yfir Grænlandi. Ég
vildi nú bara segja að þessi mað-
ur vissi ekki hvað hann væri að
biðja um. Ég held að hann ætti
að kynna sér hvað Danir tapa á
því að halda Grænlandi. Það eru
margar milljónir (d.kr.), og ég
held að viðættumfrekaraðstyðja
lönd í að öðlast sjálfstæði en að
reyna að ná yfirráðum yfir þeim.
Eiríkur Græni.
HLYNNTUR BJÓRNUM.
f 13. tbl. Vikunnar sá ég í Póst-
inum, hótun frá G.B. á þá heið-
ursmenn er standa að bjórfrum-
varpinu. f greininni segist G.B.
ekki kjósa þá eða flokk þeirra
við næstu kosningar. Ég er ansi
viss um að það væri meiri hluti
sem kysi þá ef þeir kæmu bjórn-
um á og það mikill meirihluti.
Svo talar G.B. um hina indælu
íslenzku æsku sem myndi hætta
við gosdrykkina og fara að
drekka bjórinn, þvílíkt vantraust
sem þessi G.B. sínir okkar indælu
æsku, það er hrein skömm að
þessu.
Með þökk fyrir birtinguna.
G.Ó.
BLÖM
VIKBNNAB
BLÓM VIKUNNAR.
Sumir segja að frystihúsaeig-
endum í Vestmannaeyjum þyki
vænna um aurana sína en öðrum
mönnum. Að minnsta kosti þyk-
ir þeim mjög vænt um þá. Einu
sinni fór einn þeirra að klífa f jöll,
sem er stórum áhættusamara en
að reka frystihús. Enda varð
manninum fótaskortur, hann fór
á hausinn — ekki fjárhagslega,
heldur steyptist hann fram af
klettum og var nægilega lengi í
hrapinu til þess að geta beðið
bænirnar sínar á leiðinni. Hann
gerðist meira að segja höfðing-
legur og sagði: „Elsku guð, nú
skal ég gefa þér allar eigur mín-
ar ef ég slepp lifandi, frystihús-
ið og allt heila klabbið". i sama
bili hafnar hann í skriðu neðan
við klettana, sumir segja á syllu,
— og stóð upp ómeiddur. Þá
varð forstjóranum að orði: „Hu
— aldrei má maður segja neitt að
gamni sínu“.
Einn úr Eyjum, sem ekki vill
láta nafns síns getið.
BAHCO
'bankett
VIFTAN YFIR ELDAVÉLINA
Hreint og hressandil Það er gaman að matreiða { nýtizku cldhúsi, þar sem loftið
cr hreint og ferskt. Það skapar létta lund, vinnugleði og vellíðan, hvetur hug-
myndaflugið — og matarlykt og gufa setjast ekki í nýlagt hárið né óhreinka föt
og gluggatjöld; málning og heimilistæki gulna ekki og lircingerningum fækkar.
Raunveruleg loftræsting! Með Bahco Bankett fáið þér raunverulcga loftræstingu,
því auk þess að soga að sér og blása út gufu og matarlykt, sér hún um eðlllega
og hcilnæma endurnýjun andrúmsloftsins f eldhúsinu og næstu herbergjum. Sog-
getan er ein af ástæðunum fyrir vinsældum Bahco Bankett.
Hljóð! Þrátt fyrir soggetuna lieyrist varla í viftunni. Bahco Bankett er scnnilega
hljóðasta viftan á markaðinum.
Engin endurnýjun á síum! Athugið sérstaklcga, að Bahco Bankett þarfnast engrar
endurnýjunar á lykt- og gufueyðandi síum. sem dofna mcð tímanum. Bahco Bank-
ctt hcfur engar slíkar, cn heldur alltaf fullum afköstum — kostnaðarlaust.
Fifusíur úr ryðfríu stóli! Balico Bankett hcfur hins vcgar 2 stórar, varanlegar fitu-
síur úr ryðfríu stáli. sem ekki cinungis varna því, að fita setjist innan í útblásturs-
stokkinn, heldur halda viftunni sjálfri hreinni að innan, því að loftið fer fyrst
gegnum síurnar. Fitusíurnar cru losaðar með einu handtaki og einfaldlega skolaðar
úr heitu vatni stöku sinnum.
Rétt vinnuhæð, innbyggt Ijós og rofar. Lögun Bahco Bankett skapar óþvingað
svigrúm og sýn yfir cidavélina. Innbyggt ijós vcitir þægilega lýsingu og rofarnir
fyrir ijós og viftu eru vel og fallcga staðsettir.
Falleg, stilhrein og vönduð — fer alls staðar vel! Bahco Bankctt er teiknuð af
hinum fræga Sigvard Bcrnadotte, cins og mörg fallegustu hcimilistækin 1 dag, og
er sænsk úrvalsframleiðsla frá einum stærstu, rcyndustu og nýtfzkulegustu loft-
ræstitækjaverksmiðjum álfunnar.
BAHCO ER BETRI. Það er einróma álit neytendasamtaka og reynslustofnana ná-
grannarikjanna, að útblástursviftur cinar veiti raunverulega loftræstingu. Hagsýoir
húsbyggjendur gera þvf ráð fyrir útblástursgati eða sérstökum loftháfl. Þeir, sem
endurnýja eldri cldhús, brjóta einfaldlega gat á útvegg cða ónotaðan reyliháf. 8Ú
fyrirhöfn margborgar sig.
NÝJUNG: Bahco raðsfokkar. Við liöfum nú á boðstólum létta og sterka, hvlta
plaststokka með beygjum og öðru tilheyrandi, sem hver og einn getur raðað saman,
án minnsta erfiðis eða sérstakra verkfæra.
Veljið því rétt, veljið viftu, sem veitir
raunverulcga loftræstingu og heldur allt-
af fullum afköstum — kostnaðariaust.
Veljið BAHCO BANKETT.
• •
Komið, skrifið eða útfyllið úrklipp-
una og fáið allar upplýsingar um
Bahco Bankett, stokka, uppsetningu,
verð og grefðbfuskilmála.
SÍMI 24420. SUÐURGÖTU 10. RVfK.
~ •- * .jm> s\
Sen'díð undirrít. Öahfeo Efeúfk'ettt myrtdalista m'eð ðllum uppfýslngufrt:
Nbfn:..............................................................................
HéimifTsfáriö:...............r a. ........................................
Til Fönix s.f., p'ósthölf 1421, Rfeykfavík. V-16
1
VIKAN 18. tbl. rj