Vikan - 05.05.1966, Page 11
■O Skrifstofa húsbóndans er eins og minjasafn úr
öllum heiminum. Þarna eru sklldlr og spjót vilii-
manna, dýrafeldir og lagsvcrS.
o Nokkurra ára mynd af fjölskyldunni: Halla,
Davíð og Hal.
efni líkar ekki, þá er svo auðvelt að snúa
takkanum og velja eitthvað annað. Og sjón-
varpið fylgist vel með því hvort þættirnir
eru vinsælir. í Kaliforníu er hægt að velja
um tíu sjónvarpsstöðvar og hver stöð hefur
fjölbreytt efni.
— Er mikil vinna að undirbúa svona þátt?
— Það er óhemju mikil vinna. Hal var
áður vanur að sýna ferðamyndir og þá
talaði hann jafnframt á sýningum og fékk
góða æfingu. Hann er mjög lipur ræðumaður.
Nú er þetta auðvitað allt orðið miklu auð-
veldara en það var fyrst hjá okkur. Það gerir
áralöng æfing.
— Og komið þið alltaf fram sjálf í mynd-
inni?
— Já, við segjum æfinlega nokkur orð
á undan sjálfri myndinni.
— Og þið eigið heima í Los Angeles?
— Já, nánar tiltekið við Don Diablo Drive.
— Viltu segja mér eitthvað um húsið ykk-
ar?
— Ja, hvað skal segja, það er 240 fer-
metrar að flatarmáli og allir veggir eru þakt-
ir með ýmiskonar gripum sem við höfum
safnað á ferðum okkar víðsvegar um heim.
— Húsið er þá orðið hálfgildings safn?
— Já, og það er orðið of lítið. Nú ætl-
um við að fara að byggja stærra hús. Ég
vona að það verði eitthvað farið að gerast
í því um það leyti sem þetta kemur í Vik-
unni.
— Vinnur þú eitthvað sjálf að heimilis-
störfum?
— Ó já, reyndar geri ég öll húsverkin
sjálf. Ég elda t.d. allan mat og þó að það
kunni að hljóma ótrúlega, þá baka ég á
hverjum degi, nostra meira að segja við
það og prófa ýmislegt nýtt. Hinsvegar hefi
ég stúlku, sem kemur einu sinni í viku til að
skúra gólf og vinna þessháttar störf fyrir
mig.
— Hvernig gengur dagurinn fyrir sig hjá
þér, þegar þú ert heima?
— Ef ég ætti að lýsa ofur venjulegum
degi þá mundi ég segja, að hann byrjar
með því að ég fer á fætur, kortér fyrir sjö,
nema um helgar. Ég byrja á því að búa til
morgunverð því ég legg áherzlu á það að
drengurinn byrji daginn með því að borða
vel. Tuttugu mínútum fyrir átta ek ég svo
Davíð í skólann, en það er um það bil 10—11
km. Hann er búinn í skólanum um kl. 4
síðdegis og kemur heim með strætisvagni.
— En hvað svo, þegar þú ert búin að koma
Davíð í skólann?
— Þegar heim kemur, þá byrja ég á því
að lesa blöðin og fá mér kaffi. Um það
leyti er klukkan orðin 9. Þá fer ég að laga
til í húsinu, en Hal er farinn að vinna, hann
byrjar að jafnaði kl. hálf 9 og er búinn að
koma einhverju í verk kl. 9, þegar síminn
byrjar að hringja.
VIKAN 18. thl.