Vikan - 05.05.1966, Blaðsíða 31
fram þegjandi. Lucy var þakk-
lát fyrir þessa þögn, hún gat þá
litið út um gluggann og reynt
að átta sig. Það höfðu orðið
miklar breytingar á þessum fimm
árum og hún fór að hugsa hvort
hún hefði ekki breytzt sjálf. Það
hlaut að vera spegill í þessari
dýru tösku sem hún hélt á. Hún
var úr krókódílaskinni og staf-
irnir L.T., líklega Lucy Tilsey,
voru úr gulli. Það leit út fyrir
að þessi taska tilheyrði henni,
þótt hún væri sjálf ókunn þess-
ari persónu sem hún var nú.
Hún hlaut að hafa misst minn-
eða í Portofino, vor í París. Hún
sá fyrir sér alla ferðapésa sem
hún hafði skoðað um ævina, það
var eins og þessir staðir yrðu
ljóslifandi. En samt gat hún ekki
munað.
Ég skal, hugsaði hún reiðilega.
Ég vil ekki gleyma þessu. Ég
gæti líka hafa verið ógleyman-
leg sjálf.
Maður hennar opnaði bílhm-ð-
ina. — Jæja, ertu ekki að koma?
— Auðvitað sagði hún áköf og
stökk út. — Ég er að koma.
Tilhlökkun og ósegjanleg gleði
greip hana.
skrifað neitt, sagði hún og
kreppti höndina utan um miðann.
Ef þetta væri rithönd hennar
sjálfrar gat það verið að hún
rækist á eitthvað sem hún gæti
áttað sig á.
— Ég gæti ekki hugsað mér
að gleyma því líka, sagði hann.
— Góði, sagði hún biðjandi,
— kveiktu.
Hún heyrði klikkið þegar hann
kveikti. Ljósið flæddi yfir and-
dyrið og hún rak sjálf upp ó-
skaplegt öskur, og henni fannst
blóðið storkna í æðum sínum.
Það tók hana nokkur augnablik
ekki neitt. Ég man ekki einu
sinni eftir þessari íbúð.
— Þú mundir eftir fuglunum,
rétt núna, sagði hann til árétt-
ingar.
— Það er vegna þess að ég sá
þá í sjónvarpinu, sagði hún og
fann um leið að þetta var ekki
sannfærandi og að hann trúði
henni ekki. Það hlaut að vera
einhver leið til að sannfæra hann.
Hún reyndi aftur. — Frá því
augnabliki að ég sá þig í lest-
inni fyrir fimm árum og fram
á þennan dag, man ég ekkert,
þetta er allt hulin ráðgáta fyrir
Sklftilyklar og rörtengur.
NORSKúrvals verkfseri...
Umbocfsmenn á íslandi.........
K.Þorstelnsson & Co.umbods-hefldverzl.
ið, það var eina skynsamlega
skýringin. Hún vafði að sér loð-
kápimni og hugsaði með sér að
það væru til verri lífskjör en það
að vera eiginkona milljónara.
Bíllinn nam staðar við stóra
íbúðablokk. Hún vissi það af
einhverjum ástæðum að þau
væru á leiðinni að þakíbúðinni.
í anddyrinu voru glærir veggir,
sem reyndust vera gríðarlega stór
fuglabúr, full af ótal tegundum
sjaldgæfra fugla. Dagstofan var
stór eins og danssalur og stórt
svefnherbergi þar innaf. Eld-
húsið var aftur á móti mjög
lítið, rétt til að nota þegar
David nennti ekki að panta mat
frá veitingastaðnum á neðstu
hæð. Af gríðarstórum svölunum
var útsýni yfir London....
í augnabliks óljósri gleði
fannst Lucy hún vera að fá
minnið. Hún hafði séð þetta allt
í sjónvarpsþætti. „íbúð David
Tilseys í London“.
Hún fann óljósan söknuð eftir
einhverju, sem hún gat ekki
munað greinilega. Sumar á Capri
David Tilsey fann það og
brosti, og með þessu brosi hvarf
drembilegi svipurinn af ásjónu
hans. Hann var ákafur og ó-
segjanlega blíður, þegar hann
leiddi hana inn í húsið. Hann
fálmaði drengjalega við krag-
ann á loðkápunni og vafði honum
þéttar að henni.
— Það er kalt, ástin mín, —
láttu þér ekki verða kalt.
Lucy hugsaði með sér að hann
hlyti að elska hana heitt.
Þau fóru í sjálfvirkri lyftu
upp. Lucy var búin að gleyma
að það var gengið beint inn í
anddyrið á íbúðinni, og þegar
þau komu inn, var svarta myrk-
ur. Hún var ekki viss um að
það væri hollt að vera ein með
honum í myrkrinu. — Ætlarðu
ekki að kveikja, spurði hún.
— Eftir augnablik, sagði hann.
— Segðu mér fyrst að þú hafir
ekki meint það sem þú skrifaðir
á þennan miða. Han opnaði lófa
hennar og þrýsti pappírskúlu í
hönd hennar.
— Ég man eki til að ég hafi
að átta sig á því sem hún sá.
— Ó, það eru fuglarnir, sagði
hún máttvana. — Ég mundi ekki
eftir fuglunum.
Bak við glervegginn var stór-
kostlegur skógur í smámynd, út-
búinn af mannahöndum. Milli
greinanna flögruðu alla vega litir
smáfuglar og skræktu reiðilega,
sýnilega ofsareiðir yfir þessari
truflun á svefnró þeirra.
David Tilsey hló. — Við vökt-
um þá. Þeir hata okkur.
Hann fór að hjálpa henni úr
loðkápunni, dró hana niður af
öxlum hennar, þangað til hann
hélt handleggjunum föstum. Þá
þrýsti hann henni að sér. —
Velkomin heim, Lucy....
— Gerðu þetta ekki, sagði hún,
— góði, gerðu þetta ekki. Ég
þarf að segja þér svolítið.
— Segðu mér bara að þú hafir
ekki meint það sem þú skrifaðir
á miðann, ekki síðustu línuna.
Segðu að þú hafir ekki meint
það... .*
— Ég er búin að segja þér það
áður, sagði hún, — að ég man
mér. Reyndu að skilja mig.
— Gleymt? Engar tilfinningar
gagnvart mér eftir? Ég trúi þér
ekki Lucy, ég hreinlega trúi
ekki orði af þessu.
Hún hristi höfuðið hjálpar-
vana. — Þú hlustar ekki á það,
sem ég er að segja.
Hann sleppti henni. Kápan féll
í hrúgu á gólfið. — Ó, þessir
háværu andstyggilegu fuglar,
sagði hann. — Einn góðan veður-
dag hengi ég þá alla.
Hún skalf. Það var ekkert
varnarlaust eða viðkvæmt við
hann núna. Hann leit út fyrir
að geta framkvæmt þetta ódæði
strax. Ég hefi gert hann mjög
reiðan, hugsaði Lucy vesældar-
lega. Hann trúir því aldrei að
ég sé að segja sannleikann.
Hvernig á ég að láta hann trúa
mér.
— Farðu inn og skiptu um
föt, ef þú villt, sagði hann hryss-
ingslega. — Ég er í þörf fyrir
eitthvað að drekka. Ég skal ná í
drykk fyrir þig líka....
VIKAN 18. tbl. 01