Vikan


Vikan - 05.05.1966, Side 34

Vikan - 05.05.1966, Side 34
með einrai stroku Hið nýja Handy Andy hefur gjörbreytt heimilisstörfunum í hverju því landi, þar sem húsmæður leggja sérstaka rækt við hreinlæti heimila sinna. Handy Andy hreins- ar málaða veggi og vinnur aðrar hreingern- ingar yðar á augabragði — og árangurinn er ótrúlegur. Handy Andy er spameytið, því að það er svo sterkt, að aðeins lítið magn er notað hverju sinni. ★. Málaðir veggir. Aðeins fáeinar strokur með Handy Andy — beint úr flöskunni —■ og veggirnir eru hreinir, sem nýir ★_ Baðherbergi. Handy Andy er sjálfkjörið fyrir baðker, þvottaskálar, veggflísar, krana og glugga ★Eldhús. Handy Andy hreinsar fituga ofna fljótt og auðveldlega. ★. Gólf. Handy Andy hreinsar gólfdúka og gólfflísar fljótt og full- komlega — og á sparneytinn hátt. Og það er óþarfi að skola gólfið á eftir. urinn minn, sagði Phyllis, — sumir eru bara eiginmenn einn- ar konu, sumir eru það ekki. En þú hefur án efa lært það að vera umburðarlynd, svo þér er kannske alveg sama.... — Phyllis, sagði Lucy ör- væntingarfull, — ég verð að hitta þig. — Heyrðu mig nú, Lucy, sagði gamla vinkona hennar. — Það er heil veröld á milli okkar nú. Síðasta heimsókn mín sýndi það. Við skulum láta þar við standa. Lucy öskraði næstum því í símann. — Phyllis, heyrirðu það. Ég verð að hitta þig. — Ég sagði þér það, ég drekk aldrei. Hún lækkaði röddina og hélt áfram með erfiðleikum. — Phyllis, ég verð að hitta þig. — Mér þykir það leiðinlegt, sagði Phyllis, — ég hefi ekki tíma. Næstu viku sé ég ekki upp úr því sem ég hefi að gera. Eddie var að koma heim og segja mér að hann verði fluttur til Birm- ingham, til að vinna að rann- sóknum með dr. Miller. Ég verð að hraða mér við að ganga frá dótinu okkar.... — Þá það, sagði Lucy von- svikin. — Þá það, og hún lagði símann frá sér. Hún gat ekki snúið sér til neins annars, að- eins til ókunna mannsins sem beið hennar í næsta herbergi. Hvað var það sem hann var að segja í bílnum? Eitthvað um það að það hefði verið erfitt að finna hana. Ef hún hafði hlaupizt á brott frá honum, varð hún að fá að vita hversvegna. Við hurð- ina lá samanbögglaður bréfmiði, það hlaut að vera þessi miði, sem hann rétti henni. Hún tók hann upp. Skriftin var hennar, en hún kannaðist ekki við orðin. Kœri David, stóð þar. Einu sinni spurði ég þig, hvers- vegna þú hefðir svo marga Spegía i husum þtnum. Þii svar- aðir dálítið furðulega. Þú sagðir: „Ég verð að hafa þessa spegla til að fullvissa mig um að ég sé ennþá hér“. Ef til vill hefurðu þurft á öllum þessum konum að halda í sama tilgangi. Það hafa verið nokkur óþœgindi því sam- fara að vera frú David Tilsey. Tvennt er þó minnisstœðast: Annað er undirskriftin sem lög- fræðingurinn þinn heimtaði af mér á brúðkaupsdaginn, við- víkfandi einhverju ákvœði, ef til skilnaðar kœmi. Hitt var vit- undin um það að allir vinir þín- ir álitu mig annaöhvort fífl, eða rolu. Ég er hvorugt, — ég er bara óhamingjusöm frá upphafi hjóna- bandsins. Ég afsála mér öllum rétti til peninganna, Dave. Mig langar ékkert til að eiga pen- inga þína. Mín einasta ósk er að vera komin aftur í neðan- jarðarlestina, sem ég hafði svo mikla andstyggð á. Að fá tœki- fœri til að byrja að nýju. Ég vildi óska að ég hefði áldrei hitt þig■ Undirskriftin var, Lucy. Þegar hún hafði lesið bréfið, bögglaði hún það aftur saman og fleygði því á gólfið. Hana langaði til að henda því langt burt. Bréfið lenti við fætur mannsins sem var að koma inn úr dyrunum. — Ég tók heldur ekkert mark á þessu, sagði David Tilsey. Rödd hans var blíð, en svolítið þvoglu- leg. — Þú verður að láta þér nægja að hafa mig. Hann rétti henni glas. — Nei, þakka þér fyrir, sagði Lucy og fann um leið að það var kjánalegt að halda því fram að hún drykki ekki. Hún hafði lík- lega gert nokkuð mikið af því. — Kampavín, sagi hann, — til að halda upp á heimkomu þína Lucy, ástin mín. í einum af speglunum sá hún sjálfa sig rétta út hendina og taka við glasi. Hún sá að hann beið eftir því að hún byrjaði að drekka, áður en hann saup á sínu glasi. Hún horfði á þau bæði í speglinum og datt helzt í hug dádýr og tígrisdýr, sem virtu hvort annað fyrir sér yfir straumharða á. Hann er að bíða eftir því að ég klári úr glasinu, hugsaði hún. — Ertu hrædd við mig, spurði David Tilsey. — Hversvegna ætti ég að vera það. Han hristi sig. — Það er eng- in ástæða til þess. Komdu út á svalirnar. — í þessu veðri. Það varð svo skyndilega kalt. —Nei, ekki skyndilega, það hefur verið kalt alla vikuna. Lucy langaði til að gráta vegna þess að hann skildi ekki hvað hún átti við. — Handriðið er komið, sagði hann. — Mig langar til að sýna þér það. 34 VIKAN 18. tbl.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.