Vikan - 05.05.1966, Side 41
ég mér ekki Ijósa grein fyr-
ir fíflsku minni fyrr en eftir ferða-
lagið. Ég hefði sannarlega getað
komizt á kaldan klaka ef ég hefði
hitt virkilega forherta bófa þarna,
en einhverjar mannlegar taugar
hafa verið í byssumanninum, úr
því hann sendi ekki kúlu í gegnum
hausinn á mér.
Einu sinni fórum við saman á
skemmtistað að lokinni keppnisferð.
A þessum skemmtistað var asni
heldur illræmdur, en skepnan var
höfð gestum til ánægju og gátu
menn reynt að sitja skepnuna ef
þeir fengu skyndilega löngun til
þess. Asninn var hinsvegar mjög
hrekkjóttur og var oft fljótur að
losa sig við knapana. Nú fór það
svo að þrái Islendingsins kom upp
í hópnum. Asbjörn Sigurjónsson,
maður á annað hundrað kíló reyndi
fyrst og síðan Hjalti Einarsson,
markvörður og báðir fengu flug-
ferð af baki asnans. Asbjörn var
seigur sem fyrr og hélt sér nokkra
stund á baki, en varð um síðir að
viðurkenna asnann sem sinn ofjarl.
Nú fór Hannes Þ. Sigurðsson vinur
minn næstur. Hann reyndi alveg
nýja aðferð og heldur spaugilega.
Hann settist klofvega á bak asnan-
um og spennti fæturna undir kvið
hans. Líklega hefur asnann kitlað,
a.m.k. tók hann þegar mikinn fjör-
kipp, jós og prjónaði á víxl og
Hannes varð líka að viðurkenna
tap fyrir asnanum, liggjandi á einu
borðinu í veitingasalnum. Þannig
lauk þessum tilraunum okkar, en
það varð óeitanlega huggun að sjá
menn af mörgum þjóðernum fara
sömu leið þetta kvöld.
„Frelsið" margnefnda reyndi ég
einu sinni í A-Berlín. Við vorum ný-
lentir á Tempelhof-flugvellinum og
þegar við stigum á a-þýzka grund
tók ég að mynda af miklu kappi
flugstöðvarbygginguna og allt sem
ég sá í nánd. Ég var ekki lengi
búinn að stunda þessa „njósna-
starfsemi", þegar heill herflokkur
var búinn að umkringja mig. Illúð-
ugur foringi hrifsaði af mér mynda-
vélina mína. Hann hvæsti einhverj-
um orðum að mér. Ég skildi þau
ekki en taldi víst að samkvæmt
lögum alþýðuríkisins væri ég ber
orðinn að njósnum og yrði líklega
stillt upp við vegg við fyrsta hana-
gal næsta morgun og skotinn. Sá
illi fór að fitla við vélina, og nú.
opnaði hann belginn á myndavél-
inni. En hvað var að sjá? Engin
filma í vélinni. Það léttist brúnin á
hermönnunum. Málið var ekki af
alvarlegu tagi í þetta sinn".
— Erum við á réttri leið f hand-
knattleik f dag?
„Það mundi ég segja. Við höf-
um allt til að geta náð afbragðs
árangri í handknattleik. Veturinn
okkar er langur, þessvegna verður
keppnistíminn í handbolta líka lang-
ur, því hann er að mestu innan-
hússíþrótt hér, en lítið stundaður
úti, af hverju sem það nú stafar.
Efniviður er hér nægur, og áhug-
inn er stórkostlegur bæði hjá æsk-
unni og eins ágætri forystu hand-
Með fóflaga
og innleggi
Skóhúsið
ALLT TIL VATNAfÞRÖTTAR
Margar gerSir af
VATNABÁTUM, HRAÐBÁTUM,
GÚMMÍBÁTUM, SEGLBÁTUM
og HROGNKELSABÁTUM
mnnaí SU^ehbbm h.f.
Suðwlandsbraut 16 • Reykjavik • Sliwwfni: »Volwr« - Sltni 35200
CORCI TOYSn
w TUDI NUI »ICim*IO ■
PRECISION DIE-CAST SCALE MODELS
JAMES BOND
bíllinn er nú kominn í flestar leikfangaverzlanir.
VerS: kr. 138.-
Heildsölubirgðir: INGÓLFSHVOLL H.F. LAUGAVEGI 18 A