Vikan - 13.10.1966, Side 6
ccnDiicnnnn® ■pnj ÍÍP i
DlIIHUouuíIJí m JlÐ 1
HVERFISGÖTU 50. - SÍMI 18830.
Tveggja raanna svefnsófi
og samstæðir stólar
MiVEA
"■-/ ' wo^icw» Pijnrp'
—-...... . haut Oi ppwwn
Barnim líóur vel í húðinni!
Barniim líður vel-þegar notað er Nivea babyfein.
Hin reynda móðir veit hvers vegna hún velur
babyfein handa barni sínu: Þessar samstilltu fram-
leiðsluvörur - krem, olía, púður, sdþa - innihalda
allt, sem húðLeknirinn álítur nauðsynlegt hinni
viðkvamu húð barnsins. Börn, snyrt með babyfcin,
fd hvórki sœrindi, né rauða og bótgna húð.
Q
NIVEA
íaÉyföíi"
LÍTIÐ AÐ MARKA LOFROLLUR....
Kæra Vika!
Ég hafði afar gaman af grein-
um Dags úr austurvegi og er
sannfærð um, að þar er að fá
einhverja þá ljósustu og sönnustu
lýsingu á menningu og ástandi
austantjalds, sem finnanleg er á
vesturhveli jarðar. Það er lítið
að marka lofrollur þeirra, sem
fara um þessi svæði í þræl-
skipulögðum hóp — eða boðs-
ferðum og fá ekki að sjá annað en
vel smurt gangverkið í túrista-
hjólinu en borðalagðir pótintátar
eru á þönum til að allt fari sem
bezt úr hendi og sé sem snurðu-
lausast að viðlagðri dauðarefs-
ingu, ef þeim mistekst. Nei,
svona á að kynnast pappírsfarg-
aninu og tortryggninni, rétt eins
og Dagur Þorleifsson hefur gert.
Hafi hann þökk fyrir, og fari
fleiri slíkar reisur.
Snæfríður.
Dagur sver og sárt við leggur,
að hann fari aldrei aftur til fyrr-
greindra landa, fyrr en þá að
kapítalisminn hefur lagt þau und-
ir sig. Þar að auki er nokkurn
veginn brennt fyrir, að hann fái
vísum...
ANGELIQUE.
Kæri Póstur!
Mig langar til að skrifa þér
nokkrar línur, og þakka þér fyr-
ir margt gott. Og þó alveg sér-
staklega framhaldssöguna Angel-
ique. f öllum bænum byrjið þið
strax á næstu sögu þegar þessi er
búin. Farið þið nú ekki að klessa
einhverri sögu þar á milli. En
hvernig er það með litlu bækurn-
ar, sem þið fóruð að gefa út?
Það komu þarna fjórar með
stuttu millibili og svo ekki meir.
Á ekki að verða einhver breyting
á þessu? Ég veit að það hafa
verið fleiri en ég, sem langar til
að safna þeim. Og auðvitað
hvernig er skriftin? Vertu svo
blessaður.
Hafdís.
Nei, nú tökum við sögu á millí
— eina, ef ekki tvær! Angclique
hefur nú verið framhaldssaga hjá
okkur óslitið að kalla í næstum
30 mánuði, og þótt lesendurnir
séu ekki orðnir þreyttir á henni,
vill hún gjarnan fá að hvíla sig.
Og það er varla nema sanngjarnt.
— Nú hafa verið gefnar út alls
fimm Angeliquebækur á íslenzku
og sú sjötta er á leiðinni, síðan
koma hinar smátt og smátt, og
það má treysta því, að öll sagan
af Angelique kemur út í heftum
um það er lýkur. — Skriftin er
læsileg og nostursleg. en lýsir ef
til vill svolítilli tilgerð, eins og
oft vill verða hjá unglingsstúlk-
um, sem gera sér far um að skrifa
fallega.
MEIRA UM ANGELIQUE.
Kæri Póstur!
Ég vona þið látið okkur ekki
bíða lengi eftir næstu Angelique-
bók. Hvað heitir hún annars, og
hvern fjandann er Angelique þá
að gera af sér? Og meðal ann-
arra orða, hvað er að frétta af
Angelique kvikmyndum? Er
nokkur ný væntanleg? Væri ekki
tilvalið að stofna Angelique-vina-
félag hér á landi? Það gætu orð-
ið fjölmenn samtök. Og væri það
ekki góð hugmynd fyrir ferða-
skrifstofunar að stofna til hóp-
ferða á söguslóðir Angelique?
Þótt ég sé karlkyns, myndi ég
reyna að herða mig upp í slíkt
ferðalag, þó ég náttúrlega viti,
að þar yrðu stútungskerlingar í
méirihluta.
Með kærri Angeliquekveðju
Rescator.
Næsta Angeliquebók heitir Ang-
elique í byltingunni, og segir frá
afrekum hennar og skakkaföllum
í átökum kaþólskra og húgenotta
í Frakklandi. — Angeliquekvik-
mynd, Angelique og kóngurinn,
er væntanleg í Austurbæjarbíói
snemma á næsta ári, að því er
við bezt vitum, en við höfum
ckki haft fréttir af fleiri kvik-
myndum um hana. — Hugmynd-
inni um Angeliquevinafélag er
hér með komið á framfæri, og
sömuleiðis ábendingunni til
ferðaskrifstofanna, en við erum
ekki undir það búin að fallast
á, að stútungskerlingar yrðu þar
í meirihluta. Eftir því sem við
höfum sannfrétt, eru til Angel-
ique aðdáendur á öllum aldri og
háðum kynjum — og þeir ekki
svo fáir.
MEÐ LEYFI TIL AÐ DREPA.
Kæri Póstur!
í nýútkominni Viku var ég að
lesa pistil í fullri alvöru eftir
6 VIKAN