Vikan - 13.10.1966, Blaðsíða 7
JWURINN
G.S., „Með leyfi til að drepa“.
*“ Pistill þessi fjallar um James
Bond og hans líka og er í sama
dúr og reiðilestur þess ágæta
klerks Árelíusar í útvarpinu á
dögunum. Að vísu bregður fyrir
meinloku í pistli G.S., þar sem
hann lætur „Manninn frá Istan-
bul“ koma frá Singapore, en það
skiftir svo sem ekki máli. Það
sem ég vildi sagt hafa er þetta:
Bæði klerkurinn og G.S. taka
fyrirbrigðið James Bond alltof
hátíðlega. „His cruel mouth“ og
önnur grimmdarsymból eru ekk-
ert einsdæmi nú á okkar stríðs-
öld, allir tímar hafa átt hliðstæð-
ur. Við getum til dæmis rifað
upp hetjusögur fyrri alda, þar
sem ofurmenn réðu niðurlögum
dreka og illvætta, sá er helztur
munurinn nú að unglingar vorra
daga trúa ekki lengur á óvættir
nema þær séu útskýrðar með ein-
hverri tækni og hún kemur ekki
af sjálfu sér, þess vegna verða
vondir menn að standa á bak við
hana og hafa stjórn hennar með
höndum. Eða lítum til dæmis á
þessi litlu sætu ævintýri, sem
okkur voru sögð í bernsku, um
Hans og Grétu, sem vond kerling
úti í skógi ætlaði að steikja og
éta (hafði hún kannski ekki
„cruel mouth“, að ætla að gapa
yfir vesalings sakleysingjun-
um?), eða vondu drottninguna í
Mjallhvit, sem hafði eiturmorð
fyrir sérgrein, nú eða þá úlfur-
inn í Rauðhettu, sem gleypti allt
kvikt, sem hann komst yfir, var
hans „mouth“ ekki „cruel“? En
eins og í James Bond sögum nú-
tímans sigrar hið góða venju-
!ega, þótt meðulin séu ekki beint
úr guðsorðabókum, ég er að vísu
tekinn að ryðga í barnaævintýr-
unum, en ég man ekki betur en
vondu kerlingunni í Hansi og
Grétu hafi verið hrundið í þann
steikarofn, sem hún ætlaði að
matreiða bömin í, að vondu kerl-
ingunni í Mjallhvítarævintýrinu
hafi verið þvælt fyrir björg og
framin seigdrepandi kviðrista á
úlfinum í Rauðhettu. Hvort
sem við erum ritstjórar eða
prestar verðum við að minn-
ast þess, að hverjir tim-
ar hafa sin sérkenni, og ævintýri
og sögur mótast af tíðaranda og
skilningi hverju sinni. Það er þó
áminning í rétta átt, að 007 þarf
að hafa leyfi til að drepa, hér
áður fyrr drápu söguhetjurnar þá
og það sem þeim sýndist án allr-
ar heimildar af hálfu stjórnar-
valda, aðeins ef sagan krafðist
þess. Annars er gaman að svona
prédikunum, þrátt fyrir allt er
maður svo gamaldags að vera
þeim sammála í aðra röndina.
Með beztu kveðju
Halldór Guðjónsson (en
það er ekki rétt nafn).
ViS höfum ekkert við þessa gagn-
rýni að athuga, annað en að undir-
strika það, sem keonur glöggt
fram í umræddum pistli, að
drápsaðferðir Bonds og Co eru
iðulega seindrepandi og kvala-
fullar, og það er það versta við
þær. Annars væri gaman að
heyra fleiri raddir um þetta mál
— og þær mættu gjarnan vera
undirritaðar með réttum nöfnum.
VAR HÚN KLIPPT?
Pósturinn, Vikunni!
Geturðu sagt mér, hvort sænska
myndin, sem sýnd var í Hafnar-
firði fyrir skemmstu, var klippt?
Ég var búinn að heyra að í
henni væru sérstaklega „djörf“
atriði, þannig að hún færi fram
úr öllu, sem til þessa hefði sézt
á hvíta tjaldinu, jafnvel því
svæsnasta frá Bergman. En svo
þegar ég sá hana, var þetta svo
sem ekki neitt, til dæmis ekkert
á móti dönsku myndinni, sem
sýnd var í Firðinum samtímis. En
ef þessi sænska mynd — 491
heitir hún — hefur verið klippt,
þá finnst mér það svívirðilegt
skemmdarverk. Mér finnst að
myndirnar eigi að koma heilar
og óklipptar til áhorfenda eða þá
að það eigi bara alls ekki að
sýna þær.
Bíógestur.
Eftir því sem við höfum fregn-
að, klippti hérlent kvikmynda-
eftirlit ekkert úr myndinni, en
það mun hinsvegar hafa verið
gert í Svíþjóð, áður en myndinni
var sleppt þar út á markaðinn.
Atriðið, sem út var klippt, hefur
sjálfsagt verið þó nokkuð svæs-
ið, því sænska kvikmyndaeftirlit-
ið ætti að vera hætt að kippa sér
upp við smámuni.
^bankett
Hreint og hressandi! Það er gaman að matreiða i nýtizku eldhúsi, þar sem loftið
er hreint og ícrskt. Það skapar létta lund, vinnugleði og vellíðan, hvetur hug-
myndafiugið — og matarlykt og gufa sctjast ekki í nýlagt hárið né óhreinka föt
og gluggatjöld; málning og heimilistæki gulna ckki og hreingerningum fækkar.
Raunveruleg loftræsting! Með Bahco Bankett fáið þér raunverulega loftræstingu,
því auk þess að soga að sér og blása út gufu og matarlykt, sér hún um cðlilcga
og heilnæma endurnýjun andrúmsloftsins i eldhúsinu og næstu herbergjum. Sog-
getan er ein af ástæðunum fyrir vinsældum Bahco Bankett.
Hljóð! Þrátt fyrir soggctuna heyrist varla í viftunni. Balico Bankett er sennílega
hljóðasta viftan á markaðinum.
Engin endurnýjun ó síum! Athugið sérstaklcga, að Bahco Bankctt þarfnast engrar
endurnýjunar á lykt- og gufueyðandi síum, sem dofna með tímanum. Balico Bank-
ett hefur engar slíkar, en heldur alltaf fullum afköstum — kostnaðarlaust.
Fitusiur úr ryðfríu stóli! Balico Bankett hefur hins vegar 2 stórar, varanlegar fitu-
síur úr ryðfríu stáli, sem ekki einungis varna því, að fita setjist innan í útblásturs-
stokkinn, heldur halda viftunni sjálfri hreinni að innan, því að loftið fer fyrst
gegnum siurnar. Fitusiurnar cru losaðar með einu handtaki og cinfaldlega skolaðar
úr heitu vatni stöku sinnum.
Rétf vinnuhæð, innbyggt Ijós og rofar! Lögun Bahco Bankett skapar óþvingað
svigrúm og sýn yfir eldavélina. Innbyggt ljós vcitir þægilega Iýsingu og rofarnir
fyrir ljós og viftu cru vcl og fallcga staðsettir.
Falleg, stílhrein og vönduð — fel a!ls staðar vel! Bahco Bankctt er teiknuð af
hinum fræga Sigvard Bernadotte, eins og mörg fallegustu heimilistækin í dag, og
er sænsk úrvalsframleiösla frá einum stærstu, reyndustu og nýtízkulegustu loft-
ræstitækjaverksmiðjum álfunnar. _______________ ____________
BAHCO ER BETRI. Það er einróma álit neytendasamtaka og reynslustofnana ná-
grannaríkjanna, að útblástursviftur einar veiti raunverulega loftræstingu. Hagsýnir
húsbyggjendur gera því ráð fyrir útblástursgati eða sérstökum loftháfi. Þeir, sem
endurnýja cldri eldhús, brjóta einfaldlega gat á útvegg cða ónotaðan reykháf. Sú
fyrirhöfn margborgar sig.
NÝJUNG: Bahco raðstokkar. Við höfum nú á boðstólum létta og sterka, hvíta
plaststokka með beygjum og öðru tilheyrandi, sem hver og einn getur raðað saman,
án minnsta erfiðis eða sérstakra verkfæra.
Veljið því rétt, veljið viftu, sem veitir
raunverulega loftræstingu og heldur allt-
af fullum afköstum — kostnaðarlaust.
mS*' ' ' '' sa__, ..._,
Veljið BAHCO BANKETT.
• •
Komið, skrifið eða útfyllið úrklipp-
una og fóið allar upplýsingar um
Bahco Bankett, stokka, uppsetningu,
verð og greiðsluskilmála.
SÍMI 24420. SUÐURGÖTU 10. RVÍK.
Sendið undirrit. Bahco Bankett -myndalista með öllum upplýsingum:
Nafn: ............... ...............................................
Heimilisfang-.........................................................
Til Fönix s.f., pósthólf 1421, Reykjavlk.
VIKAN 7