Vikan - 13.10.1966, Síða 8
HEILSAN FYRIR ÖLLU!
SMJÖRLÍKI
SMíörUK«
FinCRH FITI
„Feeling pieces". Það er enska
heitið á hlutum, sem fólk hefur
á milli handanna bara til að
hafa eitthvað á milli handanna.
Eitt mesta vandamál leikara er
sagt vera, hvað þeir eigi að gera
af höndunum á sér. Þegar fólk
kemst í geðshræringu, nýr það
saman höndum eða klemmir þær
saman. En strax og það nær
tökum á einhverjum hlut, þá
verður því rórra. Það er engu
líkara en æsinginn leiði þá út
úr líkamanum. Mörg dæmi slíks
blasa við hvarvetna í hinu dag-
lega lífi. Mörgum verður fyrir
að hnuðla hattinn sinn, þegar
þeim verður órótt. Vindill
Churehills kom honum að svip-
uðu gagni, svo og eplið Newton,
fiðlan Einstein og sverðið Karli
tólfta. Napóleon mikli stakk
hendinni inn undir vestið í stíl
við Talma, einn frægasta þá-
verandi leikara Frakka.
Hvað stórmenni þessi snerti,
virðist svo sem nefndir uppá-
haldshlutir hafi ekki einungis
verið þeim til hugarhægðar,
heldur hafi það að þukla þá, gert
þeim fært að einbeita sér.
Margt fleira má tína til um
hina geysilegu þörf mannsins
fyrir að hafa eitthvað til að
þreifa á. Smábörn kreista bangs-
ana sína, kaþólikkinn fingrar við
talnabandið og finnur þar kraft-
birtingu guðdómsins, bílstjórinn
klemmir fingurna utan um stýr-
ishjólið, bófinn strýkur skamm-
byssuna sína og svona mætti
lengi telja. Við getum jafnvel
gengið svo langt að nefna lampa
Aladdíns og hauskúpu Hamlets;
hvað voru þessir frægu hlutir
annað en „feeling pieces“? Þörf-
in fyrir slíka hluti er jafnmikil
á öllu skeiðinu frá vöggu til
grafar.
Nú á dögum er mikið talað um
stress, hið sívaxandi álag á
taugar mannsins, sem hraðinn í
hringekju nútímalífsins hefur í
för með sér. „Feeling pieces“ eru
smávegis öryggisventill gagn-
vart stressinu. Hæpið er þó að
gera sér vonir um, að hægt sé
að losa mannkynið við, allan
þess taugatitring með því einu
að fá hverri manneskju einhvern
lempilegan hlut að þukla á. En
þótt þetta tækist í bráðina, sem
raunar er varla hugsanlegt, þá
liði varla á löngu áður en þessir
þægilegheitahlutir færu sjálfir
að verða orsök að stressi. Menn
færu þá að keppast um að eiga
sem fínastan „feeling piece“,
líkt og nú um bíla eða mublur,
og innan skamms sætum við í
sama feninu og í upphafi. Nei,
það er hægara sagt en gert að
hafa upp á einhverju krafta-
verkameðali, sem læknaði hið
sístressaða taugakerfi mannsins
í eitt skipti fyrir öll, en huggun
má hitt vera, að alltaf verða fyrir
höndunum einhverjir smáhlutir
til að þukla og draga úr mestu
spennunni. ☆
Hin fiölhæfa 8-11
verkefna trésmiiðavél:
Bandsög, rennibekkur,
hjólsög, frœsari, band-
slípa, diskslípa, smergel-
skífa og útsögunarsög.
Fóanlegir fylgihlutir:
Afréttari þykktarhefill
og borbarki.
Fulikomnasta
trésmíðaverkstæðið
á minsta góltfleti
fyrir heimili, skóla og verkstœði
EMCO MAXIMAT AL-
HLIDA RENNIBEKKUR.
verkfœri & járnvörur h.f.
Tryggvagötu 10. — Símar 15815 og 23185.
8 VIKAN
VIKAN 9