Vikan - 13.10.1966, Blaðsíða 21
Sigurður Karlsson var að setja
saman raðsettið í einni af hús-
gagnaverzlunum borgarinnar,
þegar myndin var tekin. Þama
sést hvernig borðplatan fellur á
grindina milli sætanna.
HOS OG HOS-
BÓNAÐOR_
Ný gerð
raðhús-
gagna
vekur
athygll
Við höfum einhverntíma og
jafnvel oftar en einu sinni
kvartað yfir því í þessum
þætti að fjölbreytnin
mætti vera meiri á íslenzk-
um húsgagnamarkaði. Þar
sést ár eftir ár ekkert annað en
sömu tekkhúsgögnin — sem oft
eru því miður rándýr, enda þótt
þau séu naumast vönduð að neinu
leyti. Það hefur tíðkazt og ver-
ið látið óátalið að framleiðend-
ur flyttu heim með sér stóla frá
Norðurlöndum rifu þá í tætlur
og framleiddu síðan eftir þeim.
Hafa framleiðendur ekki þótzt
þurfa að vera háðir þeim hópi
manna, sem lagt hefur í að læra
húsgagnateikningar eða innan-
hússarkitektúr. Þó eru þar vissu-
lega nokkrar undantekningar og
hafa meðal annars verið á mark-
aði á undanförnum árum hús-
gögn eftir Svein Kjarval. En
varla verður það til að örva unga
menn til þess að læra þetta fag,
ef framleiðendur hunza þá og
telja sér betur borgið með því að
stela hugmyndum annara. Þess-
vegna ber að fagna því, þegar
nýjar hugmyndir koma fram,
sem eiga sér íslenzkan uppruna.
<5
Sigurður sýnir, hvernig má með
einu liandtaki kippa sundur
grindinni sem heldur gafli eða
hliðarstykki. Uppröðunarmögu-
leikarnir eru mjög víðtækir og
sundurtekning og samsetning
tekur skamman tíma.
Sigurður Karlsson, húsgagna-
teiknari, sem nú er búsettur í
Vestmannaeyjum. hefur vakið at-
hygli fyrir að reyna nýjar leiðir
og beita hugmyndafluginu í þá
átt að búa til húsgögn við hæfi
yngri kynslóðarinnar; húsgögn
sem eru létt og færanleg og hægt
er að breyta eftir þörfum.
Nú hefur Sigurður teiknað og
hafið framleiðslu á nýrri gerð
raðhúsgagna, sem eru í senn
falleg og einföld og byggjast á
því að staðla nokkrar einingar,
sem lagðar eru til grundvallar.
Þessi húsgögn er hægt að kaupa
í einingum og bæta við eftir
hendinni; þau eru líkt og mekk-
Hér hefur raðsettinu verið stillt
upp í vinkil, en það mætti eins
stilla því upp í S eða U. Sófa-
borðið er búið til úr samskonar
einingum og sófinn og hjóna-
rúm eða eins manns rúm er einn-
ig hægt að búa til úr þessum ein-
ingum.
anó, þannig að raðað er saman
grind og má síðan raða á grind-
ina annaðhvort borðplötum eða
svampsessum fyrir sæti. Eins og
sést á myndunum eru þarna um
sést á myndunum er þarna um
sem hægt er að krækja í hliðar-
Framhald á bls. 41.
VIKAN 21