Vikan - 13.10.1966, Side 23
Kóreumenn i essinu slnu
Slasaðir norður-víetnamskir stríðsfangar, sem Bandaríkjamenn liafa
sleppt lausum, hökta á hækjum heimleiðis. Það fylgir sögunni að
margir þeirra neiti að hverfa heim, enda kæra yfirvöld lands þeirra
sig sjálfsagt lítið um að fá þá til baka, fyrst ekki er hægt að nota þá
lengur sem fallbyssufóður.
Stríðið í Víetnam tekur smám-
saman á sig alþjóðlegri svip, því
stöðugt fleiri þjóðir taka nú þátt
í því við hlið Bandaríkjamanna
og Suður-Víetnama. Ásralíumenn
hafa nú rúmlega fjögur þúsund
manna lið í landinu, og hefur það
þegar getið sér mikið frægðar-
orð, eins og Ástralíumenn hafa
yfirleitt gert, þar sem þeir hafa
tekið þátt í styrjöldum. Nýsjá-
lendingar og Filippseyingar hafa
einnig sent lið til Víetnam, en
rausnarlegastir að Könum sjálf-
um undanskildum hafa Suður-
Kóreumenn verið. Þeir hafa nú
um tuttugu og fimm þúsund
manna lið í landinu. Þeir kváðu
hafa vegið nærri þrjú þúsund og
fimm hundruð Víetkonga en ekki
látið nema þrjú hundruð manns
sjálfir.
Ummæli Víetkonga um Kóreu-
mennina sýna ljóslega, að þar
hefur skrattinn hitt ömmu sína
fyrir. Hafa kommarnir látið hafa
eftir sér, að Kórumennirnir séu
„óþægilegasti“ óvinurinn; þeir
séu fram úr hófi blóðþyrstir og
taki aðeins fanga til að kvelja
úr þeim lífið sér til dægradval-
ar. En svo grimmir sem Kóreu-
menn eru óvinum sínum, þá
hafa þeir þeim mun strangari
aga á mönnum sínum, séu þeir
meðal vina. Tveir kórenskir her-
menn, sem nauðgað höfðu víet-
nömskum kvenmanni, voru þann-
ig nýlega teknir af lífi samkvæmt
dómi herréttar úr eigin liði. Fór
aftakan fram að allri herdeild-
inni viðstaddri.
-----------------------------------s
Síðan síiffit
V______________________ J
Eitt af siö undrum
veraldar
Nýr „kólos“ á Rhodos fyrir 100
milljónir króna. Eitt af sjö undr-
um veraldar í fornöld var risa-
líkneskið mikla á grísku eyjunni
Rhodos. Nú hefur auðugur pelsa-
kaupmaður á Rhódos sett fram
hugmyndir um að láta byggja
risalíkneskið upp að nýju og efst
uppi, sennilega í heilabúi risans,
verður að sjálfsögðu veitingahús.
Ymsir aðilar í Grikklandi styðja
þessa hugmynd, sem þeir, þykj-
ast sjá fram á, að muni stuðla að
mjög auknum ferðamannastraum
til Grkklands og grísku eyjanna.
Sagt er að belgískur verkfræð-
ingur hafi fengið það verkefni
að gera allar teikningar að þess-
um nýja kólos á Rhodos og kostn-
aðurinn er áætlaður 100 milljón-
ir íslenzkra króna. Vafalaust er
þá miðað við að risalíkneskið
verði mun stærra en frelsisstytt-
an við New York, sem er 46
metra há. Þetta verður án efa
afspyrnu erfitt verk, ekki síst
vegna þess að enginn veit með
vissu hvernig þetta fræga risa-
líkneski fornaldarinnar leit út.
Að vísu eru til nokkrar kopar-
stungur frá miðöldum og eldri,
sem sýna einskonar gleiðstand-
andi sólarguð við innsiglinguna
á Rhodos. Þó munu flestir sagn-
fræðingar sammála um að þess-
ar myndir eigi ekkert skylt við
veruleikann en telja þó, að hinn
frægi kólos á Rhódos hafi cin-
hverntíma verið til og ef til vill
40 metra hár. Það var gríski
myndhöggvarinn Chares, sem
fékk þetta erfiða verkefni á sín-
um tíma, nánar tiltekið árið 290
fyrir Krist og styttan var reist
til minningar um umsátrina um
Rhodos árið 304 fyrir Krist.
Strax þegar verkið var fullgert
var það talið með sjö furðuverk-
um veraldar. Eftir því sem sög-
ur herma, féll líkneskið og eyði-
lagðist algjörlga í jarðskjálfta ár-
ið 224 f. Krist. Og- véfréttin í
Delfi varaði við því, að enn
verri ógæfa mundi lirjá eyjuna
Rhodos, ef líkneskið yrði reist
upp að nýju.
f afbrotaminjasafninu í lög-
reglustöðinni í Stokkhólmi er
hugvitsamlegt sjálfsmorðstæki,
sem hugvitsmaðurinn notaði að
vísu aðeins einu sinni, sem sé
fyrir sjálfan sig. Hann batt eters-
flösku með botninn upp á slá,
lítið eitt framan við sjálfa heng-
ingarólina, og úr flöskustútnum
lá dropaslanga ofan í klút, sem
hann hafði fyrir vitunum. Þegar
hann hafði komið snörunni fyrir
á réttum stað, opnaði hann fyrir
rennslið úr eterflöskunni, sem
von bráðar svæfði hann, svo hann
féll máttvana saman og snaran
vann sitt verk. Hann taldi, að
með þessu móti væri hægt að
fremja sjálfsmorð á þægilegan
hátt, og svo mikið er víst, að það
bar tilætlaðan árangur. Þar að
auki er þetta heppilegt tæki fyr-
ir sjálfsmorðskandídata, sem
hafa yfir lítilli lofthæð að ráða,
tækið gerir þeim kleift að gera
út af við sig t.d. með því að festa
flöskuna og snöruna við glugga-
kistu.
Þægilegt
sjálfsmorð