Vikan - 13.10.1966, Síða 26
jll
:• ........................
Reykjavík
- gömln
liverfiii
Tvær efstu myndirnar t.h.
Grímstaðaholtið byggðist á kreppu- £>
árunum, en mest var það efnalítið
fólk, sem þar byggði og húsin voru
eftir því: Örlítil bárujárnshús, sem þó
er enn búið í. Þarna stóð og stendur
enn Grimsby; þar bjó fólk á framfæri
bæjarins og þá var Grimsbylýður
frægt slagorð. Myndirnar eru teknar
við Þrastargötu á Grímstaðaholti.
„Á melnum“, frægt hús við
Ásvallagötu. Þar bjó Þórar-
inn á melnum, sem nýlega
er látinn í hárri elli.
Miðbær Reykjavíkur getur
naumast talizt glæsilegur,
sízt af öllu ef gægzt er á
bak við þau hús# sem út að
götunum snúa. Þessi hús
standa við Grettisgötu og
sum við Laugaveg ,en lengst
að baki sést ofan á Kjör-
garð. Þegar Grettisgatan
breikkar, hverfa þessi hús.
Að neðan: Sérkennilegasta
gata Reykjavíkur er án efa
Haðarstígur og sumir
mundu ef til vill einnig
telja Haðarstíg með hinum
fallegri götum. Gatan er
þröng og húsin mjög lítil,
en snyrtimennska er áber-
andi og gott viðhald. Ein-
hver hugmyndaríkur maður
hefur lagt til, að borgin
kaupi húsin upp og þarna
verði hafðir veitingastaðir
og smábúðir, án þess að
húsunum verði breytt. Það
mundi að minnsta kosti
verða eftirsótt af ferða-
mönnum.