Vikan - 13.10.1966, Page 29
hann. Tveri rússneskir sendi-
ráðsmenn, sem teknir voru hönd-
um í Kongó 1963, gleyptu svona
pappír.
Leyniskriftarpappír er önnur
tegund, sem njósnarar nota.
Hann er búinn til með það fyrir
augum og notaður til þess að
skrifa á svo ekki sjáist. Orðin
eru gerð sjáanleg með efnafræði-
legum aðferðum. Jafnvel vasa-
klútar geta verið hentugt tæki
fyrir kvennjósnara. Það hefur
komið fyrir að kvennjósnarar
hafa bróderað orðsendingar með
morse-skeytum í vasaklúta og
aðra dúka, sem landamæravörð-
um hefur síðan sézt yfir.
Við öll þessi tæki bætast svo
vopnabúnaður sjósnaranna, —
skotvopn, lagvopn, deyfilyf og
ýmisleg annað. Hér eru nokkur
dæmi:
Nú er verið að prófa í Banda-
ríkjunum hljóðlausa „byssu“,
se má að geta drepið mann án
þess að nokkur merki sjáist.
„Kúlurnar11 eru örsmáar nálar
og steindrepa, jafnvel úr fiarska.
Þeir fyrir austan tjald hafa
nokkurskonar blásturspípur,
sem notaðar eru af hinum svo-
kölluðu morðsveitum þeirra,
þjálfuðum morðingium sem
sendir eru til að þagga niður í
vitnum, flóttamönnum, og öðr-
um se.n taldir eru hættulegir. 1Q
sent. 1957 var hinn 55 ára gamli
svissneski verzlunarmaður Mar-
cel Leonold í Genf drepinn með
15 cm langri eiturör. sem skot-
ið var úr slíku blásturstæki.
Pípan var álíka stór og hjól-
dæla af venjulegri gerð og lík
að sjá.
Eiturgas, sem annaðhvort
tryllir menn eða drepur, er not-
að bæði fyrir austan og vestan.
Meðal þessara gastegunda er hið
svokallaða æðisgas, með því
mætti gera nær því alla menn í
stóru landi óstarfhæfa. án þess
nð nokkru skoti þurfi að hleypa
af.
f sambandi við þetta mætti
nefna sýklavopnin, sem fáeinir
njósnarar og skemmrlarverka -
menn gætu hafl 1 i 1 að dreifa
drepsóttum um stórt land.
Það c-ru noltkur ár síðan
smíðaður v»r í Bandaríkiunum
radar sem hægt er að bera á
sér. Hann er svo næmur, að það
er hægt að greina í honum mann
í 25 km fjarlægð.
Siónvarpsmyndavélar með lok-
aðri straumrás, sem geta sent frá
sér greinilegar myndir í niða-
myrkri, voru nýlega á sýningu
hiá General Electric í Banda-
ríkjunum.
Annað nýsmíðað í Bandaríkj-
unum er „sjónaukaaugað“, en
það er fjarstýrð sjónvarps-
myndavél, sem greinir allt sem
gerist á hring sem er tveir km
að þvermáli.
Ný rússnesk undra-myndavél
tekur milljón myndir á sekúndu.
Þær myndir sem vélin tekur
þannig upp á augabragði, tekur
þúsund klukkustundir að sýna
með venjulegri sýningarvél
(hálfan annan mánuð).
Englendingar eru að gera til-
raunir með litlar ljósmyndavél-
ar, sem hafa sjónarhorn, sem er
hvorki meira né minna en 186
gráður, þ.e.a.s. þær sjá meira
en hálfhring. Séu tvær slíkar
vélar látnar „snúa bökum sam-
an“, þá má fá mynd af öllum
sjóndeildarhringnum. Hver ein-
stök vél vegur 225 gr.
Nýsmíðað hylki á stærð við
jarðhnetu, sem kallast „sólar-
flaska“ mun bráðum gerbreyta
loftskeytasamböndum og gera
kleift að rannsaka kiarnaklofn-
un á nýjan hátt, sagði prófessor
Lester Field við tækniháskólann
í Kaliforníu nýlega. „Sólarflösk-
una“ má nota til að senda míkró-
bylgjur, sem draga nokkra kíló-
metra. Tækinu. sem tekur við
bylgjunum, má koma fyrir í
armbandsúri.
Nýtt japanskt rafeindatæki,
sem ber langt af transistorum,
mun brátt gerbreyta rafmagns-
iðnaði. Sá sem fann það upp er
41 árs gamall verkfræðingur að
nafni Leona Esaki og tækið heit-
ir Esaki-díóða.
Nýtt smæðarletur hefur verið
fundið uon í háskólanum í Tiib-
ingen í Þýzkalandi og er í tæki.
sem prentar minnstu bókstafi
sem til eru, — en þeir eru tvö-
þúsundasti partur úr miLlimetra
á hæð.
Niósnarar þeir, sem nú eru á
ferðinni. hafa þannig yfir b^sna
hugvitssamlegum og sérhæfum
útbúnaði að ráða. Því getur eng-
inn verið óhultur. •— Hvað veiztu
lesandi góður, nema öfundsjúk-
ur keppinautur hafi þegar kom-
ið sér upn öflueum tækniútbún-
aði til að njósna um hegðun
þína og hag? ☆
ðsiqrandi
Framhald af bls. 13.
hann dubbaður upp og farið á
honum til borgarinnar. Hvergi
var neitt farartæki að sjá nema
þýzka stríðsvagna og allsstaðar
voru þýzkir hermenn. Þýzk aug-
lýsingaspjöld á götunum, og á
opinberum byggingum voru
hengdar upp yfirlýsingar undir-
ritaðar af setuliðsforingianum.
Margar verzlanir voru lokaðar.
Þau fóru til gamals læknis, sem
þau þekktu, og hann staðfesti
grun þeir'ra. En hann var trú-
aður katólskur maður, og fékkst
ekki til að hjálpa þeim. Hvorki
dugðu bænir né grátur.
„Þér eruð ekki sú eina,“ sagði
hann. „II faut souffrir.“ (að þjást
og þola — hjá því verður ekki
komizt.)
Þau þekktu annan lækni lít-
ið eitt og fóru til hans. Þau
hringdu bjöllunni við dyr hans,
6 vinsælustu samkvæmisspilin í 1 kassa.
LUDO - MILLA - DAM - DERBY
GÆSASPIL - HALMA
Verð: kr. 175.00. - Spilareglur á íslenzku
fyigja
Fæst í flestum leikfanga- og ritfangaverzl-
unum.
A
Heildsölubirgðir:
PÁLL SÆMUNDSSON
LAUGAVEG 18 A.
SKOTMENN
skotfæri
riffiar
Cal. 22 L. R.
Model E-1 verð kr. 2.995.00.
Model A-6 verS kr. 4.840.00.
Útsölustaðir:
Apótek Austurlands, Seyðisfirði,
Sportvöruhús Reykjavíkur, Rafha-
húsinu við Öðinstorg, sími 16-4-88.
SPORTVÖRUHÚS fíEYKMÍKUR
Framleiðendur:
HAUSEMANN & HÖTTE
A7.STERDAM
VIKAN 29