Vikan - 13.10.1966, Page 32
Loidoi - Loidoi
I vetur hötum við ákveðið að efna til hópferða með reglulegu
millibili til London. Islenzkur fararstióri verður með í öllum ferð-
unum, fólki til leiðbeiningar og aðstoðar, auk þess sem hann mun
sýna fólki borgina. Farnar verða skoðunarferðir um bæinn og út
fyrir borgina.
Það er margt til að vera í London. Þar úir og grúir af leikhúsum,
sem b|óða upp á heimsfrægar stjörnur. Þar má sjá söngleiki, og
alls kyns leikrit, gömul og ný, alvarleg og létt.
Mörgum eru verzlanir efst í huga, og það er ævintýri líkast að
verzla við götur eins og Oxford Street, Regent Street og Bond Street.
Vöruvalið er mikið og verð yfirleitt hagstætt.
Allir kannast við vaxmyndasafn Madame Tassaud, þar sem sjá
má myndir allra frægustu manna, lifandi og látinna. Gaman er
að sjá Tower of London, sem er gamall kastali og fangelsi, vísinda-
safnið, þar sem sýndar eru helztu nýjungar á sviði vísinda, dýra-
garðurinn er einn sá bezti í heimi, og svo mætti lengi telja.
A hverjum laugardegi leika einhver af fyrstu deildar liðunum knatt-
spyrnu í London og menn geta séð fleiri íþróttir, svo sem kappreið-
ar og kappakstra.
Oll áherzla er lögð á að vanda sem bezt til þessara ferða. Búið
verður á fyrsta flokks hótelum, öll herbergi með baði, hótelin hafa
upphitun, sem misbrestur vill verða á í Bretlandi, fjöldi þátttak-
enda er takmarkaður við 25, til að tryggja það, að fararstjóri hafi
tíma til að sinna þörfum hvers einstaks farþega. Skoðunarferðir
eru farnar í þægilegum, nýtízku bílum, og í stuttu máli má segja
að við reynum allt sem við getum, til að gera farþegum ferðirnar
sem þægilegastar.
Farþegum í ferðum okkar til London, gefst meðál annars kostur á
að vera viðstaddir upptöku á sjónvarpsþáttum hjá B.B.C. sér að
kostnaðarlausu.
7.—14. október
4.—11. nóvember
2.— 9. desember
13.—20. janúar
10.—17. febrúar
25. marz— 1. apríl
14.—21. apríl
12,—19. maí
AthugiS að eftir sem áður höfum við á boðstólum hinar vinsælu
einstaklingsferðir til London, Glasgow og víðar.
LÖND & LEIÐIR
SlMI 20800 - 24313
STJÖRNUSPA*^
Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl):
Ýmislegt virðist hafa gengið úr skorðum, án þess að
þú fáir nokkuð að gert. Þú verður fyrir nokkrum
vonbrigðum með árangur verka þinna, en kunningj-
ar þínir reynast þér mjög hjálplegir.
Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí):
Þú ert of eyðslusamur. Þú skalt fara varlega í fjár-
málum, því líkur eru á að þú verður fyrir óvæntum
útgjöldum# Þú breytir nokkuð um áætlun, sem verð-
ur til mikils góðs. Heillalitur vikunnar er gulur.
Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní):
Þú munt á ný umgangast persónu sem þú hefur
saknað mjög undanfarið. Vinur þinn veldur þér
nokkrum ama, en það er eins og honum sé það
ósjálfrátt, svo þú verður að fyrirgefa honum.
Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí):
Þú eignast nýtt áhugamál og verður mikið upptek-
inn yfir því. Þú tekur að nema eitthvað. sem færir
þér mikla ánægju. Maður nokkur kemur þér í góð
sambönd sem þú skalt reyna að notfæra þér.
Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst):
Vandaðu mjög framkomu þína og forðastu að taka
skýrar álcvarðanir um álit þitt á hinum eða þess-
um. Það verður lögð fyrir þig gildra sem mikið
liggur við að þú standist. Þú skemmtir þér mikið.
Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september):
Þú lifir í sjálfsblekkingu sem getur orðið þér til
mikils trafala ef þú hristir hana ekki af þér og
horfir raunsærri augum á heiminn. Bezti vinur
þinn er ekki ánægður með tilveruna.
Vogarmerkið (24. september — 23. október):
Þú verður óvenju heppinn i vilcunni. en þú skalt
samt ekki láta það verða til þess að þú teflir á tví-
sýnu í viðskiptamálum. Þú verður áheyrandi að
samtali sem veldur þér miklum heilabrotum.
Drekamerkið (24. október — 22. nóvember):
Á vinnustað hefurðu stefnt að einhverju ákveðnu
marki, en skilningsleysi meðstarfsmanna þinna hef-
ur mjög dregið úr þrótti þínum. Reyndu að fá þér
eitthvað óskylt til að glíma við í fritímum þínum.
Bógamannsmerkið (23. nóvember — 21. des.):
Ovæntir atburðir mun koma fjölskyldu þinni í
uppnám, en öldurnar lægir von bráðar og allir
verða mjög ánægðir. Þér græðist fé á mjög fyrir-
hafnarlítinn hátt. Vinkona þín færir þér góðar fréttir.
Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar):
Þú kynnist hjónum mjög bráðlega sem eiga eftir
að hjálpa þér mikið á ýmsum sviðum. Eldri kona
kemur nokkuð við sögu þína fyrri hluta vikunnar.
Haltu smá vinaboð eitthvert kvöldið.
Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. -febrúar):
Reiddu þig ekki um of á loforð annarra, treystu á
sjálfan þig og ætlaðu þér ekki of mikið. Það gengur
mikið ó fyrir þér, en það er betra fyrir þig að
stilla þig svolítið og halda þig betur að vinnunni.
Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz);
Þú verður að rifja upp mál sem þér eru ógeðfelld.
Þú færð upplýsingar sem gætu orðið til að breyta
framtið þinni mikið. Ef þú þarft að taka ákvarðan-
ir þá reyndu að vera rólegur, á því getur oltið.
32 VIKAN