Vikan - 13.10.1966, Síða 37
að hún mundi ráðast á yður með
hníf.“
„Ekki er þetta mér að kenna.
Hvernig fréttuð þið það?“
„Stríðsfangi, sem þekkti hann,
flýði til Sviss og skrifaði henni
þaðan. Við fengum bréfið í
morgun. Það varð uppþot í
fangabúðunum af því að fang-
arnir voru sveltir, og þeir sem
fyrir því stóðu voru skotnir. Pi-
erre var einn af þeim.“
Hans þagði. Honum fannst
þetta maklegt.
„Við skulum láta hana ;iafna
sig eftir þetta,“ sagði frú Péri-
er. „Þegar hún er búin að því,
skal ég reyna að tala um fyrir
henni. Ég skal skrifa yður til,
hvenær yður er óhætt að koma
aftur.“
„Gott. Og þér ætlið að hjálpa
mér?“
„Það getið þér reitt yður á.
Við erum sammála hjónin. Við
höfum komizt að þeirri niður-
stöðu, að þetta verði að hafa sinn
húðargang. Hann er ekkert flón,
hann Périer minn, og hann segir
að nú sé víst ekkert hægt að
gera nema reyna að hafa sam-
vinnu við ykkur. Og þegar allt
kemur til alis hef ég ekkert á
móti yður. Ég held meira að
segja að þér verðið Annette
minni ekki verri eiginmaður en
kennarinn. Og auk þess fer
barnið nú bráðum að fæðast og
M
„Ég vona að það verði svein-
barn,“ sagði Hans.
Frh í næsta blaði.
Þau æt!a aS gjörbreyta
bióðskipulaginu
Framhald af bls. 5.
út dagblað, svo róttækt og um-
turnandi að aldrei hefur slíkt
sézt.
Próvos hefur enga lagalega
heimild til að gefa út blöð. Ýmis
eintök hafa verið gerð upptæk.
Það má búast við því hvenær p
sem er, að lögreglan komi til að
eyðileggja fjölritunarvélina og
brenna upplögin.
Þessvegna flytjum við stað úr
stað, segir Rob. Við erum aldrei
lengur en tvo mánuði á sama
stað og oftast dugir það. —- En
það fylgir okkur alltaf nokkur
ærusta. Við erum ekki af þeirri
manntegund sem læðist eins og
lús með saum.
Eitt ár er liðið síðan Rob stofn-
aði samtökin ásamt „trúbræðr-
um“ sinum Jasper Grootveld og
Roel van Duyn. Fyrst voru þeir
fámennir, og gerðu það fyrst að
dreifa flugmiðum og mála „Pro-
vos 12“ á húsveggi.
Nú eru orðin úr þessu öflug
samtök gegn borgaralegu sið-
læti og trú. Og það sem meira
er: þeir hafa fulltrúa í borgar-
stjórn Amsterdams, Bernhard de
Vries, 25 ára.
— Með þessu vildum við koma
til móta við þjóðfélagsskipulag
landsins, segir Rob. Annars er-
um við stjórnleysingjar og vilj-
um hvorki hafa landstjórn, þing
eða sveita- og bæjastjórnir. En
okkur þótti samt ráðlegt að bjóða
fram við bæja- og sveitastjórn-
arkosningar, því við höldum að
það muni styrkja aðstöðu okk-
ar.
15. maí var Bernhard de Vries
kosinn í borgarstjórn og fékk
hann 13000 atkvæði, en hefði
ekki þurf nema 10000 og það
þrátt fyrir það að fæstir í sam-
tökum þessum hafa náð kosn-
ingaaldri.
— Þetta ber þess ljósan vott
að við eigum fylgi að fagna með-
al stúdenta og menntamanna,
sem ekki vilja láta það uppi, seg-
ir Rob.
Það voru fylgjendur borgar-
stjórnarfulltrúans sem köstuðu
reyksprengjum á Beatrix og
Claus von Amsberg 10. marz
þegar brúðkaup þeirra var hald-
ið.
Nú er ætlunin að gera samtök
þessi svo voldug að þau megni
að taka upp virka baráttu gegn
hinu borgaralega þjóðfélagi.
Þetta eru aðalatriðin í stefnu-
skrá þeirra:
★ Friður um allan hnöttinn,
bann við kjarnorkuvopnum.
★ Stéttlaust þjóðfélag án auð-
söfnunar einstaklinga.
★ Þjóðfélag þar sem hvorki rík-
ir auðvaldsskipuiag né komm-
únismi heldur stjórnleysi sem
vera skal grundvöllur að
nýrri tegund samfélagshátta.
Bob segir:
— Verkamenn eru ekkert
byltingasinnaðir nú orðið. Þeir
eiga of gott til þess. Þeir eru
orðnir að smáborgurum. Við er-
um hinir sönnu byltingamenn.
Og nú skal til skarar skríða
að bylta þjóðfélaginu í anda
þessara nýju hugsjóna — hinnar
„hvítu fyrirætlunar".
HVÍTA ÁSTARLÍFS-
ÁÆTLUNIN
1. Ástalífið á að vera fullkom-
lega frjálst, og öll siðaboð, sem
hindra þetta frelsi, skulu vera
bannlýst.
Kynvillingar (hómósexúalist-
ar) skulu mega kannast við það
opinberlega, að þeir séu það.
Eins og nú standa sakir verða
þeir oft að gjalda unglingum
mikið fé til þess að þeir þegi
um samböndin við þá. Annars
eiga þeir á hættu að verða fang-
elsaðir og álitnir ekki með öll-
um mjalla.
Snemma á kynþroskaskeiðinu
á að færa unglingum alla þá'
fræðslu sem þeir þarfnast um
þessi efni, og einnig ætti að að-
stoða þá við að tengja fyrstu
samböndin. Ekki ætti að hindra
unglinga á því reki að fara sínu
FJÖLBREYTT ÚRVAL AF DAGKJÓLUM,
JERSEYKJÖLUM OG SAMKVÆMISKJÖLUM
Laugavegi 59. - Sími 18646.
VIKÁN 37