Vikan - 13.10.1966, Síða 39
SILKIMJÚKT OG SEIÐMAGNAÐ
ILMANDI TALCUM FRÁ AVON
Hin frægu fegrunar talcum . . . mjúk og fín . . . til hressingar
eftir baðið — áður en þér klæðist.
Veljið yðar uppáhalds ilm úr Somewhere, Topaze, Wishing,
Here's my Heart, Persian Wood, To a Wild Rose eða Jasmin og
Lily of the Valley.
>V< \\ ()I1 COSmETLCS LTD
NEW YORK • LONDON • PARIS
fram eftir vild.
Með próvos gilda þau lögmál,
sem þeir sjálfir ákveða. Á
spjald í kjallaranum er þetta
letrað: Leitaðu hér aðstoðar ef
þess þarf, og er hjálp sú veitt
í þremur greinum: fyrir hómó-
heteró- og bí-sexúalt fólk.
Skrifaðu nafn þitt hér og
vertu þér svo úti um það sam-
band, sem þú kýst þér, og stend-
ur neðst á spjaldinu. Allir hérna
eru boðnir og búnir að greiða
fyrir þér.
Við hliðina á spjaldi þessu
hangir annað með lýsingum á
kynsjúkdómum og lækningu á
þeim.
í
HVÍTA HJÓLREIÐA-
ÁÆTLUNIN
2. Bílaakstur skal banna í mið-
borg Amsterdams.
— Aðeins sjö af hundraði
nota bíla sína á réttan hátt, seg-
ir Rob.
í stað þess vilja þeir hafa
reiðhjól! 100000 hvít reiðhjól
eru þessum samtökum innan
handar og heimil, og hverjum
sem er leyfist að taka eitthvert
af þeim, fara á því þangað, sem
hann ætlar sér og skilja það
eftir þar.
Ef þetta væri haldið, mundi
Amsterdam verða heilnæmari
borg en ella, en sporvagnar
mundu eftir sem áður flytja börn
og gamalmenni.
HVÍTA LOFTRÆSTI-
ÁÆTLUNIN
3. Rob heldur því fram að hvergi
í Evrópu sé andrúmsloftið jafn
mengað sem í Amsterdam.
Fyrir nokkru síðan ætlaði olíu-
félag að byggja olíuhreinsunar-
stöð í útjaðri Amsterdams. Sér-
fræðingar rannsökuðu loftið, og
kom þeim saman um, að ekki
mætti miklu muna svo að loftið
yrði lífshættulegt. En borgar-
stjóranum, Hendrik Jans, þótti
súrt í broti að verða af þeirri
tekjuaukningu, sem koma myndi
í kjölfar olíuhreinsunarstöðvar-
innar og stakk áliti nefndarinn-
ar undir stól.
En svo vildi til, að einn úr
samtökunum vann á bæjar-
stjórnarskrifstofunni, og náði
hann í nefndarálitið, tókst að
hafa það á burt með sér og
birti það svo í Image, sem er
vikublað samtakanna.
Borgarstjórinn var settur af!
Nú er í ráði að mála alla reyk-
háfa hvíta til merkis um betra
og heilnæmara andrúmsloft.
4. Lögregluþjónar í Amsterdam
er af almenningi kallaðir „kjúkl-
ingar“.
— Ferðamenn í Hollandi segja
þá vera mestu Ijúfmenni. Hvers-
vegna er dómur heimafólksins
um þá allt öðruvísi? Vegna þess
að þeir eiga tvennt til.
Lögregluþjónar ættu að vera
í hvítum einkennisbúningum,
svo þeir líkist ekki framar SS-
foringjum. Þeir eiga að fara í
klink við börnin á vorin, hafa
matarbite, kjúkling eða smurða
samfellu af brauði í vasanum,
kveikja í sígarettum hjá þeim
sem enga eldspýtu eiga, bera
töskur fyrir þá, sem lasburða
eru, hjálpa gamalmennum.
Hið eina af fyrri verkefnum
lögregluþjóna, sem leyft skal
vera, er að fanga afbrotamenn.
Lögreglan í Amsterdam er
versti óvinur próvos-samtak-
anna. Á hverjum laugardegi
koma 300—400 lögregluþjónar
saman, samkvæmt fyrirskipun,
við Leidesplein. Eftir að upp-
þotið varð í vor í sambandi við
brúðkaup Beatrix prinsessu og
uppþotið 14. júní, hefur lög-
reglustjórinn verið miður sín af
ótta. Hann er hræddur við af-
leiðingarnar, próvos er það ekki.
— Það er rejmdar búið að
skipa nýjan lögreglustjóra í
Amsterdam. Það er okkur að
þakka. Gysbert van Hall var
rekinn af því að hann réð ekki
niðurlögum okkar.
Rob Stalk hefur setið í gæzlu-
varðhaldi í 24 skipti, en aldrei
lengur en fjóra daga. Tvíbura-
systur nokkrar hafa verið gripn-
ar í 23 skipti. Sara Stalk 18
sinnum. Sá próvos er ekki til,
sem ekki hefur einhverntíma
verið gripinn af lögreglunni.
Eftir hálfan mánuð á Rob að
fara á skóla fyrir afvegaleidd
ungmenni. Þetta er sá dómur,
sem hann fékk fyrir að efna til
uppþotsins við brúðkaupið 10.
marz.
— Þegar pótentátarnir voru
sem ákafast að vegsama sig í
ræðum, þrýsti ég á viðvörunar-
hnappinn, segir hann og hlær.
Öll laugardagskvöld heyrast
smellirnir í fjölritunarvélinni,
stúlkurnar hefta blöðin saman,
og það sýður upp úr kaffikönn-
unni á eldavélargarminum, —
en þegar klukkan er nákvæm-
lega 11, segir Rob:
— Nú hættum við. Það kemur
dagur eftir þennan dag.
Og íélagarnir tínast burt úr
þessum óþrifalega kjallara.
Tuttugu og fimm eru ráðnir til
vinnu þarna allan daginn.
Laun Robs eru 120 gyllini (h.
u.b. 1500 ísl. kr.) á mánuði.
Raunar eru þetta engin lavm,
heldur atvinnuleysisbætur.
Unglingarnir leggja leið sína
til Leidesplein í miðbiki borg-
arinnar.
— Svona gengur það laugar-
dag eftir laugardag, segir Rob.
— Við förum þangað til að sjá,
hvað lögreglan er að aðhafast.
Fyrir hálfum mánuði voru
400 próvosar teknir fastir. Þeim
var troðið inn í herbíla og far-
VIKAN 39