Vikan - 13.10.1966, Side 41
í HÓTEL SÖGU VAR EINGÖNGU NOTAÐ THERMOPANE
EINANGRUNARGLER
The/imafi
ÞÉR FÁIÐ EKKI ANNAÐ BETRA
Glaverbel's
E2GGEKT KKBSTJAMSSOiW d €0. HF.
SÍMI 11400
ið með þá 20 km veg út fyrir
borgina. Þar var þeim sleppt —
og lögreglan hafði orð Robs fyrir
því, að þeir mundu ekki koma
aftur fyrir en með morgninum.
En það komust þeir, því þeir
létu taka sig upp í bíla, stálu
reiðhjólum, náðu sér í leigu-
bíla og voru allir komnir aftur
eftir hálftíma!
Svo báru þeir fram ákæru á
lögregluna fyrir barnarán, því
flestir þeirra voru undir lög-
aldri. Saksóknari ríkisins í
Amsterdam hefur nú hafið á-
kafa gagnrýni á lögregluna. Vel
getur farið svo að nýi borgar-
stjórinn dragist inn í þetta.
Herlögreglan situr fyrir pró-
vosum við Leidesplein, með
hundum og hestum og með stafi.
En próvosarnir gera ekkert af
sér, þeir hrópa ekki, brjóta ekki
rúður — heldur ganga þeir fram
og aftur stilltir og prúðir,
stundum safnast þeir í hópa, en
þá kemur lögreglan askvaðandi
að reka þá burt — óhýr í horn
að taka, já hrottaleg og hörð,
og þykist vera að taka í taum-
ana.
— Móti hverju? Sara Stalk
kona Robs, ber fram þessa spurn-
ingu.
Á Leidesplein mætti hún og
þrír af félögum hennar lög-
regluþjóni með grimman hund
í bandi. Hann sigaði hundinum
á þau, og hundurinn beit í kjól
Söru og reif hann sundur á bak-
inu.
Hún varð hrædd, og hljóp inn
í kaffihús til að fela sig. En svo
kom upp í henni móðurinn og
hún gekk rakleitt yfir á næstu
lögreglustöð til þess að krefj-
ast skaðabóta. En hún fékk enga
áheyrn, heldur var hlegið að
henni.
— Við höfum ekki haft í
frammi neitt ólöglegt athæfi,
sagði hún, en það hefur lögregl-
an gert. Við komum hingað ekki
til neins nema að horfa á, eins
og borgararnir.
Oft kemur lögreglan ríðandi á
vettvang til að dreifa próvosum,
þar sem þeir hafa safnazt saman,
með bareflum.
Rob segir:
— Þeir reyna að reka okkur
á undan sér inn í dimm skúma-
skot eða afskekkta garða. Þar
geta þeir barið okkur að vild
sinni án .þess að blaðamenn eða
Ijósmyndarar sjái til. Vondir eru
þeir, þessir djöflar.
Próvos sannaði það fyrir
nokkru, að margir þeirra sem
ráðnir hafa verið til lögreglu-
starfa, hafa haft samstarf með
nazistum. Þetta kom illa við
ýmsa, en lögreglustjórinn svar-
aði þessu til:
Þetta eru dugandi lögreglu-
þjónar. Við megum ekki missa
þá, því þeir eru ágætir að hafa
þá til að halda próvosunum í
skefjum.
Próvos þekkjast ekki frá öðr-
um ungmennasamtökum í öðr-
um löndum, en þeir hafa aðra
stefnu; þeir eru samtök ungra
áhugamanna um þjóðfélagsmál,
sem vilja bylta þjóðfélagsskip-
un Hollands. Þeir eru harðir í
horn að taka. ☆
Ný gerð raShúsgagna
Framhald af bls. 21.
stykkjum frá öllum hliðum. Það
er nýstárlegt og athyglisvert við
þessi hliðarstykki, að þau eru
laus og smellt inn í rammann og
ýmist með samskonar áklæði og
sófinn sjálfur eða einhverri við-
aráferð. Það er meira að segja
hægt á nokkrum mínútum að
taka öll hliðarstykkin úr og
skipta um við.
Hægt er að lengja, breikka,
hækka og lækka sófaborðið, það
er hægt að búa til langan, sam-
felldan sófa og það má raða
þannig upp, að hvert sæti sé út
af fyrir sig og borð á milli. Það
er hægt að setja þetta raðsett
þannig saman, að það myndi
vinkil eða jafnvel U, ef fólk vill
það heldur. í horninu er þá haft
borð eins og myndin sýnir, en
innan skamms mun fáanleg
svampsessa fyrir hornið, ef ein-
hver kysi það frekar þannig. Bök-
in eru krækt í uppistöðurnar á
sama hátt og grindin og bakpúð-
arnir eru lausir. Sigurður hefur í
hyggju að finna markað fyrir
þessa gerð húsgagna erlendis, en
hingað til hefur hann þó varla
haft undan með að framleiða
fyrir innanlandssölu. G.
Gefizt ekki upp fyrir
aldrinum
Framhald af bls. 46.
of mikið um slíkt. Langar sjúkdóms-
sögur og heilsufars-lýsingar ræna
gamalt fólk mörgum vinum. Ef
roskið fólk umgengst fólk ó öll-
um aldri en ekki eingöngu jafn-
aldra sfna hættir þvf sfður til að
sökkva sér niður í sjúkdómslýsing-
ar. Það er aðeins þegar það verður
utanveltu við lífið, að það fær
þennan alþekkta óhuga ó heilsu-
leysi.
Gamalt fólk, sem er hraust, hef-
ur gott af að stunda einhverja létta
atvinnu innan um annað fólk. Það
hefur líka gagn og gaman af að
ferðast, og ó þessum aldri er oft
ekkert sem bindur það heima við,
eins og meðan það var yngra.
Það eru margir möguleikar til
að byrja nýtt lif — ef konan er
ung í anda og opin fyrir nýjum
óhrifum. ★.
í fullri alvöru
Framhald af bls. 2.
sig hvað eftir annað á, að lögregl-
an er svifasein og lítilvirk, er
varla nema von að þeir nöldri.
Og svo kemur í ljós, að gangur
dómsmálanna, eftir að náðst hef-
ui í afbrotamennina, er hæg-
gengur og slappur. Það er haft á
orði, að afbrot séu tíð hér — er
það nema von, eins og allt er í
pottinn búið? Það hlýtur að vera
barnaleikur fyrir þjóð, þar sem
yfir 30% allra vinnandi manna
eru opinberir starfsmenn, að
koma þessum málum í betra
lag. S.H.
Dey ríkur, dey glaður
Framhald af bls. 20.
Spiro. — Eg er líka hræddur við
hann.
VIKAN 41