Vikan - 13.10.1966, Qupperneq 44
LILUU
LILUU
LíLJU
LILUU
LILJU BINDI
ERU BETRI
Fást í næstu búð
'&ýt í£j£
® H<
og Spiro minntist á það, þagnaði
hann. Stíflan var sett í aftur, ein
hræðslan hélt aftur af annarri.
— Segðu mér frá því, sagði
Craig. — Þú gerðir það ekki. .
— Það var í svartholinu, sagði
Spiro. — Gamli maðurinn þinn var
harður af sér. Hann hélt fast við
sitt þar til Dyton-Blease missti
stjórn á sér, og þá var það orðið
of seint.
— Hve langan tfma tók það?
spurði Craig.
— Um það bil fimm sekúndur,
sagði Spiro. — Svo varð hann sval-
ur aftur, eins og ís. Fimm sekúnd-
ur ....
— Við skulum líta á svartholið,
sagði Craig.
— Það er ekkert þar.
— Eg vil fá að sjá það. Hann
tók upp hníf Bauers.
— Allt í lagi, sagði Spiro. — Eg
æfla að fara í einhver föt.
— Nei, sagði Craig. Nakinn mað-
ur er varkár og óframfærinn. Spiro
hikaði en leit síðan í augu Craigs.
— Allt í lagi, sagði hann.
Þeir fóru niður þrep sem höggv-
in voru í klettinn, opnuðu þykka
hurð úr olíuviði, rekna með smíða-
járnsnöglum og komu inn í það,
sem eitt sinn hafði verið birgða-
geymsla, ekki síður en svarthol,
allur staðurinn uppljómaður með
sterkum, óvörðum rafmagnsperum.
Stór hvelfing höggvin í klettinn og
annarsvegar voru hel I isskútar
höggnir inn í veggina og lokaðir
að framan með járngrindum. Þetta
var eins og safn, nema hvað þetta
var enn í notkun. Engir ferðamenn,
engir bæklingar, engir minjagrip-
ir. Ræningjabaróninn, sem bjó hér,
var enn í fullu fjöri. Craig hratt
Spiro á undan sér og litaðist um.
Tómir umbúðakassar, einn með
nafni á tízkuverzlun í París. Kjóll
Selinu? Tómar vínámur, tómar olíu-
tunnur og hver klefi tómur. Það
hiaut að vera eitthvað.
— Eg sagði þér, sagði Spiro.
Craig ýtti honum frá sér og lit-
aðist um einu sinni enn. Klettavegg-
airnir voru sléttir og gráir, en í einu
horninu glitraði á ferhyrndan blett,
s'éttari og fölari en annað. Það voru
dyrnar á öryggishólfi. Craig ýtti
Spiro yfir að því og skoðaði það
vandlega að utan. Engin talnalæs-
ing, aðeins lykill.
— Opnaðu, sagði Craig.
— Það er ekki lokað, sagði Spiro.
— Eg skal sýna þér.
Hann togaði í dyrnar af öllu
afli og þær opnuðust hægt. Síðan,
allt í einu, hreyfingin svo srrögg
að líkama hans svipaði helzt til
kvikasilfurs, teygði hann sig inn í
öryggishólfið. Þar var hnífur. Hann
þreif hann og stökk að Craig.
Craig vék sér undan svo upphand-
leggurinn, sem hnífnum hélt,
straukst við öxl hans, síðan sló
hann og nakinn líkami Spiros skall
að klettaveggnum. Spiro kjökraði
og hikaði, síðan mætti Craig árás-
inni eins og Stavros hafði kennt
honum, sneri hliðinni að til að
minnka markið fyrir andstæðing-
inn, sveigði sig til að láta hann
missa marks og sló með vinstri
hendinni á úlnlið Spiros. Spiro æpti
og hnífur hans féll glamrandi á
steingólfið og hann æpti ennþá
þegar hann snéri sér við og leit
á Craig og hnífinn, sem hann hélt
með oddinn fram, meðan hann
beið frekari árásar. Svo fann Craig
skellinn af líkama Spiros og leit á
hnefann, sem var krepptur um
hnífsskaftið, sem nú stóð út úr
bringu mannsins. Hann sleppti og
Spiro féll, augun voru þegar orðin
glerkennd.
— Hann drepur þig líka, sagði
Spiro og dó.
Craig leit niður á hann, grannan
og glæsivaxinn, jafnvel í dguðan-
um. Hann dró hnífinn úr sárinu,
strauk af honum á drasli og fór til
að loka öryggishólfinu. Stálhurðin
var þakin aukalega með blýi og
klettahóifið á bak við var blýþakið.
Craig fann hversvegna Spiro hafði
orðið að toga af öllum kröftum.
Það var ekkert í öryggishólfinu
néma gamaldags hattaskja úr
málmi. Craig seldist eftir henni og
komst að því að hún hreyfðist
ekki. Hún var líka fóðruð með
blýi. Niðri í henni var ekkert ann-
að en ofurlítið brot úr leirkeri,
gamalt brot með sérstæðri skreyt-
ingu. Craig setti lokið á öskjuna
aftur og dragnaðist með hana upp
úr svartholinu. Að koma henni yfir
klettinn var þreyandi og erfitt, jafn-
vel þótt hann hefði kaðal. Þegar
hann kom niður á ströndina leit
hann á úrið, aðeins hálf klukku-
stund þ)ar til hann átti að mæta
Elíasi. Og hann átti ennþá margt
ógert.
Framhald í næsta blaði.
Flóttinn til óttans
Framhald af bls. 11.
— Ég sæki þig annað kvöld
og teki þig með til flugvallar-
ins, sagði hann rólega. — Og,
bætti hann við, um leið og hann
skrifaði eitthvað á notað um-
slag, — hér er heimilisfangið
mitt. Ég fékk lánaða íbúð hjá
kunningja mínum. Ég er of sjald-
an hér í landi til þess að það
taki því fyrir mig að hafa íbúð.
Jæja, vertu sæl. Hann hló dátt
og bætti við:
— Dásamlegt brúðkaup, finnst
þér ekki?
Fay fór inn í verzlun, og aldrei
þessu vant lét hún ímyndunar-
aflið ráða og keypti sér föt, sem
henni hefði aldrei dottið í hug
að líta á undir venjulegum
kringumstæðum. Tvo baklausa
bómullarkjóla, annan hvítan og
hinn dökkgrænan, rauðbrúna
léreftsdragt með smaragðsgræn-
um hálsklút og litlum hatti í
sama lit. Um leið minntist hún
hatts Madeline: Ég myndi verða
eins og sirkushestur með því-
líkt á höfðinu! hugsaði hún. Svo
keypti hún tvo kvöldkjóla. Þetta
SÚTAÐAR
GÆRUR
TRIPPASKINN
KÁLFSKINN
-K
Mikið
úrval
*
Hagkvæmt
verð
Sútunarverksmiöja
SLÁTURFÉLAGS
SUÐURLANDS
Grensásvegi 14
Sími 31250
Einnig
Laugavegur 45
Sími 13061
44 VIKAN