Vikan


Vikan - 17.11.1966, Blaðsíða 32

Vikan - 17.11.1966, Blaðsíða 32
Ronson RONSON fyrir dömuna RONSON fyrir herrann RONSON fyrir heimilið RONSON KVEIKINRI er tilvalin tækifærisgjöf WORLD'S OREATSST LIOHTERS STJÖRNUSPfl*^ Hrútsmerkið (21. marz — 20. apr(l): Þú þarft að velja gjöf og muntu hafa miklar áhyggj- ur af. Þér finnst gengið framhjá þér þegar valinn er maður í nýtt starf. Helgin verður nokkuð öðru- vísi en þú hafðir gert ráð fyrir. Wf Nautsmerkið (21. aprd — 21. ma(): Persóna sem vill þér vel verður fyrir aðkasti kunn- ingja þinna og firrtist við. Illur orðrómur kemst á kreik um þig og kunningja þinn, skaltu reyna hvað þú getur að leiða sannleikann í ljós. Tvíburamerkið (22. ma( — 21. jún(): Þú ert gagnrýninn á störf þín og er það þér nauð- synlegt_ því verk þiín eru undir smásjá. Þú verður fyrir óhappi sem kostar þig nokkurt fé. Þú skemmt- ir þér mikið með gömlum kunningjum. Krabb'amerkið (22. jún( — 23. júl(): Þú kynnist persónu mjög bráðlega i samkvæmi sem getur haft mikil áhrif á framtið þína. Þú ert nokkuð hvikull og ættir að stunda atvinnu þína betur. Eyddu tómstundunum við eitthvað rólegt, t d. bóklestur. Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst); Nokkuð óvæntur atburður verður til að hleypa öllu í uppnám í kringum þig, en þú munt hagnast ríflega á þessu. Lánið virðist leika við þig, sérstaklega á föstudag og laugardag. Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september): Ekki skaltu reiða þig skilyrðislaust á loforð ann- arra, því eitthvað mun verða til að hindra þig, e.t.v. trúgirni þín. Vikan verður skemmtilegri en sú síð- asta, sérstaklega gætu kvöldin orðið rómantisk. Vogarmerkið (24. september - 23. október); Þú virðist standa í stað. Sennilega beitirðu þér ekki nógu mikið til að geta tekið framförum og þroskast í starfi þínu. Ef þú getur ekki tekið þig á, skaltu umsvifalaust leita þér að nýju starfi. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): í>ér býðst gott tækifæri sem þú getur hagnýtt þér að mestu. Þú verður gestkomandi um næstu helgi og skalt hafa góða gát á öllum orðum og athöfnum. Þú getur ekki liðsinnt kunningja þínum. -fc. «1^ Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. des.): Þú þarft að snúast nokkuð fyrir fjarskyldan ætt- ingja. ef til vill ertu alls ekki laus við kvabbið í honum, þótt þú reynir að láta hann skilja að þú hafir nauman tíma. Þú ferð í fjölmennt ferðalag. Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Þú átt margar lausar stundir í vikunni sem þú getur notað til að sinna áhugamálum þínum. Þú skalt vera á verði og gæta þess að særa ekki félaga þinn með óþægilegum og meinlegum athugasemdum. Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): Gamall maður sem þú kynntist fyrir skömmu kemur ekki vel fram við þig. Áhugi þinn á vissu málefni verður til þess aö vekja athygli á þér. Vertu ekki svona veikur fyrir sjálfum þér. FlskomerklB (20. febrúar — 20. marz): Þú hefur mjög mikið að gera og veröur að vanrækja ýmiss áríðandl störf. Mál sem þú hélzt gleymt rifj- ast nú upp og verður öllum viðkomandi til ánægju. Fimmtudagurinn er bezti dagur vikunnar. 32 VIKAN 46 tbl-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.