Vikan - 01.12.1966, Side 48
SKRIFSTOFU-
STÖLAR
VINNUSTÖLAR
TRÖPPUSTÖLAR
OG ALLAR
STÆRÐIR AF
FERKÖNTUÐUM,
HRINGLAGA OG
SPORÖSKJULÖG-
UÐUM BORÐUM
Króm-
— Má líta á núlifandi mann-
apategundir sem forfeður mann-
anna?
— Nei, en forfeður þeirra apa-
manna, sem sennilegast hafa
verið forfeður mannsins, hafa
átt margt sameiginlegt með
þeim.
— Hvað viltu segja um „hinn
týnda hlekk“ (The missing
link), sem Darwin talaði um?
— Beinaleifar af frummönn-
um eru alltaf að finnast öðru
hvoru, aðallega í Afríku. Það
má segja, að það sé ekki um
neinn einn hlekk að ræða held-
ur marga, og það er ekki hægt
a<5 segja um einn þeirra: hér
er hinn eini sanni milliliður
milli manns og apa. Þá vil
ég taka það fram, að nútíma-
manntegundin virðist eiga sér
miklu lengri sögu, en til skamms
tíma hefur verið haldið, t.d.
virðist hún eldri en sú mann-
tegund, sem kennd er við
Neandertal, og er allmiklu frum-
stæðari að líkamsbyggingu en
nútímakyn.
— Hvar hefur þú aðallega
stundað mannfræðistörf í
Evrópu utan íslands?
— Ég hef mest starfað í Mainz
í Þýzkalandi, við mannfræði-
stofnun háskólans þar. Ég hef
fengið laun og sérstakan styrk
frá stofnun þessari en auk þess
veitti Alexander von Humbolt
stofnunin mér vísindastyrk hátt
á þriðja ár. Svo hef ég gert
rannsóknir í Noregi og í Dan-
mörku á skólafólki. Á vegum
mannfræðistofnunarinnar í
Mainz hef ég ferðaz;t allvíða,
bæði austan tjalds og vestan.
Skemmtilegast þótti mér að
heimsækja Ungverjaland. Kol-
legar mínir þar standa framar-
lega á ýmsum sviðum mann-
fræði. Þeir geyma m.a. töluvert
beinasafn af Herúlum, hinum
germanska þjóðflokki, sem
þvældist til Svartahafs og víð-
ar um. Brot af honum hélt aft-
ur til fyrri heimkynna í Skandi-
navíu, en Barði Guðmundsson
telur að það séu forfeður fslend-
inga. Má vera að sumir land-
námsmanna hafi getað rakið
kyn sitt til þeirra en vel bland-
aður eða ósamstæður stofn
kynþátalega séð, hafa þeir verið
orðnir um það leyti er ísland
byggðist.
— Þú fórst til Rússlands.
Hvernig féll þér við Rússa?
— Æ, það er talað svo mikið
um þá. Vinur minn var búinn
að banna mér að glápa á veika
kynið, en ég stalst til þess
samt. Það er svo fallegt þetta
norræn-austurbaltneska kvenkyn
í Rússlandi. Það er uppáhalds-
týpan mín svona fyrir utan
alla mannfræði. Já, það getur
verið erfitt að vera bæði mann-
fræðingur og maður. Hugsaðu
þér, rússnesku stúlkurnar roðna
þegar litið er á þær. Finndu
fyrir mig eina slíka á fslandi.
Ég fór annars til Moskvu til
að sitja þar 7. alþjóðaþing mann-
fræðinga. Ég var eini fulltrúi
íslendinga þar og flutti erindi
um íslenzka mannfræði, byggða
á rannsóknum mínum á íslandi.
Margir kollega minna sýndu
mikinn áhuga á niðurstöðum
mínum og vildu sumir gerast
samstarfsmenn mínir að ein-
hverju leyti, viðvíkjandi rann-
sóknum á íslendingum.
Kunningi minn frá Póllandi,
Dr. Miszkiewicz var í forsæti er
ég hélt minn fyrirlestur. Við
höfðum kynnzt áður á þingi
þýzka mannfræðifélagsins í
Köln, en við erum báðir með-
limir þess. Auk þess höfum við
starfað saman og hefur árang-
urinn birzt í vísindaritum á
pólsku og þýzku.
Ég mætti mikilli gestrisni í
Rússlandi, en hið pólitíska and-
rúmsloft alls staðar, fór í taug-
arnar á mér.
— Hvernig er starfi þínu á
íslandi háttað?
— Ég er alltaf í gangi með
eitthvað. Maður hefur naumast
tíma til að lifa menningarlífi
eins og það er kallað hér, og
ég sé sjaldan vini mína. Ég er
að leysa af hendi verkefni, sem
í rauninni er fleiri manna svo
að mér veitir ekki af tímanum.
Rannsóknir mínar falla í eft-
irfarandi aðalliði:
1. Rannsóknir á börnum og
unglingum.
2. Blóðrannsóknir.
3. Rannsóknir á fullorðnu fólki
og skólabörnum í ákveðnum hér-
uðum fslands.
4. Séjrrannsóknir meðal
frændþjóða okkar til saman-
burðar.
5. Rannsóknir í sambandi við
uppruna íslendinga byggðar á
sögulegtim menningarlegum og
mannfræðilegum heimildum.
— Hvernig gengu rannsóknir
þínar á skólabörnum í vetur?
— Mjög vel. Krakkarnir voru
elskulegir í framkomu og átti ég
aldrei í neinum vandræðum með
að fá þau til mælinga og athug-
unar, en kennarar, hjúkrunar-
konur og skólayfirvöld greiddu
líka alls staðar götu mína, sem
bezt mátti verða. Aðstandendur
barnanna sýndu einnig rann-
sóknum mínum skilning og vel-
48 VIKAN 48- tw-