Vikan - 19.01.1967, Blaðsíða 7
^bankett
VIFTAN YFIR ELDAVÉLINA
Hreint og hressandi! Það er gaman að matreiða í nýtízku eldhúsi# þar sem loftið
er hreint og ferskt. l»að skapar létta lund, vinnugleði og vellíðan, hvetur hug-
myndaflugið — og matarlykt og gufa setjast ekki í nýlagt hárið né óhreinka föt
og gluggatjöld; málning og heimilistæki gulna ekki og hreingerningum fækkar.
Raunveruleg loftræsting! Með Bahco Bankett fáið þér raunverulcga loftræstingu,
því auk þess að soga að sér og blása út gufu og matarlykt, sér hún um eðlilega
og heilnæma endurnýjun andrúmsloftsins í eldhúsinu og næstu herbergjum. Sog-
getan er ein af ástæðunum fyrir vinsældum Bahco Bankett.
Hljóð! Þrátt fyrir soggetuna heyrist varla í viftunni. Bahco Bankett er sennilega
liljóðasta viftan á markaðnum.
Engin endurnýjun á síum! Uhugið sérstaklega, að Bahco Bankett þarfnast engrar
endurnýjunar á lykt- og gufueyðandi síum, sem dofna með tímanum. Bahco Bank-
ett hefur engar slíkar, en heldur alltaf fullum afköstum — kostnaðarlaust.
Fitusíur úr riðfríu stáli! Bahco Bankett hefur hins vegar 2 stórar, varanlegar fitu-
síur úr ryðfríu stáli, sem ekki eintmgis varna því, að fita setjist innan í útblásturs-
stokkinn, heldur halda viftunni sjálfri hreinni að innan, því að loftið fer fyrst
gegnum síurnar. Fitusíurnar cru losaðar með einu handtaki og einfaldlega skolaðar
úr heitu vatni stöku sinnum.
Rétt vinnuhæð, innbyggt Ijós og rofar! Lögun Bahco Bankett skapar óþvingað
svigrúm og sýn yfir eldavélina. Innbyggt Ijós veitir þægilega lýsingu og rofarnir
fyrir ljós og viftu eru vel og fallega staðsettir,
Falleg, stílhrein og vönduð — fer alls staðar vel! Bahco Bankett er teiknuð af
hinuin fræga Sigvard Bernadotte, cins og mörg fallegustu heimilistækin í dag, og
er sænsk úrvalsframleiðsla frá cinum stærstu, reyndustu og nýtízkulegustu loft-
ræstitækjaverksmiðjuin álfunnar.
BAHCO ER BETRI. Það er cinróma álit neytendasamtaka og reynslustofnana ná-
c;rannaríkjanna, að útblástursviftur einar veiti raunverulega loftræstingu. Hagsýnir
húsbyggjendur gera því ráð fyrir útblástursgati eða sérstökum loftháfi. Þeir, sem
endurnýja eldri eldhús, brjóta cinfaldlega gat á útvegg eða ónotaðan reykháf. Sú
fyrirhöfn margborgar sig.
NÝJUNG: Bahco raðstokkar. Við höfum nú á boðstóluin létta og sterka, hvíta
plaststokka með beygjum og öðr»» tilheyrandi, sem hver og einn getur raðað saman,
án minnsta erfiðis eða sérstakra verkfæra.
Vcljið því rétt, veljið viftu, seni veitir
raunverulega loftræstingu og heldur allt-
af fullum afköstum — kostnaðarlaust.
Veljið BAHCO BANKETT.
ar þær eru staðsettar hjá smáþjóð
eins og okkur. Við þurfum að
endurskoða samninginn um her-
stöðina og helzt leggja hana nið-
ur. Nú þegar þessar langdrægu
eldflaugar hafa verið fundnar
upp, ættu Bandaríkin ekki að
þurfa á neinum herstöðvum er-
lendis að halda, þegar þeir geta
sent skeyti sín hvert á land sem
er á hnettinum.
Ég held að Bandaríkjamenn
hljóti að eiga auðvelt með aÖ
skilja þetta sjálfir. Eins og Ragn-
ar bendir á í viðtalinu, eru
Bandaríkjamenn umburðarlynd-
ir, og ég get ekki ímyndað mér,
að nein stórþjóð hefði getað
reynzt okkur þægilegiri í sam-
starfi en þeir. Þeir hafa undan-
farið verið að stefna að því, að
fækka herstöðvum sínum hingað
og þangað út um heim, og ég get
ekki ímyndað mér að þessi her-
stöð hérna sé þeim svo mikils
virði, að þeri hafi neinn áhuga á
að halda henni við, þegar þeir
líka finna að hún er óvinsæl hjá
þjóðinni. Nú er líka spennan að
minnka milli Rússlands og
Bandaríkjanna, það lítur helzt út
fyrir að þessar þjóðir séu að
sameinast gegn Kína, enda veitir
víst ekki af. Þá geta herstöðvar
eins og sú í Keflavík, sem miðuð
er við varnir gegn Rússum, ekki
haft mjög mikið gildi lengur.
Mér fannst það annars ekki
rétt af Ragnari, hvað hann hlóð
undir þessi ,,ádeiluskáld“ sem
gáfu út bækur sínar í fyrra, ég
á við þá Ingimar og Jóhannes
Helga. Mér fannst líka rangt hjá
þér, kæra Vika ,að taka undir
þetta lýðskrum í kringum þessar
bækur. Mér finnst þær þeim mun
ómerkilegri þeim mun lengur
sem ég grúska í þeim, og ég er
viss um að eftir fáein ár man
enginn eftir þeim. Þeir Ingimar
og Jóhannes eru ekki reiðir út
af neinu, nema kannski ein-
hverju, sem snertir þá persónu-
lega, og það kemur engum öðr-
um við. Á millistríðsárunum, og
þar á undan, þá var ástandið í
þjóðfélaginu þannig að það var
nóg til að skamma. En ekki nú,
þegar allir hafa nóg að borða og
geta gert næstum allt sem þeir
vilja. Og svo er Jóhannes að gæla
við viðurstyggilegar hugrenn-
ingar eins og þær, að leiða suma
framámenn þjóðfélagsins á högg-
stokkinn! Þvílík viðurstyggð.
Það, að manninum skuli haldast
annar eins viðbjóður uppi, sýnir
bezt hve frábærlega lýðræðislegt
og mannúðlegt þjóðfélag okkar
er.
Gleðilegt ár.
SJK., Húsavík.
KROSSFERÐARSAGA
Kæra Vika.
Ég er kona sem er á heilsu-
hæli og er búinn að vera þar
lengi og hef því óskaplega gam-
an að ferðasögum annarra af því
ég kemst ekkert sjálf. Ég kaupi
Vikuna oft af því það eru stund-
um í henni ansi góðar ferðasögur
og núna um daginn spurði mig
kona hvort ég væri búinn að lesa
jólablað Vikunnar því það væri
í því svo ágæt ferðasaga. Ég
rauk til og keypti mér jólablað
Vikunnar þó það ætlaði nú ekki
að ganga of greitt fyrir mig aum-
ingjann að fá það og fór strax að
leita að ferðasögunni. En ég fann
enga. Getur verið að það hafi
ekki verið sama efnið í öllum
Viku-blöðunum, eða hvað meinti
konan? Svaraðu mér nú vel Vika
mín í póstinum þínum ég ætla
að kaupa blaðið þangað til svarið
kemur.
Og vertu nú sæl. — Gunna.
Við getum fullvissað þig um,
Gunna mín, að í öllum jólablöð-
um Vikunnar var nákvæmlega
sama efnið. Hins vegar er okkur
ekki fyllilega ljóst ,hvað bless-
uð konan hefur kallað ferðasögu.
Tæplega er hægt að kalla grein
Sigurðar A. Magnússonar því
nafni, og varla lýsingu Guðbrand-
ar Gíslasonar á þeim þrem jólum,
sem hann lifði í Ameríku. Við
höllumst helzt að þeirri skoðun,
að konan hafi átt við grein Dags
Þorleifssonar um fyrstu kross-
ferðina.
— Afér þykir það leiðinlegt,
en hún er hara komin ofan í
baðkarið.
Komið, skrifið eða útfyllið úrklipp-
una og fáið alla rupplýsingar um
Bahco Bankett, stokka, uppsetningu,
verð og greiðsluskilmála.
FÖNIX
SÍMI 24420. SUÐURGÖTU 10. RVÍK.
Sendið undirrit. Bahco Bankett myndlista með öllum upplýsingum:
Nafn: ..............................................................
Heimih'sfang:
Til Fönix s.f., pósthólf 1421, Reykjavík.
3. tbi. viKAN 7