Vikan


Vikan - 20.07.1967, Blaðsíða 32

Vikan - 20.07.1967, Blaðsíða 32
KUEIK JARAR ONSON Vanti ykkur tækifærisgjöf þá muniö Ronson. Ronson kveikjarar fyrir dömur og herra, fjölbreyttara úrval en nokkru sinni fyrr, einnig úrval af borðkveikjurum. Einkaumboð: I. GUÐMUNDSSON & CO. HF. Hverfisgata 89, Reykjavík. STJÖRNUSPÁ n Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Vertu á verði gegn falsvinum og ráðgjöfum sem bera ekki hag þinn sér fyrir brjósti. Ef þú gætir ekki ýtrustu varúðar, áttu á hættu að lenda í félagsskap, sem verður þér að falli. Vogarmerkið (24. september — 23. október): Framkvæmdir þinar, sem þú hélzt að yrðu gróðaveg- ur renna út í sandinn. Veldu þér trúnaðarmann, sem þú treystir og hefur áhuga á málinu, skeð gæti að árangur næðist af sameiginlegri viðleitni ykkar. m Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí): Þú ert fremur illa fyrir kallaður og þreyttur. Vertu ekki of strar.gur við sjálfan þig, þú ert engin vél. Ættingi þinn gerir þér tilboð sem þú skalt taka, þótt það sé ekki ábatasamt fjárhagslega. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Farðu ekki að ráðum þeirra, sem kynnu að reyna að fá þig til að breyta um lífsstarf og segja þér, að auður og metorð bíði þín á öðrum vettvangi. Heillalitur er rauður. m jit Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní): Gættu þín við auðfengnum auði, því hann getur hæg- lega orðið þér fjötur um fót. Þú verður að temja þér meiri sparsemi því annars sóarðu öllu því sem þú átt. Vertu ekki of hvikull og rótlaus. Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. des.): Þú átt einhverja erfiðleika i vændum. Þú skalt leita til vina þinna um aðstoð og uppörvun, en þú sigrar þó aðeins með því að bergja á eigin orkulindum. Láttu ekki undan sjálfsmeðaumkun og ótta. Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí): Vertu ekki of kröfuharður við þann, sem þér þykir vænzt um. Þú átt eftir að ganga í gegnum miklar eldraunir áður en þú nærð marki þínu. Þú ert lukk- unnar pamfíll og margt verður þér til bjargar. Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Þú átt talsverða velgengi komna undir manni sem viðriðinn er stjórnmál eða mikinn lærdóm. Gættu þess að spilla ekki sambandi þínu við þennan mann með of mikilli tilætlunarsemi. Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): Þú færð nýtt verkefni til úrlausnar 1 vikunni. Það gæti leitt til þess að þú eignast nýtt áhugamál. Þú verður að sýna mikla kostgæfni ef þú villt ná góðum árangri. Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): Einhver afturkippur er á velgengni þinni. En þú berð að mestu leyti sjólfur ábyrgðina á þessum auðnu- hvörfum og erfiðleikum. Vendu þig af að trúa öðr- um of vel og forðastu skeytingaleysi um smáatriðin. ‘mmí Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september): Laugardagurinn mun verða langbezti dagur vikunn- ar. Þú færð skemmtilega hugmynd, sem þú skalt flýta þér að framkvæma. Konur ættu að varast allt óhóf, og gæta fjármunanna vel. Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Verkefni sem þú vinnur að, gefur ekki eins mikið i aðra hönd og þú hefur gert ráð fyrir. Aftur á móti hefur þetta mjög þroskandi og góð áhrif á þig. Á vinnustað færðu skemmtilegt tækifæri. 32 VIKAN 29-tbl-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.