Vikan


Vikan - 20.07.1967, Blaðsíða 12

Vikan - 20.07.1967, Blaðsíða 12
VtRGINÍA CALVIN TOMKINS McElroy hjónin voru í gleðinni. Þau bjuggu lyftu húsi fullu af löngum hvítum sófum poppmólverkum og þau elskuðu Bítlana, og Rollingana jafnvel enn meir. Þau héldu heljarmikil partí sem aldrei virtust enda. Stundum kom atomskáldið Andy Warhol og fleiri bítnikar partí þó að þau skipti væru fleiri, sem þeir komu ekki. McElroy var nýríkur eftir velheppnað húsa- brask á Long Island, og slúðrarar blaðanna upplýstu, að hann væri áhugasamur safnari abstraktmál- verka. Frú McElroy var í stuttu tízkunni, fimmtán sentimetrum fyrir ofan hné, klippt eins og drengur öðru megin og stúlka hinum megin. Enginn hefði trúað að hún ætti 18 ára gamlan son frá fyrra hjóna- bandi. Það átti hún samt. Nafn hans var Paul, og hann átti að Ijúka stúd- entsprófi í júní. McElroy hjónin fóru til að vera viðstödd skólaslitin. Þau sváfu út, en lögðu af stað um hádegið á græna Jagúarn- um. Þau óku stytztu leið. Á leiðinni hugsuðu þau um, hvernig það myndi vera, að hafa Paul hjá sér. Síðastliðnum árum hafði hann eytt með föður sínum, sálfræð- ingi frá Boston. En nú var hann nýgiftur 22ja ára gömlum tannsmið og nú ætlaði Paul að koma og búa hjá þeim um stund. „Krakkinn fer í taugarnir mér, ef satt skal segja." viðurkenndi frú McElroy, han er svo fjandi háfleygur." „Kannski hefur hann breytzt" sagði McElroy. Hann hafði rétt í þessu fengið að vita að Archer skólinn væri fyrir bæði kynin. „Hann verður hvort sem er bara í sumar. Herra McElroy ók mjög hratt og tók beygjurnar af leikni, en þau voru samt sein fyrir. Þegar þau komu a staðinn var upp- sagnarathöfnin næstum búin. Þau misstu af því að sjá Paul fá verðlaunin fyrir góða hegðun og önnur fyrir beztu frammi- stöðu, en þau sáu þegar honum var afhent prófskírteinið. Hann virtist mjög hár og hörkulegur í svörtu fötunum sínum. „Er þetta Paul." hvíslaði frú McElroy. „Það er víst" svaraði McElroy. Á eftir var hressing borin fram í garðinum við hús skóla- stjórans. Elroy hjónin kynntu sig fyrir skólastjóranum, hr. Cudlipp, sem óskaði frúnni til hamingju með að eiga son, sem hefði þann framúrskarandi félagsþroska, að hann tæki jafnvel ágætiseinkuninni hans fram. „Við væntum mikils af Paul," sagði hr. Cudlipp. McElroy- 12 VTKAN 29-tw- síðar kom og hafði í hjónin þökkuðu honum og héldu áfram. Frú Mc Elroy þáði glas af ávaxtapúnsi af smávöxnunf nemanda, en afþakkaði smáköku. Þau sáu til Paul yfir garðinn, þar sem hann stóð á tali við föður sinn og tann- smiðinn. Stundarkorni Paul yfir til þeirra, för með sér stóra, feita og sveitta stúlku f hvítum skólaslitakjól. „Gott að þið gátuð komið," sagði Paul, og notaði lausu höndina til að kreista lúku frú McElroy. „Mig langar til að kynna Virginíu fyrir ykkur," bætti hann við. Virginía var óvenju feit stúlka með óvenju skemmda húð og átakanlegt bros. Svitaperlur glóðu á efri vör hennar og milli brjóstanna, og fitutár vættu augun. Onnur stúlka kom hlaupandi að og þær féllust báðar í faðma og grétu mikinn. Paul bað McElroy hjónin ganga með sér afsíðis. „Sko," sagði hann, „ég hef boðið Virginíu að koma og dveljast í nokkra daga. Það er vandræðaástand heima hjá henni og hún þarfnast mín, í sannleika sagt. Ég vona að ykkur sé sama." ,Hva, auðvitað." sagði McElroy. „En þér Phil?" Allt í fína," sagði frú McElroy. Stórkostlegt" sagði Paul. Andy Warhol og vinir hans komu ekki í partí hjá McElroy hjónunum næsta sunnudag eftir skóla- slitin. Samt var þetta geggjað partí. Um svipað leiti og Paul og Virginia komu frá því að sjá Mary Poppins voru Rollingarnir á fóninum og hann hátt stilltur. Frú McElroy reyndi einu sinni að koma þeim á gólfið, en Paul sagði, að sér fyndist svona dans barnalegur í meira lagi. Virginia flissaði og leit til frú McElroy. Frú McElroy gerði það upp við sig, að henni líkaði vel við Virginíu, þrátt fyrir allt. Brátt fór Paul að sofa. Virginfa hélt út fram- undir morgun, og dansaði sjeik og þessháttar af fullkom- inni innlifun, sem þykja mátti furðuleg miðað við sköpulag hennar. Um það bil korter fyrir eitt fékk frú McElroy hiksta og fór fram í eldhús eftir vatni. Hún heyrði raddir úr vinnu- konuherberginu, gætti að og sá Virginíu og hr. McElroy sitja á rúminu og var hún að skoða lófa hans. „Virginia les í lófa," útskýrði hann, er hann heyrði hikstann á bak við sig. „Hún

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.