Vikan - 20.07.1967, Qupperneq 12
VtRGINÍA
CALVIN TOMKINS
McElroy hjónin voru í gleðinni. Þau bjuggu
lyftu húsi fullu af löngum hvítum sófum
poppmólverkum og þau elskuðu Bítlana, og
Rollingana jafnvel enn meir. Þau héldu
heljarmikil partí sem aldrei virtust
enda. Stundum kom atomskáldið
Andy Warhol og fleiri bítnikar
partí þó að þau skipti væru fleiri,
sem þeir komu ekki. McElroy var
nýríkur eftir velheppnað húsa-
brask á Long Island, og slúðrarar
blaðanna upplýstu, að hann væri
áhugasamur safnari abstraktmál-
verka. Frú McElroy var í stuttu
tízkunni, fimmtán sentimetrum fyrir
ofan hné, klippt eins og drengur
öðru megin og stúlka hinum
megin. Enginn hefði trúað að
hún ætti 18 ára gamlan
son frá fyrra hjóna-
bandi. Það átti hún samt.
Nafn hans var Paul, og
hann átti að Ijúka stúd-
entsprófi í júní. McElroy
hjónin fóru til að vera
viðstödd skólaslitin. Þau
sváfu út, en lögðu af stað
um hádegið á græna Jagúarn-
um. Þau óku stytztu leið. Á leiðinni
hugsuðu þau um, hvernig það myndi
vera, að hafa Paul hjá sér. Síðastliðnum
árum hafði hann eytt með föður sínum, sálfræð-
ingi frá Boston. En nú var hann nýgiftur 22ja ára
gömlum tannsmið og nú ætlaði Paul að koma og
búa hjá þeim um stund. „Krakkinn fer í taugarnir
mér, ef satt skal segja." viðurkenndi frú McElroy, han
er svo fjandi háfleygur."
„Kannski hefur hann breytzt" sagði McElroy. Hann hafði
rétt í þessu fengið að vita að Archer skólinn væri fyrir
bæði kynin. „Hann verður hvort sem er bara í sumar.
Herra McElroy ók mjög hratt og tók beygjurnar af leikni, en
þau voru samt sein fyrir. Þegar þau komu a staðinn var upp-
sagnarathöfnin næstum búin. Þau misstu af því að sjá Paul
fá verðlaunin fyrir góða hegðun og önnur fyrir beztu frammi-
stöðu, en þau sáu þegar honum var afhent prófskírteinið.
Hann virtist mjög hár og hörkulegur í svörtu fötunum sínum.
„Er þetta Paul." hvíslaði frú McElroy.
„Það er víst" svaraði McElroy.
Á eftir var hressing borin fram í garðinum við hús skóla-
stjórans. Elroy hjónin kynntu sig fyrir skólastjóranum, hr. Cudlipp,
sem óskaði frúnni til hamingju með að eiga son, sem hefði þann
framúrskarandi félagsþroska, að hann tæki jafnvel ágætiseinkuninni
hans fram. „Við væntum mikils af Paul," sagði hr. Cudlipp. McElroy-
12 VTKAN 29-tw-
síðar kom
og hafði í
hjónin þökkuðu honum og héldu áfram. Frú Mc
Elroy þáði glas af ávaxtapúnsi af smávöxnunf
nemanda, en afþakkaði smáköku. Þau
sáu til Paul yfir garðinn, þar sem hann
stóð á tali við föður sinn og tann-
smiðinn. Stundarkorni
Paul yfir til þeirra,
för með sér stóra, feita og sveitta
stúlku f hvítum skólaslitakjól.
„Gott að þið gátuð komið,"
sagði Paul, og notaði lausu
höndina til að kreista lúku frú
McElroy. „Mig langar til að
kynna Virginíu fyrir ykkur,"
bætti hann við. Virginía var
óvenju feit stúlka með
óvenju skemmda húð og
átakanlegt bros. Svitaperlur
glóðu á efri vör hennar
og milli brjóstanna, og
fitutár vættu augun.
Onnur stúlka kom
hlaupandi að og þær
féllust báðar í faðma
og grétu mikinn. Paul
bað McElroy hjónin ganga
með sér afsíðis. „Sko," sagði
hann, „ég hef boðið Virginíu
að koma og dveljast í nokkra daga.
Það er vandræðaástand heima hjá
henni og hún þarfnast mín, í sannleika
sagt. Ég vona að ykkur sé sama."
,Hva, auðvitað." sagði McElroy. „En þér Phil?"
Allt í fína," sagði frú McElroy.
Stórkostlegt" sagði Paul.
Andy Warhol og vinir hans komu ekki í partí
hjá McElroy hjónunum næsta sunnudag eftir skóla-
slitin. Samt var þetta geggjað partí. Um svipað leiti
og Paul og Virginia komu frá því að sjá Mary Poppins
voru Rollingarnir á fóninum og hann hátt stilltur. Frú
McElroy reyndi einu sinni að koma þeim á gólfið, en
Paul sagði, að sér fyndist svona dans barnalegur í meira
lagi. Virginia flissaði og leit til frú McElroy. Frú McElroy
gerði það upp við sig, að henni líkaði vel við Virginíu,
þrátt fyrir allt. Brátt fór Paul að sofa. Virginfa hélt út fram-
undir morgun, og dansaði sjeik og þessháttar af fullkom-
inni innlifun, sem þykja mátti furðuleg miðað við sköpulag
hennar. Um það bil korter fyrir eitt fékk frú McElroy hiksta
og fór fram í eldhús eftir vatni. Hún heyrði raddir úr vinnu-
konuherberginu, gætti að og sá Virginíu og hr. McElroy sitja á
rúminu og var hún að skoða lófa hans. „Virginia les í lófa,"
útskýrði hann, er hann heyrði hikstann á bak við sig. „Hún