Vikan


Vikan - 14.09.1967, Blaðsíða 31

Vikan - 14.09.1967, Blaðsíða 31
,Ý. vfC Ronson y Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Þú tekur skemmtilega hugmynd upp eftir vinkonu þinni. Nokkur óróleiki einkennir framkomu þína. Þú verður mikið á ferð og flugi. Þú endurnýjar ýmsa smáhluti sem eru farnir að ganga úr sér. Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí); Þú freistast til að skálda svolítið, þegar upp kemst að þig skortir þekkingu á vissu máli. Unglingur þarf mikið á hjálpsemi þinni að halda. Þú verður fyrir nokkru óhappi, en það snertir ekki fjárhaginn. Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní): Frítími þinn er ódrjúgur og fer mest í snúninga og óþarfa bið. Eldri maður í fjölskyldunni ber undir þig vandasamt mál. Þú eignast hlut sem á eftir að veita þér og þínum margar ánægjustundir. # Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí): Þú ert nýbúinn að breyta eitthvað til, en kannt ekki nógu vel við þig Þú ert ekki mikið heima og vinnur mjög mikið. Fjölskylda þín fer í ferðalag, en þú ferð að líkindum ekki með. fsf Liónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): Fyrirtæki það sem þú vinnur við veitir þér viður- kenningu, sem fyrst og fremst kemur þér til góða, en einnig fjölskyldu þinni. Unga fólkið sem á þess kost ætti að njóta útiveru og skemmtana. & Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september): Vonbrigði þín með ákveðna persónu eru mikil. og nú í vikunni verður háttalag hennar alveg óskiljan- legt. Þú heldur kveðjuhóf fyrir kunningja þinn. Fimmtudagskvöldið verður frábrugðið hinum. Vogarmerkið (24. september — 23. október): Þú hefur ákveðið að ljúka verkefni sem dregizt hef- ur á langinn, en því miður verðurðu fyrir töfum sem gœtu valdið þér tjóni. Þú lætur gera fyrir þig smáhlut, sem á eftir að létta af þér miklu erfiði. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Þú færð' hugmynd sem vinur þinn er áfjáður í að notfæra sér og þið komizt að mjög góðu samkomu- lagi. Þú getur ekki sinnt öllum þínum verkefnum sem skyldi, en vandaðu þig við það sem þú gerir. ftr* Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. des.): Vinur þinn fer til útlanda og kemur þar einhverjum málum í kring fyrir þig. Ákveðin persóna þarfnast aðstoðar þinnar og mun það taka mikið af tíma þinum. Notaðu frístundirnar til hvildar. £ SteingeitOrmerkið (22. desember — 20. janúar): Þú hefur ákveðið að taka þér frí, en það verður sennilega ekki eins auðvelt og þú hélst. Maður nokk- ur sem þú hefur oft gert greiða gerir þér gott til- boð. Þú ert dálítið óstundvís, þú ættir að laga það. \É» Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar); Það er einkar rólegt heima fyrir og þú nýtur þess að vera þar og hvíla þig. Þú færð gest sem kemur langt að. Þú hefur að láni hlut sem þú skalt ekki draga lengur að koma til skila. &% Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz); Maður nokkur biður þig bónar sem þú átt erfitt með að neita og enn erfiðara með að framkvæma, en eigi að síður skaltu reyna, þetta verður holl á- reynzla á þolrifin. Happadagur er föstudagur. HÁRÞURRKA HEIMILANNA EINKAUMBOÐ: I. GUÐMUNDSSON & CO. H.F., REYKJAVÍK

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.