Vikan


Vikan - 29.02.1968, Blaðsíða 40

Vikan - 29.02.1968, Blaðsíða 40
Hef margra ára starfsreynslu í helztu blóma- löndum Evrópu. Öll blóm á gróðurhúsaverði. V______________________________________________) Legg rækt við að sérhver skreyting eða blómvöndur sé rétt túlkandi fyrir það tilefni sem við á. Kjólablóm fyrir órshótíðina. Afmælisvendir. Brúðarvendir, brúðar-blóma-kóróna. Brúðkaupsafmælisvendir. Skrautinnpökkun á gjöfum. Biómaprýði við útfarir: Samúðarvendir, útfararvendir. Blómsveigar, minningarvendir. Legg yður á ráðin með að gróð- urskreyta hibýli yðar. ÁLFTAMÝRI 7 AHÚSIÐ simi 83070 HVERFISGÖTU 50. - SÍMI 18830. Tveggja manna sveínsóíi og samstæðir stólar V____________________________________________) 40 VIKAN 9-tbi- Hin UOTH GRÖF Framhald af bls. 15. og ærðulaus, en Bart fann að undir niðri var hún í töluverðu uppnámi. —- Þetta er meira verk en ég hélt, sagði hún. — Ég býst við að ég verði að geyma sumt af því fram á morgundaginn. Ég er búin að fá nóg í dag. Ég ætla að ganga frá þessu og svo getum við farið. Ég verð að læsa og fara með lykilinn aftur til frú Carey. — Sendi ekki Walmo eigur systur þinnar aftur hingað? — Jú, þær voru hér. — Var þá ekki lykillinn að íbúðinni þar líka? Hann fylgdi á eftir henni inn í setustofuna. Hún tók lykla- hring af borðinu og rétti honum. Þetta var venjulegur hringur með rauðri leðurpjötlu og fjór- um lyklum. — Bara þessir, sagði hún. — Enginn af þeim er neitt iíkur þeim sem frú Carey lánaði mér. — Þessir tveir eru bíllyklar og þessir tveir líta út eins og dyra- lyklar. — Annar er sennilega að skrifstofu Niles læknis. ■ •— Vel til getið. Ætli hinn sé ekki að íbúð Kimbertons, sumar- bústað eða einhverju í þá áttina. — Hún skrifaði mér að hún hitti hann stundum í sumarhús- inu hans. Það getur verið. Hún skrifaði . . . hún skrifaði mér um slíkt til skrifstofunnar. Það voru alger einkabréf. Hin fóru beint heim og allir lásu þau. Hann fór að símanum og tók upp tólið. Hann var ekki í sam- bandi. —- Hvað er að, Bart? — Þú fórst í gegnum allt það sem kom hingað frá skrifstofu lögreglunnar? Það hefði ekki farið framhjá þér ef það hefði verið lykill þar með? — Nei, það þykist ég viss um. Ég skal gá aftur. Á meðan skoðaði hann læsing- una. Það var ekki hægt að læsa öðruvísi en með lykli. Barbara fann ekki lykilinn, og hún sagði að Lucille hefði ævinlega gætt þess að læsa. Hann ók Barböru aftur að mótelinu og hringdi svo í Walmo þaðan. — Breckenridge, alit sem hún hafði á sér eða hjá sér var farið með til íbúðarinnar og skilið eftir þar. Ég hef lista yfir það hér. Hann er mjög nákvæmur, segir meira að segja frá vara- litnum og frímerkjunum. Hér stendur lyklahringur með fjór- um lyklum. Ef þér segið að eng- inn þeirra gangi að íþúðmru. bá gengur enginn þeiria að íbúð- inni. — Finnst yður það ekki kvnd- ugt? — Ef til vill hefur hún ekki haft það fyrir sið að læsa. Það gera ekki allir. — Hún gerði það. Bæði systir hennar og frú Carey eru vissar um það. — Eruð þér viss um að þér sé- uð ekki að reyna að gera úlfalda úr mýflugu? — Að því er virðist var íbúð- in hvorki innsigluð, né hennar gætt, morguninn eftir að hún dó, sjeriff, og inngangurinn er bak- dyramegin og frú Carey er sjón- varpsvinur. Ef til vill hefur ein- hver viljað nálgast eitthvað í íbúðinni. — Ef þér viljið láta útskýra hvert smáatriði getið þér látið þetta ganga lengi, Breckenridge. Eruð þér vissir um að þér þekk- ið reglurnar um sönnunargögn? — Ég hringdi ekki til að segja að ég hefði neitt ákveðið fram að færa. Ég hringdi bara til að spyrja um lykilinn. — Ég veit um einn sem ekki hefur lykil. Það er Skip Kimberton. Daginn eftir að frú Phelps dó lét ég frú Carey hleypa honum inn til að ná í einhverjar bókhaldsbækur, sem frú Phelps færði fyrir hann. — Kannske að hann hafi ver- ið að reyna að sanna að hann hefði ekki lykil. — Er lítið að gera í fyrirtæk- inu yðar um þetta leyti árs? — Þegar ég hef eitthvað ákveðið, sjeriff, skal ég hafa samband við yður. Hann lagði á og teygði úr sér í rúminu og hugsaði um þann veika sannanavef, sem hann var að byrja að spinna. Lykillinn horfni benti til þess að eitthvað verðmætt hefði verið í íbúðinni. Af tóninum í einkennilegu bréfi Lucille til Barböru, mátti láta sér detta í hug að það hafi verið eitthvað sem Kimberton átti. Ef reiknað væri með að einhver hefði getað drekkt Lucille, án þess að þess sæust nokkur merki á líkinu, hefði sá hinn sami ekki þurft annað en fara að bílnum, þekkja rétta lykilinn úr, taka hann, koma sér inn og út úr íbúðinni, án þess að til hans sæist. Og Skip Kimberton hafði farið að vitja eigna sinna næsta

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.