Vikan - 18.04.1968, Side 2
I FARARBRODDI
í TRYGGINGAMALUM
ÍSLENDINGA
Margvíslegar framfarir hafa orðið í íslenzku þjóðlífi síðustu tvo áratugi.
Skipastóll landsmanna hefur margfaldazt og n/ tækni við fiskveiðar hefur rutt sér til rúms.
Ný lönd hafa verið tekin til ræktunar með stórvirkum vinnuvélum og landbúnaðurinn vél-
væðzt að erlendri fyrirmynd. Nýjar iðngreinar hafa risið upp, stóriðja hafin og bylting orðið
í samgöngum landsmanna.
Samvinnutryggingar hafa verið þátttakandi í þessari öru uppbyggingu og náðu því takmarki
þegar árið 1954, að verða stærsta tryggingafélag hér á landi og eru það enn.
TRYGGIÐ HJÁ YÐAR EIGIN FÉLAGI .
TRYGGIÐ HJÁ FÉLAGI, SEM ER I FARARBRODDI I (SLENZKUM TRYGGINGAMÁLUM.
SAMVirVNUTRYGGlINGAR
ÁRMÚLA 3 SlMI 38500
Eiturlyf
Margir listamenn hafa tek-
ið sér fyrir hendur að sýna í
verkum sínum botnlaust kvik-
syndi óhamingju og hörmunga
sem notkun eiturlyfja hefur
í för með sér. Ollum er í
fersku minni leikritið Kvik-
sandur, sem fjallaði um þetta
efni og Leikfélag Reykjavíkur
sýndi fyrir nokkrum árum.
Nú síðast sýndi sjónvarpið at-
hyglisverða kvikmynd um eit-
urlyf.
Þessi mynd hefur eflaust
vakið margan til umhugsunar
um hin nýju eiturlyí, sem
skotið hafa upp kollinum í
hinum vestræna heimi á síð-
ustu árum, LSD og fleiri skyld
efni. Blöð um allan heim hafa
lýst furðulegum áhrifum LSD
og þeirri hættu, sem notkun
þess fylgir. Á Norðurlöndun-
um hefur sívaxandi notkun
eiturlyfja verið mjög á dag-
skrá. Sérstaklega hafa kenn-
arar og foreldrar látið í ljós
áhyggjur sínar og ugg vegna
eiturlyfjaneyzlu unglinga í
skólum.
En hvernig er þessum mál-
um háttað hér á landi? Eru
eiturlyf boðin til kaups fyrir
okurverð í skúmaskotum og
skuggasundum höfuðborgar-
innar? Hefur LSD borizt hing.
að til lands? Alltaf öðru
hverju eru á kreiki sögusagn-
ir um eiturlyfjasölu hér á
Iandi. Sumir ganga svo langt
að fullyrða, að ekkert sé auð-
veldara en verða sér úti um
slíkt hér á landi.
Fróðlegt væri, ef rannsókn
færi fram á því, hvort nokk-
uð er hæft í þessum sögusögn-
um. Slík rannsókn gæti kom-
ið í veg fyrir, að þetta ugg-
vænlega vandamál nútímans
veúði jafn alvarlegt hér á
landi og í nágrannalöndum
okkar.
Fyrir nokkru var lagt fram
á Alþingi frumvarp til breyt-
inga á lögum um tilbúning og
verzlun með ópíum og fleira.
Þetta frumvarp er tvímæla-
laust tímabært og réttmætt.
V °V