Vikan - 18.04.1968, Page 9
— Það var ekki gert, kannski
af praktískum ástæðum. Það
hefði orðið Ijótt fyrir úrskurðar-
valdið, að fá á móti sér 3—4000
manns, sem er í verkfalil.
— En núna farið þið ekki eins
harkalega að og oft áður. Þið
vaðið ekki í bílana og hellið nið-
ur mjólk og bensíni, og skemmið
þannig eigur manna.
— Nei. Nei, nei. Sá, sem yrði
uppvís að því, hann hefði brotið
í bága við skipanir yfirstjómar
verkfallsins.
Svo leggjum við upp í ferðina
milli verkfallsvarða á mánudags-
kvöldi. Enn er rigningarsuddi og
drungalegt. Vegurinn er vel hol-
óttur upp í Mosfellssveitina; hann
hefur aldrei borið sitt barr eftir
verkfallið 1955, en þá fór hann
mjög hrakalega. Á leiðinni ræð-
um við um gang verkfallsins.
Kristvin vinnur hjá Eimskipafé-
laginu, og í sambandi við það
sagði hann:
— Okkur varð nú á að segja,
vinnufélögunum, að líklega yrði
það bezta lausnin fyrir skipafé-
lögin, að það kæmi verkfall svona
fjórum sinnum á ári. Því það
bókstaflega hreinsaðist út úr
skemmunum þá voru nógir pen-
ingar allt í einu. Sum fyrirtækin
áttu þama vörubirgðir fyrir
hundruð þúsunda; það var allt
hreinsað upp. Það virðast vera
til miklu meiri peningar til að
berjast við okkur, heldur en að
reka fyrirtækin.
v— Var ekki mikið um það
fram að þeim tíma, að fyrirtæk-
in leystu ekki út vörur sínar, af
því það var von á tollalækkun-
um?
-— Jú, að vísu töluvert mikið.
En svo kom í Ijós, að tollalækkan-
irnar urðu töluvert miklu minni,
en vonazt var til.
— Hefði þetta verkfall skollið
á, hefðu tollalækkanirnar orðið
eins og lofað var?
— Ég skal ekki segja, hvort
tollalækkanirnar hefðu tryggt á-
framhaldandi vinnufrið að veru-
legu leyti. Verkfallið er vegna
afnáms vísitölutryggingarinnar.
Það virtist ekki nokkur leið að
fá viðsemjendurna til að skilja
það. Ég álít, að það sé ósann-
gjarnt að kenna verkalýðshreyf-
ingunni um, hvernig komið er.
Hún hefur sýnt ótrúlegt lang-
lundargeð. Og ástandið var orðið
þannig, að það var erfitt að fara
í verkfall. En það hefði verið
ennþá erfiðara, að fara ekki.
— Hefði verið frágangssök að
geyma það til dæmis fram til
fyrsta maí?
— Verzlunarmál fólksins eru
orðin þannig, að það verður gíf-
urleg keðjuverkun þegar launin
eru orðin of lág. Það gerir þetta
afborgunarkerfi. Menn eru með
íbúðina sína og yfirleitt alla hluti
á afborgunarskilmálum. Þegar yf-
irvinna minnkar og jafnvel kem-
ur til atvinnuleysis, þá hrynur
allt.
— En varðandi verkfallsvakt-
:ina á vegunum: Er stætt á því,
strangt tekið, að loka vegunum?
— Við gerðum þetta 1955, og
það komu náttúrlega ótal vanda-
mál upp í sambandi við það. Ég
veit ekki, hvort það er beinlínis
:stætt á því, en það var látið
:standast.
— En er nokkur heimild til
að stöðva bíla á vegum úti og
'krefjast þess að, fá upplýsingar
um, hvað í þeim er, eða hvert
verið er að fara?
— Það má nú vera, að slík
heimild sé ekki beinlínis til, en
þetta virðist vera hefð, sem ekki
er hróflað við.
— Hvað gerið þið nú, ef þið
stöðvið bíl, sem er til dæmis með
bensíntunnu?
- Bensín er algerlega óleyfi-
legur flutningur nema í þar til
gerðum farartækjum eða tunnum.
En það er eins og það sé ekki
reynt að fara með bensín til bæj-
arins í neinum mæli. Ég tel, að
tilkynningar lögreglunnar um að
gersamlega sé óheimilt að geyma
bensín í eða við íbúðarhús, hafi
hjálpað okkur mjög mikið við þá
vörzlu.
— Það er fyllilega heimilt að
flytja bensín í þar til gerðum
brúsum, bæði utan á bílum og í
skottinu.
— Já, og við höfum alveg lát-
ið það afskiptalaust. Afskipti
okkar af slíku koma mest niður
á einstaklingum, og það gerir
okkur engu bættari, þótt menn
verði að ganga milli húsanna í
stað þess að skutlast á bílum.
Það eru fyrirtækin og atvinnu-
reksturinn, sem við erum að
stöðva. Við vitum það, að sum
fyrirtæki eiga bensín hér fyrir
ofan og sækja það þangað, en
við höfum ekkert gert til þess
að hindra það.
— Enda sennilega ekki hægt
um vik.
Nú komum við að Rauðavegin-
um svokallaða, spottanum, sem
liggur frá Vesturlandsvegi upp
af Guddumóa upp yfir Eggjar
upp á Selásinn. Þar eru fjórir
menn í Moskvits. Við víkjum
okkur að ökumanni hans og
spyrjum: - Hvað hafið þið ver-
ið lengi hér núna?
— Eitthvað um klukkutíma.
— Nokkuð gerzt?
— Ne-ei, það hafa verið hér
sendibílar í leit að olíu og eru
sumir orðnir hálfgert í vandræð-
um með hvert þeir eigi að fara,
því þeir komast þá jafnvel ekki
í bæinn aftur; þeir eru orðnir
svo tæpir.
— Hafið þið nokkur afskipti
haft af þeim?
Nei, en það veilti ekki af
að herða á vakt í sambandi við
þessa sendiferðabíla, því þeir
hafa bæði farið með kartöflur og
annað slíkt til bæjarins. Svo er
það til dæmis meö þetta túleöl,
sem kom með bílunum hans
í’ramhald á bls. 32.
TBL
FERMINGAGJAFA
S0N0L0R
transitorviðtæki
frá kr. 2800,oo.
Teppaz spilarar bæði Mono og
Stereo. — Verð fró kr. 3100.00.
Fóanleg bæði fyrir rafstraum,
220 volt og rafhlöður. — Allir
hraðar.
L.
SENDUM í PÖSTKRÖFU UM ALLT LAND
RadBónaust ki.ff.
Í.AUGAVEGI 83 - SÍMI 16525
is.tbi. VIKAN 9