Vikan - 18.04.1968, Qupperneq 14
„Berjið ekki að dyrum — gangið
rakleilt inn".
Þessa áletrun er að finna á hinni
þungu eikarhurð á skrifstofu Ró-
berts Kennedy. Skrifstofan er ( einu
horni byggingar öldungadeildar-
innar. Þaðan sér hinn ungi öldunga-
deildarþingmaður niður eftir Penn-
sylvania Avenue og heim að Hvíta
húsinu. ( góðu skyggni sér hann
líka yfir á hinn bakka Potomac-
fIjóts og getur greint bjarmann af
eldinum, sem logar nótt og dag á
heiðursgröf bróður hans.
Útsýnið úr skrifstofu Kennedys er
táknrænt. Það er engu líkara en for-
lögin hafi ráðið því, hvar þingmað-
urinn fékk skrifstofu í þessari bygg-
ingu.
Róbert, sem oft er kallaður
„Bobby", er næstyngstur af níu syst-
kinum. Hann er sá bræðranna, sem
stóð John F. Kennedy næst. Og það
er ekkert leyndarmál, að fjölskyld-
an ætlast til þess, að hann taki upp
merki hins látna bróður síns. Sér-
fræðingar á sviði stjórnmála hafa
fullyrt, að ekki líði á löngu þar til
nýr Kennedy flytji inn í Hvíta hús-
ið. Og nú hefur Róbert lýst þv( yfir,
að hann gefi kost á sér sem for-
setaefni við næstu kosningar.
Flestir búast við, að Róbert
Kennedy verði næsti Kennedy í for-
setastóli, en til skamms tíma vildu
sumir heldur veðja á enn yngri öld-
gpFFC"
FORSETI
BANOARÍKJANNA?
NYR KENNEBY
fí
FRÁ SKRIFSTOFU SINNI SÉR
RÓBERT KENNEDY EFTIR
PENNSYLVANIA AVENUE OG
HEIM AÐ HVÍTA HÚSINU. í
GÓÐU SKYGGNI GETUR
HANN EINNIG GREINT
BJARMANN AF ELDINUM,
SEM LOGAR NÓTT OG DAG
Á HEIÐURSGRÖF BRÓÐUR
HANS. RÓBERT HEFUR NÚ
GEFIÐ KOST Á SÉR SEM FOR-
SETAEFNI VIÐ NÆSTU KOSN-
INGAR.
i'Á
14 VIKAN 15- *“•
ungadeildarþingmann, sem hefur
skrifstofu í sömu byggingu: yngsta
bróðurinn, Edward, sem oft er kall-
aður „Ted".
Ekki eru dæmi um það áður í
veraldarsögunni, að þrír bræður
hafi komizt til jafn mikilla valda og
sterkra áhrifa og Kennedy-bræðurn-
ir. Þótt skarð hafi verið höggvið í
raðir bræðranna, bera þeir tveir
sem eftir lifa merki fjölskyldunnar
og munu hefja það hátt á loft. Og
eins og nú standa sakir beinist kast-
Ijósið fyrst og fremst að Róbert
Kennedy.
Að undanförnu hafa skoðana-
kannanir ævinlega leitt til þeirrar
niðurstöðu, að Róbert Kennedy njóti
meiri vinsælda en Johnson forseti.
Að meðaltali hafa hlutföllin verið
um 50% á móti 30%. Sérstaklega
er Róbert Kennedy vinsæll meðal
kvenfólks og kjósenda yngri en 35
ára. 70% allrar kvenþjóðarinnar
vill fá Róbert Kennedy fyrir forseta.
Róbert Francis Kennedy er meðal
vina og ættingja kallaður „Bobby"
eins og áður er sagt, en almenning-
ur kallar hann yfirleitt „Bob". En
í röðum stjórnmálamanna og blaða-
manna er farið að kalla hann RFK
og eru það áhrif frá því, að John-
FYRR!
HLUTI.
„Róbert er stcrkastur okk.ar
allra,“ sagöi John F. Kenne-
dy um bróður slnn.