Vikan - 18.04.1968, Síða 20
ANDRÉS INDRIÐASON
SKOTT HELDUR TÍL
HIFNRR
Um eitt skeið voru Walker bræður hinir bandarísku
í miklum metum hjá ungu íólki víða um heim, og
það er raunar ekki svo langt síðan að þeir voru
nefndir í sömu andrá og Bítlarnir, þegar vinsældir
þeirra bar á góma. En svo hættu þeir að syngja
saman, enda kom uþp úr dúrnum, að sundurlyndi
var ríkjandi innan hópsins — og héit hver í sína
áttina. Scott Walker var óneitanlega sá þeirra þre-
menninganna, sem mest kvað að — og hann hélt
áfram að syngja upp á eigin spýtur eítir að hafa
sagt skilið við félaga sína. Hann hefur sent frá sér
nokkrar hljómplötur, en ekki hafa þær þó náð þeim
vinsældum, sem hann hafði vonað. Nýjasta lagið
hans heitir ,,Jackie" og kom það út í desember.
Scott hefur látið svo um mælt, að hann sé orðinn
skelfing ieiður á þessu söngvarastússi. Hann hefur
margoft lýst því yfir, að hann ætli að ganga í
klaustur, en þeir sem þekkja til, eru hættir að trúa
því. Nú segist hann vera staðráðinn í því að fá sér
einhverja ærlega vinnu næsta sumar og hann hefur
líka sagt, hvað hann hyggst taka sér fyrir hendur:
Hann ætlar að fá sér vinnu í Tuborg bjórverksmiðj-
unum í Kaupmannahöfn! Skýringin á því, að hugur
hans leitar til borgarinnar við sundin er ósköp ein-
föld. Hann hefur krækt sér í danska stúlku, Mette
Teglbjærg, heitir hún. og við sjáum þau bæði hér
á myndinni, sem er tekin á Lundúnaflugvelli ný-
lega.
20 VIKAN 15-tw-
-V ;
AL CAPONE - ÖRÐIÐ ER
NÝJASTA TÍZKUBÖLAN
Fyrir fáeinum vikum var nokk
uð óvenjulegt lag í efsta sæt
vinsældalistans brezka. Lagið uu
Bonnie og Clyde. Brezki söngv
arinn Georgie Fame söng óðinr
um þessi þokkahjú, einhverja að
sópsmestu skúrka, sem sagan
greinir frá á síðari árum. Lagini
fyfgja skottívellir og önnur skylc
hljóð, gauragangur og sírenui
patrólbíla.
Nú eru Bonnie Parker og Clyde
Barrow orðnir nokkurs konar
dýrlingar í augum hinna yngri
Georgc Ilarrison var eitt sinn spurður að því, livað lionum fyndist um útflúrið á Kolls Roycc bifreið Ji
Lcnnon. George svaraði þessu til: „Bíllinn cr stórkosllcgur — gulur með alls konar litlum krúsidúllum.
fæ ekki skilið, hvers vegna þeir hjá Rolls Royce eru svo gramir yfir þessu — þeir liafa aldrci fei
svona góða auglýsingu.“
I»egar cinn af talsmönnum Rolls Royce verksmiðjanna var beðinn að gera athugasemd við þessi i
mæli — var svarið þetta: ,,Já, við erum einmitt hræddir um það!“