Vikan


Vikan - 18.04.1968, Side 21

Vikan - 18.04.1968, Side 21
scm keppast við að líkja eftir þcim í útliti. Ný tízka hefur skot- ið upp kollinum, svokölluð „skúrkatízka“: óaðskiljanlegar einingar þessarar tízku eru vesti, hattar og platbyssuhulstur, svo nokkuð sé nefnt. Kjólar ná niður á ökla, gjarna í svörtum lit. Nafniö AI Capone er núna sveipað ævintýralegum ljóma og ungir sveinar vilja gjarna líkj- ast honum að einhverju leyti í útliti. AI Capone var auðþekkt- ur á miklu öri, sem hann liafði á vinstri kinnimii — og nú sækj- ast margir eftir að fá sams kon- ar ör! Og það geta menn fengið á snyrtihúsi einu í London. „Að- gerðin“ tekur aðeins þrjár mín- útur, en rétt er að geta þess, að hér er aðeins um plat-ör að ræða. Samt sem áður mjög raunveru- legt! Það e.r kvikmyndin um Bon- nie og Clyde, sem kom öllu þessu af stað. Þessi mynd, sem var frumsýnd nýlega, hefur hvar- vetna vakið mikla athygli og um- tal. Með aðalhlutverk Bonnie og Clyde fara Faye Dunaway og Nei, það er ekki rómantík í spilinu hjá Elvis Presley og Nancy Sinatra, sem hér stinga saman nefjum. Þau leika aðal- hlutverkin í kvikmyndinni „Speedway', sem nýlega hefur verið frumsýnd og hér eru þau í einu atriði myndarinnar. El- vis er hinn lukkulegasti um þessar mundir og hefur sannar- lega ástæðu til að brosa út und- ir bæði eyru, því að frúin hefur nú alið honum dóttur. — Sú litla fæddist 2. febrúar sl. og liún á að heita Lísa María. Og svo er þess að geta, að ný tveggja laga hljómplata með söng hans kom út 16. febrúar sl. Þar er lagið „Guitar Man", sem spáð er að verði vinsælt. Bæði lögin á plötunni eru úr nýrri kvikmynd, „Clambake", sem frumsýnd verður I byrjun maímánaðar. Warren Beatty og þykir leikur þeirra snilldargóður. Það er þeg- ar byrjað að sýna þessa mynd á Norðurlöndunum — í Danmörku, Svíþjóð og Finnlandi. Norska kvikmyndaeftirlitið bannaði hins vegar sýningu myndarinnar á þeirri forsendu, að glæpafólki væri einum of mikil samúð sýnd og það gert að liálfgerðum dýr- lingum. Og í Finnlandi þurfti kvikmyndaeftirlitið að sjá mynd- ina tvisvar til þess að geta kveðið upp úrskurð um, hvort sýna mætti myndina. Bonnie og Clyde voru frá Texas. Þau voru á eilífum flótta undan lögreglunni og lifðu á rájj- um og rupli; létu m. a. oft greip- ar sópa í bönkum. Þau féllu fyr- ir vélbyssuskotum lögreglunnar í Arcadia 23. maí 1934. Á legstein Bonnie eru þessi orð meitluð: Svo sem blómin verða fegurri af sólskini og dögg verður þessi gamla veröld bjartari af fólki eins og þér. Sandie Shaw þykir nokkuð sér- vitur. Þegar hún lét fyrst í sér heyra opinberlega fyrir þremur eða fjórum árum, vakti það furðu margra, að hún kom fram ber- fætt. Og svona hefur þetta geng- ið æ síðan: ungfrúin lætur ekki segjast og losar sig yfirleitt við skófatnaðinn, áður en hún geng- ur fram á sviðið. Þeim mönnum, sem fjalla um öryggi á vinnu- stöðum í Bretlandi, datt snjall- ræði í hug, þegar þeim hug- kvæmdist að biðja Sandie að verða sér að liði í mikilli áróð- ursherferð fyrir því að menn gæti fóta sinna í verksmiðjum í Bret- landi. Þeir fengu Sandie til að stimpla með fótum sínum á papp- írsblað — og síðan voru fótaför- in sett upp á stór auglýsinga- spjöld, sem hanga nú á mörgum vinnustöðum í Bretlandi. Þau munu í nánustu framtíð minna menn á að viðhafa gætni við hættuleg störf. 15. tbi. VIKAN 21

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.