Vikan - 18.04.1968, Page 23
‘VIKMYNDUÐ. TÍZKAN I ÁR ER EINS OG Á KREPPUÁRUNUM, OG SEGJA MÁ, AÐ EINS KONAR
4
(
Bonnie og Clyde höföu ákaf-
lega gaman af aö taka mynd-
ir hvort af öðru, og voru þau
þá venjulega þrælvopnuð.
Byssur og hraðskreiðir bílar
voru þeirra uppáhald.
Bonnie raunveruleikans var nú naumast eins sæt og sú í kvikmyndinni. Þetta er fræg'asta
myndin sem tekin var af glæpakvendinu, en sjálf var hún mjög óánægð með hana.
bílnum, reyndust tilheyra Clyde
Barrow og Bonnie Parker.
Þetta og fleira hafa bandarísk
blöð að segja um Bonnie og
Clyde, glæpahjúin frá fjórða tug
aldarinnar, sem nú eru gerð ó-
dauðleg — og rómantíseruð —
í kvikmynd. Frásögnin er dag-
sönn að því leyti, að Bonnie,
Clyde og einhverjir kumpánar
þeirra drápu svo sannarlega
þessa tvo lögreglumenn á þjóð-
vegi í Texas. En fullyrt er að hið
hundingjalega tilfinningaleysi
Bonniear sé fært í stílinn; muni
þar vera um að ræða einskonar
öfuga rómantíseringu á ofbeld-
inu. Bonnie litla var heldur ekki
þetta gallharða ævintýrakvendi,
sem kvikmyndin gerir hana að.
Þess í stað voru þau Clyde
bæði framleiðsla þess umhverf-
is, sem þau lifðu í.
Það voru Bandaríki krepp-
unnar miklu, sem urðu vitni að
hini stuttu „stórveldistíð“ þeirra.
Sextán milljónir manna voru at-
vinnulausar, fjöldi fólks stóð
þolinmóður í biðröðum til að fá
einn súpudisk eða bita af ölm-
usubrauði, uppflosnaðir bændur
fóru í stórhópum vestur til Kali-
forníu, sem enn hafði yfir sér
dýrðarljóma allsnægtalandsins,
en komust fljótlega að því að
ástandið var sízt betra þar.
Gífurleg afbrotaalda gekk yf-
ir landið. Tjónið af þeim völd-
um 1933 kvað hafa verið um
þrettán milljarðar dollara. Sama
ár voru tólf þúsund Bandaríkja-
menn myrtir, þrjú þúsund rænt
og fimmtíu þúsund rændir. í
Chicago einni voru framin fleiri
morð en í Bretlandi öllu. í einni
grein glæpa sló Texas öll hin
fjörutíu og sjö ríki út: þar voru
myrtir fleiri lögreglumenn og
15. tbi. VIKAN 23