Vikan - 18.04.1968, Síða 24
r
Frank Hamer var þrautreyndur mannaveiðari, enda tók hann hik-
laust að sér að ráða niðurlögum Bonniear og Clydes. Þannig leit
bill þeirra út eftir skotárás Hamers og félaga hans.
UNGLINSARNIR SEM ÖLL
BANDARÍKIN ÓTTUDUST
sériffar en nokkursstaðar ann-
arsstaðar. Fyrir hvern afbrota-
mann, sem tekinn var af lífi,
voru sex lögreglumenn drepnir.
Glæpamenn fengu mikinn
uppslátt í blöðunum og var síð-
ur en svo laust við að þeir yrðu
aðnjótandi hetjudýrkunar. Að-
alforsprakki hinnar skipulögðu
glæpastarfsemi var A1 Capone.
Meðan áfengisbann var í Banda-
ríkjunum, hélt hann sér mest
við brugg og sprúttsölu, en þeg-
ar það var afnumið, sneru hann
og aðrir glæpakóngar sér að
vændisrekstri, eiturlyfjasölu og
fjárhættuspili.
En engir náðu meiri tökum á
ímyndunarafli almúgans en fólk
eins og Dillinger, „Baby Face“
Nelson, „Ma“ Parker og synir
hennar, „Pretty Boy“ Floyd,
„Machine Gun“ Kelly, bófar sem
létu sér ekkert fyrir brjósti
brenna, bókstaflega talað. Og
svo voru það Clyde Barrow og
Bonnie Parker, sem kannski
voru alræmdust af þeim öllum.
Um tíma voru þeim eignuð tutt-
ugu morð, en „aðeins“ tólf tókst
að sanna á þau og félaga þeirra.
Clyde var fæddur þann tutt-
ugasta og fjórða marz 1909 í
Telece, Texas, og var faðir hans
ólæs landbúnaðarverkamaður,
sem alls átti átta börn. Hann
var öðru hvoru í skóla, í fimm
bekkjum alls, en hætti svo alveg
á menntabrautinni og slóst í fé-
lag með smáræningjum og bíla-
þjófum.
Bonnie var ári yngri, fædd í
Rowena, Texas, fyrsta október
1910. Faðir hennar var múrari
og hún átti eldri bróður, Hubert,
og yngri systur, Billie. Hún
komst í gagnfræðaskóla og út-
skrifaðist þaðan með góðum
einkunum. Hvað gáfur snerti var
hún greinilega á hærra stigi en
Clyde.
Þau sáust fyrst í janúar 1930.
Þegar í næsta mánuði var Clyde
í fyrsta sinn dreginn fyrir dóm-
ara og settur í fangelsið i Huts-
ville fyrir allmarga stuldi og
rán. f marz smyglaði Bonnie
skammbyssu inn til hans svo að
í?4 YIKAN 15- tbb
hann gæti skotið sér braut út.
Hann gerði það, en var gripinn
aftur eftir nokkra daga, og nú
sat hann í steininum í tvö löng
ár.
Hann varð að púla eins og
þræll í grjótnámi fangelsins.
Þetta leiddist honum og til að
sleppa við erfiðið náði hann sér
eitt sinn í öxi og hjó af sér tvær
tær. En örlögin reyndust kald-
hæðin eins og fyrri daginn; rétt
á eftir var Clyde náðaður og
haltraði út um fangelsishliðið
beiskari út í lífið og þjóðfélagið
en nokkru sinni fyrr.
Nú hófst glæpaferill þeirra
Bonniear og Clydes fyrir alvöru.
Þau voru sjaldgæf skötuhjú.
Eittlivað tengdi þau saman, en
ást var það ekki. Bonnie hafði
þegar verið gift einu sinni, þrátt
fyrir ungan aldur, en því sam-
bandi lauk af sjálfu sér er eig-